Eimreiðin - 01.09.1896, Page 32
192
nóg um. Hún sat ofboð alvarleg út í krók á milli tveggja kvenna
og var að fitla við vasaklútinn sinn og kreista hann á millum
fingranna. Og þegar menn beindu orðum sínurn að henni, svar-
aði hún öllu eins og hún væri út á þekju.
Ekkjan hans Einars lögregluþjóns var eina persónan í veizl-
unni, sem virtist vekja eptirtekt hennar. Hún tók svo nákvæm-
lega eptir öllum hreyfingum hennar, að mönnum fannst nóg um;
og þegar ekkjan gerði eitthvað, sem ekki var í sem beztu sam-
ræmi við almennar veizlureglur, sem stundum bar nú við, þá ljet
hún misþóknun sina í ljósi ýmist með meðaumkvunarlegu brosi
eða ásakandi augnaráði.
Ekkjan hans Einars lögregluþjóns gekk semsje um beina og
átti að taka við af Gunnhildi gömlu bæði í veizlulífinu og í bað-
húsinu.
Þegar farið var að borða og ekkjan hans Einars lögregluþjóns
í hjartans einfeldni bar amtmannsfrúnni syltutau með laxinum,
fannst Gunnhildi þó kasta tólfunum. Hún stóð upp og var eins og
hún stæði á öndinni; hún hefði líka sjálfsagt rokið að aumingja ekkj-
unni hans Einars lögregluþjóns og rifið af henni diskinn, ef Gunn-
laugur hefði ekki með aðvarandi augnaráði komið henni til að
halda sjer í skefjum. Hún hnje aptur niður á stólinn í öngum
sínum og fór að borða flesk og rússneskar ertur. En það var auð-
sjeð, að henni var þungt innanbrjósts.
Það er ekki margt manna á götunni; því veðrið er slæmt og
eptir því er færðin. Hinn dutlungafulli vetur hefur skvett regn-
vatni yfir hin snæþöktu stræti og síðan látið það frjósa, svo það
er næstum lifsháski að ganga úti.
Gunnhildur gamla er samt á ferðinni. Stormurinn stendur
ákaflega í hempuna hennar með ljósbláu leggingunum og hún verð-
ur opt að halda sjer dauðahaldi í húsveggina til þess að detta ekki.
En hún lætur það ekki aptra sjer. Hún verður að halda áfram
hvað sem tautar; því hún er að bjóða í brúðkaup.
Brúðkaupið hans Gunnlaugs og Sigriðar Snædal.
Hún hafði nú tekið það i sig, gamla konan, að ganga sjálf
með boðslistann; en það skyldi nú líka verða sá seinasti. Hún
skyldi nú fara að fá hvíld eptir sinn æfilanga eril og setjast í helgan