Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1910, Blaðsíða 48

Eimreiðin - 01.09.1910, Blaðsíða 48
204 og niður, staðið jafnhátt yfir meðal Englendingi, eins og Englend- ingar nú yfir Hottentottum. Slíkur samjöfnuður er þó ekki rétt- látur, því í Aþenuborg voru verkmenn allir þrælar og ekki taldir með fólki; svo Aþenumenn ætti þá að bera saman við borgara- stétt Englendinga, og er þá hætt við, að aftur mundi hallast á hina sveifina. Pað er ekki annað sjáanlegt, en að lýðstjórnarfyrirkomulag með öllum þess ókostum og fáu kostum verði enn drotnandi um langan aldur að minsta kosti í orði kveðnu. Enda verður víst langt í land, þangað til allir verða ánægðir. Sumir prédika líka nú á tímum, að menn eigi að vera óánægðir, því framfarirnar skapist af þörfinni; en ekki virðist sú skoðun vel geta samrýmst við kenninguna um »hina mestu farsæld fyrir sem flesta«, því þar sem þarfirnar eru fæstar, eru menn vanalega ánægðastir og far- sælastir. Yfirleitt var kenninga moldrykið svo mikið á 19. öld, að það var varla að búast við öðru, en að sumir rugluðust nokk- uð í höfðinu. Vér lítum með lotningu og aðdáun á framfarir stór- þjóðanna, en hugsum sjaldan um gallana. Stjórnarástandið í mörg- um löndum varpar dimmum skugga á framtíðarhorfur ýmsra þjóða, og lítil útsjón til nokkurs bata. Af því óstand þetta hefir mikil áhrif á hugsunarhátt og lífsskoðun almennings, mun ég til dæmis minnast á nokkur atriði hins opinbera lífs. Hugsjónamennirnir fengu óskir sínar uppfyltar á seinni hluta 19. aldar, þingræðisstjórn í flestum löndum. Pað var heldur ekki nema rétt og eðlileg hugmynd, að þjóðirnar sjálfar fengi að ráða málum sínum til lykta; en fæstar voru enn nægilega þroskaðar til að taka á móti slíkri breytingu. Til þess að vel fari, verður almenningur að hafa vit á að velja vitrustu og beztu mennina til að annast hag sinn; en það vill nú verða misbrestur á því. Menn krefjast þess, að járnsmiður kunni að smíða skeifu og járna hest, að sláttumaður kunni að slá o. s. frv., en allir þykjast færir til þess, að fást við pólitík og stjórna löndum, þó þeir aldrei hafi lært neitt þar að lútandi. Eduarcl Gibbon (1737—1794), söguritarinn mikli, hinn frjálslyndasti maður, var uppi rétt fyrir stjórnarbyltinguna miklu. Pá var mjög tíðrætt um það meðal fræðimanna, að það hlyti að verða bót allra meina, ef lýðurinn fengi fullkominn at- kvæðisrétt; en Gibbon kvað lítinn hagnað mundu verða af því, lýðurinn mundi altaf kjósa skjalarana og hina háværustu. Pykir sú spásögn hafa ræzt undarlega vel.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.