Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1910, Page 36

Eimreiðin - 01.09.1910, Page 36
192 rekja sögu vínnautnarinnar sérstaklega í sambandi við sögu bók- menta og lista á síðari öldum, því nálega allir hafa drukkið meira og minna, og er það ekki undarlegt, því að það var um langan aldur skoðan læknanna, að það væri holt og heilsusamlegt að verða drukkinn við og við. En eins og áður hefur verið tekið fram og ég skal síðar víkja að, getur sem stendur varla nokkur óhlutdrægur maður dregið það í efa, að bókmentir, listir og jafn- vel vísindi eiga víninu mikið að þakka. Skuggahliðar vínsins og annarra áfengra drykkja eru ekki verkefni mitt hér; það væri að bera í bakkafullan lækinn að skrifa um það. En ef alt er satt, sem nú er ritað og sagt um skaðsemi áfengisins, jafnvel þegar þess er neytt í hófi, þá ættu hinar indógermönsku þjóðir, sem allra þjóða mest hafa neytt þess og það um ekki skemri tíma en alt að þrem þúsundum ára, að vera nú úrkynja og gerspiltar. Þó eru þær nú drotnendur heimsins og hafa komist upp á hæstu tinda þrifa og menningar, sem nokkurri mannlegri veru hefur auðnast að ná. Margvíslegar tilraunir og rannsóknir hafa verið og eru stöð- ugt gerðar af vísindamönnum vorra tíma viðvíkjandi áhrifum áfeng- isins á mannlegan líkama. Pær hafa enn sem komið er ekki til fullnustu getað sýnt áhrif þess á sálarlífið og ímyndunaraflið, og það stendur ennþá óskýrt, hvort það örvar og glæðir hið skapandi afl mannsandans. T'etta atriði þarf þó skýringar, því að það er kunnugt,- að mörg mestu skáld heimsins hafa neytt áfengis, og það jafnvel í óhófi, alt frá Anakreón og Hóraz og ofan að Byron, Póe og Swinburne. Líklega mætti eitthvað líkt nefna úr því litla ríki, sem heitir nýíslenzkar bókmentir. Og í sögu vísindanna má finna lík dæmi. Pað er ekki ófróðlegt í þessu tilliti að lesa bréf Edvard Gibbon's, eins hins mesta sagnaritara síðari tíma. Hann var í Lausanne að rita hið ódauðlega verk sitt, »Hnignun og fall rómverska ríkisins«, og lítur út fyrir, að honum hafi þótt madeiran góð í þann tíð, því að jafnskjótt sem forði hans af því víni þvarr, skrifaði hann Sheffield lávarði, og bað hann að senda sér meira, því að nú væri madeiran lífsnauðsyn fyrir sig og sína frægð, og lávarðurinn sendi honum hvert uxahöfuðið eftir annað. Ég álít ekki, að þessi og þvílík dæmi sanni nægilega ágæti eða skaðleysi hóflegrar vínnautnar, en vér verðum að krefjast þess, að vísindin skýri þau og sýni, að þau séu einkisvirði, áður en Bakkus er sak- feldur og gerður landrækur með öllu. Enginn heilvita maður getur

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.