Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1905, Síða 65

Eimreiðin - 01.01.1905, Síða 65
65 Hjá einvirkja mörgum, jjó erfitt sé líf, er eldur, sem lifir í kolum. Og gróðrarmagn leynist við skaraðan skafl í skógarins næfruðu bolum. — En hvert skifti blæða mér svíðandi sár er sé ég hve alt er í molum. Ef framtíðin kemur með hagsældar hönd og huga, sem skyldunni ei gleymir, þá lifnar í kolum, sem enginn veit af. Frá eldinum ljósmagnið streymir. Eá réttist úr kútnum á kotungi þeim, sem kóngshjarta í brjóstinu geymir. En þú ert nú, frænka mín, sofnuð og sæl. — Að síðustu er heilsan var þrotin, þá hjúkruðu börnin og þóknuðust þér; og þannig var ísinn þinn brotinn. Og blessun sé hverjum sem brýtur vorn ís, svo blómgist um íslenzku kotin. því vér höfum mikinn og óbrotinn ís, hver einstakur maður og þjóðin. Við brot hans og þiðnun er blómgun í nánd þá bætist í menningar sjóðinn. Og alþjóðin vermist við aringlóð þá, sem yljar upp kjarkinn og móðinn. Pá skrýðist hver melur og skriða og urð, er skuggana geislarnir buga. Ef æska vor leggur fram drengskap og dáð, þá dagar í gamalsmanns huga. — Og eftir því blómgast og blessast vort land, sem börnin vor mannast og duga.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.