Eimreiðin - 01.05.1897, Side 2
82
gleymdi að bera tólg á posteriora, áður en jeg fór á staðe). Hvur
em eg, að jeg líki mjer við Hindenburg?
•1: &
Skrifað á Táralækf) 27da Juli 1836.
Nóttin er liðin herra og morgunroðinn ljómar þarna úti. Jeg
hef sofið vært í 4 eða 5 tíma, nema hvað bræður okkar vöktu
mig, svínin á Táralæk, mikil og feit og gullfallegt búsílag. Sængur-
konan eða konan, sem þjónar mjer til sængur, hún er so góð í
sjer og viðkunnanleg, að jeg get ekki gert gys að henni i þessum
reikningi. Reikningurinn er 36 skl. með öllu og öllu, mjólk og
brauð og sætt kaffi; stallmeistarinn á Táralæk segir að það sje
gott. — 12 skl. handa Bagge á Bellevues) og skammir um landið!
Það var nóg handa honum! So hef jeg sjeð Markús guðspjalla-
mann og undarlegan kola í fjörunni, en hafði ekki tíma til að
kryfja hann.
Geologisk Excursion, safnað steinum og skeljum og skoðaðir
bakkarnir frá Táralæk og út undir Strandmyllu1'). Galerites albo-
galerus i mergillagi fyrir ofan bláleirinn.
Strandmyllan er hefðarhús
hriktir þar alt og skrjáfar;
jeg sá fló og færilús
á fuglinum honum Láfa.
Du slaaer ikke 4—5 Keiler! sagði Olafur; þú hnekkir trauð-
lega 7 ballarstrýtum í högginu, sagði jeg. Þá kom hugur i báða
og fóru að hnekkja strýtunum — einn skl. fyrir höggið, og sona
vann jeg 42. Þvínæst át jeg sauðarkjamma og blóðrauðan graut
hjá Þórði mínum Daníelssyni, horfði yfir landið og sjóinn, og sá
pappírinn verða til — að ógleymdri tjölinni, sem álabörnin skríða
á. Strandmyllan er hefðarhús hriktir þar alt og skrjáfar!
Geologisk Excursion. Kalkhellur og mergillög í Sandgröf-
inni fyrir sunnan Veðbekk1) og fallegt dýr í tinnu (galerites?).
* *
%
Veðbekk — um nónbilið — lærðar viðræður, falleg stelpa og