Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1910, Blaðsíða 37

Eimreiðin - 01.09.1910, Blaðsíða 37
193 látið sér lynda sleggjudóma Leó Tolstoj’s um það. Hann skrifaði fyrir nokkrum árum grein um reykingar og víndrykkju og lýsti hinum herfilegu afleiðingum þeirra, jafnvel þótt ekki væri neytt meira en eins vindlings (sígarettu) eða glass af víni. Pegar hann hefur úthelt bræði sinni á mörgum blöðum, getur hann ekki stilt sig um í neðanmálsgrein við enda ritgerðarinnar að spyrja, hvern- ig annars standi á því, að þrátt fyrir þessa skaðsemi hafi þó menn, sem bæði drukku og reyktu, staðið að gáfum, siðferði og afrekum framar þeim, sem hvorugt gerðu. Til þess sé engu öðru að svara, segir hann sjálfur, en að þeir hefðu líklega verið miklu meiri og betri menn, ef þeir hefðu hvorki reykt né drukkið! Pað er hægra að segja það en að sanna. Honum þykir það jafnvel líklegt, að Kant hafi skrifað stirt mál af því, að hann reykti svo mikið! Um heimspeki Kants talar Tolstoj ekki, en hana kann hann sjálfsagt ekki að meta heldur en annað í ríki vísinda og lista. Fróðlegt er líka að athuga æfiferil Tolstojs sjálfs; meðan hann drakk, reykti og naut lífsins og var tíðum framtakslaus og önugur, eins og hann sjálfur segir, samdi hann skáldrit þau, er gerðu hann frægan og munu halda nafni hans við líði; en þegar hann hætti því og varð »góður«, tók hann að leika speking og spámann, og hefur síðan skrafað og skrifað um alt á himni og jörðu, og það einatt af litlu viti og minni þekkingu. Par sem hins vegar vínnautn er bönnuð eða á sér ekki stað, þar er ætíð eitthvað annað, sem fyllir það skarð. Dæmi þess má finna hvarvetna í söguntii og mannlífinu. Ekki þarf annað en minna á Kína (ópíumsnautn) eða Múhameðstrúarmenn; þeir af- neita víninu stranglega, en neyta hassish og lifa í fjölkvæni. Meðal mentaþjóðanna má finna hið sama; þeir taka upp einhver æsinga- eða deyfingameðöl, andleg og líkamleg; mætti þar til nefna trúarofstæki og hjátrú (andatrú og annað kukl), sjúklega löngun í glæpasögur og annað þess konar; hefur hinn merki þýzk- ameríski sálarfræðingur, prófessor Húgó Múnsterberg, skýrt það greinilega í ritgjörð um vínsölubannið í Ameríku fyrir nokkru. Sjálf bindindishreyfingin verður og stundum að ofstæki, og má þá minst í milli greina, hvort hún hefur betri áhrif á menn en ofdrykkjan. Eg skal t. d. benda á ófagra lýsingu af bindindis- mönnunum sumum í Noregi, sem dr. Hjálmar Christensen gefur í bók sinni »Det nittende Aarhundredes Kulturkamp í Norge«. Og ekki er mér grunlaust um, að þær pólitisku æsingar, sem átt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.