Eimreiðin - 01.09.1896, Side 25
i8s
dynur niður stórfellt og svalt, svo það er heldur dapurt og drunga-
legt utanhúss; — en því meiri er glaumurinn og gleðin aptur
inni fyrir.
Það er búið að kveikja á ljósakrónunum og setja lampa og
kyndla um allt húsið.
Það er afmælisdagurinn hennar fröken Sigríðar, og því á að
halda stórkostlega dansveizlu í kveld. Hún er nú orðin nítján ára.
Gunnhildur tifar úr einni stofu í aðra og er að hagræða hinu
og þessu. Enginn af boðsgestunum er enn kominn. En nú hring-
ir dyrabjallan. Gunnhildur lýkur upp og inn kemur ungur og
laglegur maður. Hann varpar af sjer yfirhöfninni og staðnæmist
svo í hinni uppljómuðu forstofu, hár og tígulegur í skrautlegum
dansfötum með stúdentahúfu undir hendinni. Gunnhildur horfir
á hann og vöknar um augu.
»Gunnlaugur, Gunnlaugur! En hvað þú ert fínn og fallegur!
Bara að þú skammist þín nú ekki fyrir hana móður þína, sem er
so lítilsigld og fátæklega til fara.-«
»Skammist mín fyrir þig! Hverjum á jeg að þakka það, sem
jeg er, nema þjer? En heyrðu, mamma, það er so sárt að vita,
að þú skulir þurfa að þrælka sona og að jeg skuli ekkert geta gert«.
»Hefur þú ekki unnið líka og gert móður þinni þá gleði og
ánægju að verða heiðvirður maður, sem nú er sýndur sá mikli
sómi að vera boðið í dansveizlu hjá bæjarfógetanum? En það áttu
henni fröken Sigríði að þakka.«
»Fann hún upp á því?« — »Já, hún hefur so opt spurt um
þig núna seinustu tvö árin, sem þú hefur verið burtu.« — »Hvar
er hún?« — »Hjerna inni í salnum. Hún er alein. Enginn af
gestunum er kominn og bæjarfógetinn og frúin eru ekki enn
komin ofan.«
Gunnlaugur gekk inn í salinn. Sigríður stóð álút yfir spegil-
skák og var að hagræða blómum í jurtabikar. Gólfdúkurinn dró
úr skóhljóðinu, svo að hún tók ekki eptir því, að hann kom.
Hún sneri bakinu að dyrunum. Hann sá ekki nema hið granna
vaxtarlag hennar, er þunnur tarlatanskjóll liðaðist um eins og rós-
lituð skýslæða, mjallhvítar herðar og fáeina rósknappa, sem gægð-
ust svo sakleysislega út á millum dökku lokkanna.
»Gott kvöld, fröken!«
Sigríður hrökk saman og sneri sjer skjótlega við.