Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Page 86

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Page 86
ólfs að vestan, þá stendur first f einu aðalhandritinu þessi grein: Nú eru taldir peir menn, er búit hafa í landndmi Ingólfs vestur frá honum f>essari grein sleppir Hauksbók og náttúrlega Melabók, sem ekki slítur í sundur frásögnina um landnám Ingólfs. Af öllu þessu virðist ljóst, að Landnáma Ara hefur birjað á Sunnlendingafjórðungi austur við Jök- ulsá á Sólheimasandi, eins og skinnbrot Melabókar hinnar eldri, og sagt síðan frá landnámunum vestur eftir í rjettri röð sólarsinnis í kring um alt land. Kaflanum um fund landsins hefur hún líklega skot- ið inn í miðja frásögnina um Sunnlendingafjórðung, þegar kom að Ingólfi. J>ar bauðst gott og eðlilegt tilefni til að segja frá því. Að þessi kafli hafi stað- ið í frumriti Ara, sjest á tilvitnuninni til Sæmundar, er fir var getið. Hvenær hefurAri skrifað I.andnámu ? Jeg hef áður tekið það fram, að ráðlegging biskupanna og Sæmundar til Ara, að sleppa ættartölu og konunga æfi úr íslendingabók hinni eldri, væri lítt skiljanleg, ef þeir hefðu ekki um leið hvatt hann til að skrifa sjerstök rit um landnám og sögu Noregskonunga. J>etta virðist því benda til, að Landnáma (og kon- unga æfi) Ara sje ingri enn íslendingabók hin eldri. f>etta stirkist einnig við það, sem jeg hef áður sínt, að kaflinn um Ketilbjörn úr Landnámu Ara, sem geimst hefur í Sturlungu, hefur sum orð alveg eins og íslendingabók hin ivgri, og sfnir þannig skild- leika við hana enn ekki við eldri bókina. Orðin: „Ketilbjörn Ketilsson, maðr nórœnn, bygði suðr at Mosfelli enu efra ; paðan eru Mosfellingar komniN í íslendingab. 2. k. virðast í rauninni ekki vera 1) Landn. 1. p. 14. k. (Isl. s. 1843, I, 47. bls.).

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.