Eimreiðin - 01.01.1905, Blaðsíða 26
26
reynsla, sem þú munt sanna, hver svo sem maðurinn er, hvort sem
hann er stjórnmálamaður, kaupmaður, hermaður, málaflutningsmaður,
læknir, blaðamaður, listamaður, rithöfundur eða leikandi.
f’að er alkunna, að margir menn, sem gæddir hafa verið ljómandi
gátum, hafa dáið í eymd og volæði eingöngu af því, að þá skorti
skapsmuni. Og það er skapsmununum einum að þakka, er treggáfaðir
menn geta að lokum orðið miljónungar, sem allir bera virðingu fyrir.
Það er ekki æti'ð gáfaðasti pilturinn í bekknum, sem verður efstur;
það verður vanalega sá, sem mest hefur skapsmunaþrekið. Hafi
hann hvorttveggja í einu til að bera, bæði gáfur og skapsmuni, þá
getur enginn við hann kept; það er auðsætt.
Því ekkert er tilviljun, ekkert slempilán á sér í rauninni stað í
lífinu. Hepni og óhepni eru undir okkur sjálfum komin.
Hvað er hepni? f’að er að fara á fætur kl. 6 á morgnana,
brúka 3 krónur á dag, ef menn innvinna sér 6, annast sín eigin störf
og mál, en skifta sér ekki af annarra; hepni þýðir í útleggingu þeir
erfiðismunir og afneitun, sem þú hefur ekki hikað við að leggja á
sjálfan þig; hún þýðir nætur, sem þú hefur varið til strangrar vinnu.
Að grípa tækifærið, er, að koma til staðar á réttu augnabliki, að verða
ekki of seinn til þess að komast með lestinni, með öðrum orðum, að
menn reiði sig á sinn eigin ramleik, að menn hafi fyrir trúarsetning:
hjálpaðu þér sjálfur, þá mun drottinn hjálpa þér! Heiður og virðing
eru jafnan í fylgd með þeim, sem hefur vit á að hjálpa sér sjálfur og
þolinmæði til að bíða. Hafir þú á þennan hátt komist nokkuð áfram
í heiminum, munu allir »auðnuleysingjarnir« æpa á eftir þér: Það er
ekki mikill vandi fyrir hann, sem altaf er svo stálheppinn.
Þú getur verið »heppinn« um stund, en sí og æ með engu móti.
Sá maður, sem daglega situr við spilamensku, mun, þegar árið er
liðið, geta sagt þér, að hann hafi jafnoft setið í hepni sem óhepni.
f'etta eru talviss lög, sem eigi verður undan komist. Eini vegur-
inn til þess að verða oftar »heppinn« en »óheppinn« í spilum er sá,
að hafa rangt við, með öðrum orðum að rugla eða fara á svig við öll
líkindalög.
Og eins gengur það í lífinu: Eini vegurinn til að verða heppinn
og verða ofan á, er, að láta aldrei neitt vera komið undir neinu slempi-
láni, heldur að vinna, vinna og aftur að vinna; að afla sér trausts
annarra, með því að sýna sterka og djarfmannlega skapsmuni: með
því að gera sjálfan sig ómissandi, af því menn geti reitt sig á þig,
og af því menn sjá, að þú vinnur verk þitt með áhuga og ást til þess;
að ganga leið sína gegnum lífið með brosandi hugdirfð, sem læsir sig
í aðra, að ávinna sér virðing annarra með ráðvendni og einlægni, og
jafnan minnast þess, að menn komast aldrei lengra með glæfrabrögð-
um en með vonduðum og heiðarlegum meðulum.
Sá er ekki snjallasti stjórnmálamaðurinn eða forvitrastur, sem hef-
ur lag á að skapa atburðina eða framkalla þá, heldur einmitt hinn,
sem getur séð þá fyrir og hefur vit á að hafa hag af þessari framsýni.
Til þess að komast áfram, verða menn að kunna að taka tillit til
kringumstæðanna, eins og þær nú einu sinni eru, og reyna að nota
þær sem bezt má verða, en ana ekki áfram í blindri þrákelkni. Ein-