Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1908, Side 68

Eimreiðin - 01.09.1908, Side 68
228 Ritsj á. HELGI VALTÝSSON: BLÝANTSMYNDIR. Vísur og ljóð. Hafn- arfirði 1907. Það er ekki ólaglega af stað farið að tarna. Margt kvæðakverið komið lakara fyrir almenningssjónir. Að vísu er ríminu allvíða talsvert ábótavant, og sum kvæði meira eða minna rímlaus fyrir íslenzk eyru, eins og t. d. »Hún er veik« og »Nótt«. En það virðist gert af ásettu ráði, til þess að vera ekki eins og aðrir; »því fjárgötur og þjóðvegi eg forðast eins og pest,« segir höf. á einum stað, og mun mega heim- færa þetta gönuskeið burt frá almennum rímreglum undir þá lífsreglu. Annars er ekkert út á það að setja, að menn reyni að brjóta sér nýjar brautir, því litlar verða framfarirnar í bókmentunum, ef allir fylgja sama slóðanum margtroðnum. Og í þessum ljóðum er ýmislegt fleira ólíkt því, sem tízkast hefir, en rímleysurnar eða formgallarnir. Og þó manni verði stundum bilt við að hnjóta svo óþægilega um þá við lesturinn, þá er þó betra að fá gallað kvæði, sem eitthvað er í, heldur en áferðarslétt og meiningarlaust gutl; því sheldur leirugt gef mér gull, en gyltan leir.« Og sannast að segja höfum vér lesið þessi ljóðmæli með mikilli ánægju; ekki af því, að þar sé um stórfeldan skáldskap að ræða, heldur af því, að þau virðast vera svo sannur spegill af hugsana og tilfinningalífi höf. sjálfs, en engin uppsuða af annarra hugsunum og lýsingum eldri skálda, eins og svo oft vill verða hjá byijöndum. Kvæðin bera og vott um næmt og ólgamji tilfinningalíf og dágóða at- hugunargáfu, og því talsverð »lýrik« í þeim yfirleitt. Náttúrulýsingar hans eru og oft góðar, og jafnan einhver þægilegur ylur á bak við þær. Það þarf t. d. enginn að skammast sín fyrir þetta kvæði um »Vorið« (bls. 18): Hver tindur roðnar, hver hnjótur hlær himininn blánar, og áin er tær; lækirnir losna og leikandi falla í ljósbjartan sæ, — og hann kyssir þá alla. Dagurinn birtist, og brosin hans lýsa, því blessaða sólina lítur hann rísa; hann sér hana barmheita, svipfríða stíga, hún seiðir hans hjarta og lengir hans spor; fannirnar verða — þær verða að síga, því vorið er komið! — Hið langþráða vor! Hver tindur roðnar, hver hnjótur hlær! O, herra minn guð, já nú er hér vor! Hver blóðdropi brennur, hver hjartans æð slær, og hugur minn stigur sjömílna-spor;

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.