Eimreiðin - 01.09.1910, Blaðsíða 39
195
Aðflutningsbann áfengis á sér hvergi stað meðal siðaðra þjóða,
að því er ég veit til, því að eigi mega menn ætla að bann það
(þrohibition), sem gildir í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna í Norður-
Ameríku, sé aðflutningsbann; það er áfengissölubann. Pað væri
brot á stjórnarskrá Bandaríkjanna, ef eitthvert ríki lögleiddi að-
flutningsbann og þannig legði hindranir í veg fyrir milliríkjaverzlun,
og tilraunir, sem gerðar hafa verið í þá átt, hafa tafarlaust verið
dæmdar ólöglegar af dómstólunum. Maður, sem býr í bannríki,
getur þvi flutt að sér eins mikið af áfengum drykkjum úr öðru
ríki, eins og hann vill, en hann má ekkert selja af þeim innan
takmarka bannríkisins. Lyfsölum leyfist þó að hafa nokkurn forða
vínfanga til að selja eftir læknisráði. Petta giidir, hvort sem um
ríkisbann (state þrohibition) eða sveita- og bæjabann (local oþtion)
er að ræða. Nú eru í Bandaríkjunum 9 baunríki (af 46), en flest
ríki leyfa sveitabann, og þykir það að jafnaði gefast betur. En
þó bannmönnum (þrohibitionists) hafi orðið nokkuð ágengt í ein-
stökum ríkjum og sveitum, þá kveður þó lítið að þeim í banda-
málum. Bannmenn mynduðu pólitiskan flokk árið 1869 og setja
auðvitað aðflutningsbann um gervalt land efst á stefnuskrá sína ;
hafa þeir síðan við allar forsetakosningar haft forsetaefni, en ekki
er hann hættuiegur keppinautur. Við síðustu kosningar (1908)
fékk hann um 250,000 atkvæði af 14V2 miijón atkvæða, sem
greidd voru.
Elzta bannríkið er Maine, sem lögleiddi sölubann árið 1854;
en því var aldrei stranglega framfylgt þar fyr en fyrir nokkrum
árum; um nálega hálfa öld var þetta bann einungis á pappírnum;
áfengi var selt eftir sem áður og stjórnin lét sér nægja að sekta
áfengissalana einu sinni á ári um nokkur hundruð dali. Síðustu
árin hefur lögunum verið framfylgt allstranglega, en þó er langt
frá því, að þau hafi útrýmt áfengissölu, og nú eru Mainebúar
orðnir þreyttir á öllu saman, og vilja helzt fá lögin afnumin; því
að ekki verður það öðruvísi skýrt, að atkvæðum repúblíkana
(þeir eru bannmenn þar í ríki) fer stórum fækkandi við hverjar
kosningar. Ríki þau, sem lögleiddu bann, skömmu eftir að Maine
gerði það (Vermont, New Hampshire), hafa numið það úr lögum.
Kansas varð bannríki 1880 og North-Dakota 1890. En síðan
1907 hafa sex ríki orðið bannríki (Georgia, Oklahoma, Alabama,
Missisippi, North-Carolina og Tennessee), og þaðan stafar bann-
alda sú, sem gengið hefur yfir landið. ?að er eftirtektavert, að