Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Síða 97
ÍM9
Setjum nú að allir væru á einu máli á einu landþingi,
hvernig gæti það skeð ? með því að allir samsintu strax
það sem sá fyrsti segði, hvört það væri samkvæmt hans
egin meining eða ekki. En væri það þá gott ? nei langt
frá, þá yrði engin hlutr skoðaðr nema frá einni síðu. »Ef
maðr hefði ekki Opposition, yrði maðr að skapa hana».
þér spyrjið, hvör egi að halda lítið upplýstum og
máské óróafullum flokki í taumi ? eg svara : ef slíkr er
fyrir hendi, þá ætla eg það upplýstu Talenti, hvar sem
það er að finna. Bn eg fyrir mitt leyti sé ekki að hætt
væri við slíkum óróaflokki á landþinginu á Islandi. Eg
set að landþingið hefði 30 Eepræsentanta, óróamenn yrðu
þar ekki fleiri enn 10 í allra mesta lagi, líklegast ekki fleiri
enn 1 eða 2, því þó skynsamir bændr yrðu valdir, mundu
þeir ekki reynast óróasamir, ef þeir færu rjett að sem
ættu að gefa gott eptirdæmi. Að þeir oppóneruðu, kalla
eg ekki óróa, heldr hitt að heimta með oddi og eggju og
ósóma og hávaða óskynsamlega og óleyfilega hluti. Ætíð
yrði stór Majoritet af skynsömum og sómasamlegum
mönnum, sem með sínum fortölum, ástæðum og votis
stýrði hinum.
f>ér spyrjið : Mun Island hafa hagnað eða byrði af
hluttekning í Provindsialstöiidunum nær fram á líðr ? Eg
svara : eigi Islendingar að taka þátt í landþinginu í Dan-
mörku, þá held eg byrðin verði miklu meiri enn hagnaðr-
inn ; bæði verðr þá allt kostnaðarsamara og líka ekki ó-
líklegt, að Island misti eitthvað af sínum privilegiis við
áfergi Dana á slíkum þingum. Og það sem verst væri,
þessi stiptun hefði þá alls enga verkun á þjóðarandann
nema illa eina. En ef landþingið verðr haldið á Islandi,
þá þykja mér margar líkur til þess að hagnaðrinn yrði
meiri enn byrðin, allrahelst ef menn vildu fylgja mínu
ráði, og gefa ekki meira kaup enn eg hefi tiltekið, þá yrði
kostnaðrinn allþolanlegr; Island þyrfti þá ekki að óttast
fyrir að missa neitt af sinum réttindum, en þjóðarandinn
fengi án efa nýtt líf; hjá því gæti ekki farið, Mér þætti
og ekki ólíklegt að flokkadrættir lægðust meira en espuð-