Eimreiðin - 01.01.1905, Blaðsíða 59
59
til, að hver maður hafi 6 krónur á dag og 2 krónur séu borgaðar
fyrir hest og vél. Vinnutíminn var ii—12 tímar. I ákvæðis-
vinnu var borgað 0,25 krónur fyrir þurkun og 0,50 krónur fyrir
fiutning til járnbrautarstöðvanna á hverjum 1000 móflögum. 1000
móflögur, er vega 0,5 kíló hver, kosta þá komnar í járnbrautar-
vagn 2,25 krónur eða smálestin 4,50 krónur. Mórinn er mjög góður
og söluverð hans 7,50—8,00 krónur. Hestarnir, sem ég sá fyrir
þessum móvélum, voru fremur litlir, ekki miklu stærri en stærstu
hestarnir heima, og veittist þeim þó ekki erfitt að reka vélina
allan daginn.
Eltivélin er svo einföld, að vel er hægt að smíða hana
heima og eins mótagrindurnar, hjólbörurnar o. s. frv. Frá út-
14. mynd.
löndum þyrfti ekki að kaupa nema hestaganginn, eða jafnvel
ekki nema tannhjólin 1 hann.
Móvél frá Noregi af þessu tægi sést á 13. mynd, Er hún
lítið eitt stærri en Pindstrup-vélarnar, enda er vinnuaflið talsvert
meira, en aðferðin er hin sama. Eftir skýrslu frá Noregi, kosta
þessar vélar með öllum útbúnaði alt að því 600 krónur, og búa
til 7—8 smálestir af þurum mó á dag, með 10 klukkustunda
vinnu. Er það hlutfallslega minna en í Pindstrup, og kemur það
sjálfsagt af því, að norskir vinnumenn eru ekki eins æfðir í
þessari grein móiðnaðarins og danskir móvinnumenn. I Noregi
er talið að ein smálest af mó þurum á þurkvelli, unnin með vél-
um þessum, kosti 4,15 kr.
Mér þykir líklegt, að þéssi litla vél mundi reynast hentug