Eimreiðin - 01.01.1905, Page 41
4i
Pessi mór hefur þur og öskulaus 6,32 °/o af vatnsefni, er svarar til
56.9 °/o af vatni. Ef gengið er út frá mó með 200/o af vatni og
3.9 °/o af ösku (í þurrum efnum 4,9 °/0) verður alt vatnið, sem
(100 — 23,9) 56,9
myndast við brunann,
100
-þ 20 = 63,3 °/o af món-
63,3.600
um, og til þess að breyta því vatni í gufu þarf--------= 380
hitaeiningar fyrir hverja þyngdareiningu af mónum. Þessi tala er
því dregin frá hitagildinu, og við það kemur fram notagildið.
MÓTEKJA.
Áður en byrjað er að taka móinn þarf margt að athuga. Pað
þarf að rannsaka stærð og þykt mólagsins. fað má helzt ekki
vera minna en 1 m. á þykt. Pað verður að ákveða, hve mikið
af þurrum mó fæst úr einum teningsmetra. Er þá hægt að reikna
hvað mikill mór fæst úr allri mýrinni. Að hinu leytinu verður að
gjöra nákvæma áætlun um, á hve miklum mó maður þarf að halda
á ári hverju, annaðhvort til eigin þarfa eða til sölu. Komi þá
upp á teningnum, að mólagið endist ekki að minsta kosti 10—15
ár, er varhugavert að kosta miklu til véla og annars útbúnaðar.
Ennfremur getur ekki verið að tala um neinn verulegan kostnað
til véla, ef ársframleiðslan er ékki svo sem 200—400 smálestir,
eða helzt meira. Afarnauðsynlegt er líka að rannsaka móinn
nokkurnveginn nákvæmlega, einkum brunagildi hans og öskumegn.
Pví betri sem mórinn er, því meira er vert að kosta til hans.
Vinnan við eina smálest af þurrum mó er því nær hin sama, hvort
sem mórinn hefur mikið eða lítið hitagildi. Söluverð steinkola í
Reykjavík er venjulega nálægt 25 krónum á hverri smálest, og
notagildi þeirra er varla langt frá 6800 hitaéiningum. Lakasti
mórinn frá Reykjavík hefur notagildið 1174. Söluverð hans, í
samanburði við steinkol, gæti þá verið tæplega 4^/2 króna. Eftir
sama mælikvarða yrði söluverð Kringlumýrarmósins liðlega 10 kr.,
bezta véstfirzka mósins liðlega 13 kr., og mósins frá Jót-
landi, sem getið er hér að framan, því nær 17 kr.; alt miðað
við smálest og að í mónum sé ekki meira en 20°/o af vatni. Hér
er hitaeiningin reiknuð jafndýr í öllum eldsneytistegundum. Pað
er ekki fullkomlega rétt. Hitalítið og fyrirferðarmikið eldsneyti
notast hlutfallslega lakar en hitamikið eldsneyti. Pó er munurinn
því minni sem eldstórnar eru betri, og í beztu eldstóm er hann
því nær enginn.