Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1905, Blaðsíða 27

Eimreiðin - 01.01.1905, Blaðsíða 27
2 7 beittur vilji og þolgæði eru hinir beztu vinir manna, en þrákelknin með sínum sjónbyrgjandi augablökum, er aftur hinn versti óvinur þeirra. Enginn nær markinu, ef hann eyðir tímanum til ónýtis í að vera að kvarta yfir því, sem of seint er orðið að lagfæra, og ef hann getur ekki sætt sig við að verða fyrir óhjákvæmilegu tjóni. Það má með nokkurnveginn vissu gera ráð fyrir, að hver maður hafi lifað augna- blik, er á reið að grípa gæfuna á fluginu, og hafi hann ekki notað þetta augnablik, þá kemur það að líkindum aldrei aftur. Tækifærið kemur áreiðanlega, en menn verða að sætta sig við að bíða eftir því. Enginn getur haft hamingjuna með sér alla sína æfidaga, en enginn er heldur eingöngu ógæfusamur og óheppinn. Ef einhver segir við þig: »Já. það er mín vanalega hepni; ég er eftirlætisgoð hamingj- unnar«, þá geturðu verið nokkurnveginn viss um, að þeim manni er í rauninni alls ekki ljóst, hvenær hann situr með tromp á hendinni. Til þess að komast upp, verða menn að vera sparsamir; en menn verða líka að kunna að geta látið peninga af hendi rakna, og meira að segja sýna örlæti, þegar þörf gerist. Yilji menn fá uppskeru, verða menn að sá. Sparsemi er kostur, en sé ofmikið af henni gert, getur hún hæglega snúist upp í nánasarskap og ágirnd; en nánasar- skapur er ljótur galli í fari manns, og ágirndin er, eins og kunnugt er, ein af hinum sjö höfuðsyndum. Auðmennimir í Ameríku eru að jafnaði örlátir, og margir þeirra hafa varið miklu af fé sínu til mannúðar þarfa; og einkanlega á þetta sér stað með þá, sem sjálfir hafa aflað sér auðs síns. Mér er það óskiljanlegt, að anarkistamir (stjórnleysingjarnir) skuli þeyta sinni eitruðu hatursspýju gegn auðkýfingunum. Fari menn að rannsaka ritningarnar, munu menn sjá, að langflestir þeirra em menn, sem byijað hafa með tvær hendur tómar, en sem hafa aflað sér auðs síns með vitsmunum og strangri vinnu; og þetta hefðu þessir blessaðir hljóðabelgir líka getað gert, ef þeir hefðu viljað vinna, í stað þess að slita sér út á eintómum gremjulátum. Allar stórgjafir til mannúðarstofnana, spítala og háskóla koma að öllum jafnaði frá auðkýfingum, sem sjálfir hafa fundið, hvar skórinn kreppir, — mönnum, sem hafa með dugnaði, vitsmunum og skaps- munaþreki hafið sig upp úr múgnum. y Q Max MUller um Guðbrand Vigfússon. Hinn frægi málfræðingur og goðsagnafræðingur MAX MULLER (f 1900) lét eftir sig brot af æfisögu sinni, er hann hafði sjálfur samið og hefur það verið gefið út af syni hans (F. Max Múller, »My Auto- biography. A Fragment. London 1901). Rit þetta er einkar skemti-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.