Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1905, Side 37

Eimreiðin - 01.01.1905, Side 37
37 MYNDUN MÓS OG SAMSETNING HANS. Mór er jurtaleifar, sem hafa rotnað — fúnað — niðri í vatni og við lágt hitastig. Svo sem kunnugt er, eru lífrænuefni jurtanna nálega eingöngu samansett af þremur frumefnum, nefnilega kolaefni, vatnsefni og súrefni. Auk þess er í þeim lítið eitt af köfnunarefnum og ögn af brennisteini og fosfór. Pegar jurtaefni rotna eða fúna við hæfilegan raka og greiðan aðgang andrúmsloftsins, eyðast þau og hverfa smámsaman og verða að loftkendum efnum, aðallega kolsýru og vatni. Ef and- rúmsloftið hins vegar hefur ógréiðan aðgang að þeim eða er ná- lega útilokað, líkt og á sér stað, þegar jurtir rotna niðri í vatni, eyðast sum efnin meira en önnur,- svo að hlutfallið milli þeirra raskast. Að þessu hljóti að vera þannig varið, sést ljóslega, ef maður virðir fyrir sér efnasamsetning jurtanna og samsetning efna þeirra, er myndast við rotnunina. Purt tré er samansett af 50°/o kolefnis, 6°/o vatnsefnis, 43°/o súrefnis og i°/o köfnunarefnis. Efnin, sem myndast við rotnunina, eru, líkt og áður var sagt, aðallega kolsýra og vatn. Kolsýra (CO 2) er samansett af 12 þyngdar- pörtum kolefnis og 32 þyngdarpörtum súrefnis. Vatn (Ha O) er samansett af 2 þyngdarpörtum vatnsefnis og 16 þyngdarpörtum súrefnis. Pað liggur því í augum uppi, að ef súrefni andrúms- ioftsins er útilokað, eyðist súrefnið í jurtaleifunum miklu fyr en kolefnið og vatnsefnið. Ef alt súrefnið í jurtaleifunum yrði sam- runa við kolefni, yrði þó alt að því 2/s hlutar kolefnisins eftir, og ef alt súrefnið yrði samruna við vatnsefnið, yrði þó dálítið af vatnsefni eftir. í raun og veru er andrúmsloftið aldrei alveg úti- lokað, svo miklu meira eyðist af jurtaefnunum, en gjört er ráð fyrir hér að framan. Margar fleiri efnabreytingar eiga sér stað við rotnun jurtaefna. Kolefnið verður samruna við vatnsefni og myndar mýraloft (Methan; CH4). Köfnunarefni verður samruna við vatnsefni og myndar ammoníak o. s. frv. En hvernig sem þessar efnabreytingar verða, þá sýnir reynslan, að við slíka hæg- fara rotnun (bruna) er það einkum kolefnið, sem verður eftir, og að jurtaléifarnar verða með aldrinum hlutfallslega kolefnisauðgari. Að rotnunin í mómýrunum er mjög hægfara, sést bezt á því, að í mólögum hafa fundist því nær ósködduð lík, sem eftir bún- ingi og öðru að dæma hljóta að vera mörg hundruð ára gömul.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.