Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1908, Side 20

Eimreiðin - 01.09.1908, Side 20
i8o hagsýni; bæði frækornin, sem þarf að sá, til þess að uppskera það, sem íslenzku þjóðina vantar tilfinnanlegast, sem er, eins og áður er ávikið, fleira dugandi fólk og meiri peninga. Að síðustu sný ég máli mínu til alþýðumannastéttarinnar íslenzku, — valdhafanna í landinu, og bið hana að athuga rækilega tillögur mínar, ekki mín vegna, heldur vegna Islands og niðjanna um ókomnar aldir. Hamingja Fjallkonunnar er undir því komin, að þessi flokkur skipi sér undir rétt merki í framsóknarbaráttunni. íslenzkir þjóðarvinir, karlar og konurl Látið aldrei úr huga ykkar hvarfla þetta gullfallega spakmæli skáldkonungsins norska, Björn- stjerne Björnssons. Sú þjóð, sem veit sitt hlutverk, er helgast afl um heim, eins hátt og lágt má falla fyrir kraftinum þeim.*) Winnipeg í apríl 1908. A. J. JOHNSON. Guðmundur Einarsson. (”/is 1823—15/i 1865). ísland hefir átt mörg alþýðuskáld, sjálfsagt fleiri en nokkur önnur þjóð að tiltölu við fólksfjölda. En allur þorri þeirra hefir átt þeim örlögum að sæta, að nöfn þeirra hafa gleymst, alveg eins og höfundanna að sögunum okkar frægu. Og þó hefðu mörg þeirra átt skilið, að nafni þeirra hefði verið haldið á lofti; því þó hugarflugið og skáld- snildin hafi ekki ætíð verið hjá þeim á háu stigi, þá hafa þó Ijóð þeirra veitt svo mörgum unun og ánægju, að þeirra ber að minnast með þakklæti. Þessi alþýðuskáld hafa haft sína köllun, ekki síður en stór- skáldin eða þjóðskáldin. Ljóð þeirra hafa að vísu sjaldnast haft mikið gildi fyrir bókmentir vorar. En fleira er matur en feitt kjöt. Svo *) Ritgerð þessi er skrifuð með sérstökn tilliti til þess, að ísland verði annað- hvort »fijálst sambandsland« eða »sjálfstætt ríki« á mjög nálægum tíma. Ég vona. að Islendingar gjöri sig ekki ánægða með neitt annað. Um leið og landið yrði annaðhvort af þessu tvennu, væri sérstaklega hentugt tækiíæri til að breyta stjórnar- fyrirkomulaginu frá rótum.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.