Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1905, Side 11

Eimreiðin - 01.01.1905, Side 11
þeir hafa með að fara? Nei, því fer svo fjarri, að það sé víst, að miklu meiri líkur eru til að þessu mætti koma fyrir á annan hátt með miklu meiri hagsýni. Sýslumenn hafa margvíslegum störfum að gegna; þeir eru dómarar, lögreglustjórar, skiftaráðend- ur, skattheimtumenn, skýrslusemjendur o. s. frv. En flestum af þessum störfum er þannig háttað, að ekki þyrfti neina sérlega lögfræðismentun til að leysa þau af hendi, heldur mundi hver vaiinn alþýðumaður með nokkurnveginn almennri mentun geta gert það, með því að hafa »Lagasafn alþýðu« og »Stjórnartíðindin« sér til leiðbeiningar. Pað eru í rauninni dómarastörfin ein, sem gera alla þá miklu lögfræðisþekkingu, sem nú er heimtuð af sýslu- mönnum, nauðsynlega. Og það er einmitt þessi lögfræðisþekking, sem gerir þá svo dýra landinu. Pví það er ekki nema eðlilegt. að þeir menn, sem orðið hafa að eyða mörgum árum og miklu fé til að afla sér sérþekkingar, séu nokkuð kaupdýrir. En þegar svo er, virðist það liggja beint við, að skipa þessu á annan hátt, láta sýslumenn aðeins hafa dómarastörf, en fela hin önnur störf þeirra öðrum ólöglærðum mönnum, sem ekki þyrfti að bjóða svo hátt kaup. Ef sýslumenn og bæjarfógetar, sem nú eru 18 að tölu, hefðu aðeins dómarastörf á hendi, mætti fækka þeim að miklum mun. Eeir þyrftu þá að vorri skoðun ekki að vera nema 4 á öllu landinu. Vér búumst við, að mörgum muni nú þykja þetta djúpt tekið í árinni og jafnvel kalla það fjarstæðu, og vér skulum því reyna að skýra þetta dálítið betur. I löndum Breta, sem eru mjög hagsýn þjóð, er dómaskipun þannig háttað, að hjá þeim eru mjög fáir löglærðir dómarar. En svo hafa þeir aftur fjölda af svonefndum friðdómurum, einn í hverri sveit. I’að eru ólærðir menn, og eru til þess valdir helztu bændurnir í hverri sveit. Peir hafa engin föst laun, en dálitlar aukatekjur fyrir verk sín. En svo mikil virðing þykir að stöðunni, að menn sækjast samt eftir henni. Friðdómararnir eru bæði lög- reglustjórar í sinni sveit og hafa líka dómsvald í smærri málum, geta tekið menn fasta og dæmt menn í fésektir. En sé um veru- lega glæpi eða stærri mál að ræða, er málunum vísað til hinna reglulegu dómstóla. Og þar sem dómstólarnir eru svo fáir, er dómurunum gert að skyldu að ferðast um í dómþinghá sinni og halda dómþing á ákveðnum stöðum á tilteknum tíma. Pannig hefur maður, sem dvalið hefur langdvölum í Manítóba, skýrt oss frá, að þegar hann var þar, þá hafi einir 4 dómarar verið í öllu

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.