Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1908, Síða 16

Eimreiðin - 01.09.1908, Síða 16
176 manna í héraðinu. Kostnað við atkvæðagreiðslu við lækniskosning- ar (í embætti eða úr) yröi læknisumdæmið sjálft að borga (o: hrepparnir í því). Landlæknirinn gjöri ég ráð fyrir að yrði fyrst um sinn skipaður af ráðherra í samráði við alþingi. Næst er þá að tala um andlegu stéttina'íslenzku. Öll Ameríka t. d. og mörg fleiri ríki leggja ekki einn einasta pening af alþjóðar fé til kirkjumála, leyfa hverjum að hafa þau trúarbrögð, sem honum sýnist, og styðja engin trúarbrögð að neinu leyti, hvorki með kenslustofnunum (prestaskóla) eða neinu öðru. Hver einstaklingur verður í þeim efnum að sjá um sjálfan sig, og hvert trúfélag sömuleiðis. Petta er líka það eina rétta, eins á íslandi og annarstaðar, og því er óumflýanlegt að skilja ríkið og kirkjuna, og láta einstaklingana sjá sér fyrir kirkjulegum þörfum, eins og annarstaðar, ef þeir vilja. Pví er ver, að Islendingar eru ekki búnir að þessu, eins og þjóðin hefur viljað og beðið um nú á síðustu tímum, í stað þess að vera að eyða fé þjóðarinnar í þúsunda tali að óþörfu, í annan eins barnaleik og kirkjumálamilli- þinganefndina og kirkjumálalöggjöf síðasta þings, sem alveg er áreiðanlegt, að verður öll eyðilögð (með aðskilnaði ríkis og kirkju) á næstu árum, ef til vill þegar á næsta þingi. Um leið og ríkið og kirkjan eru aðskilin, verður auðvitað að leggja niður prestaskólann, því ríkið verður að vera laust við öll kirkjumál, enda gæti það ekki með neinni sanngirni stutt að sérmentum presta fyrir einn trúarflokk. þeir flokkar fólks, sem presta vildu hafa, yrðu að sjá sér sjálfir fyrir þeim presti, sem væri við þeirra hæfi, hvað trúarbrögð snertir, alveg eins og er hér í landi. Prestaefni íslenzk geta fengið sérmentum sína í trúar- brögðum, hvort heldur sem er únítarisk eða lútersk, — sem yrðu að líkindum helztu trúarbrögð Islendinga — eins vel hér í Ameríku eins og annarstaðar, þangað til félög í landinu sjálfu vildu taka að sér að stofna og starfrækja prestaskóla. Ef prestaefni kæmu hingað, til að ganga í prestaskóla, þá gætu þeir hæglega unnið á sumrin fyrir þeim kostnaði, sem þeir yrðu að standast við skóla- námið á veturna, því kensla er ókeypis, og auk þess fá nemendur við prestaskóla í þessu landi húsrúm, ljós og hita fyrir mjög litla borgun, svo kostnaðurinn liggur nær eingöngu í fæðinu. Alveg sjálfsagt er, að ríkið taki til sín allar kirkjueignirnar. Ljóðin sem heild á þær; og þó þingið hafi vald til að gefa þær, eða eftirláta þær einhverjum vissum trúmálaflokki, þá væri það

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.