Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1910, Side 51

Eimreiðin - 01.09.1910, Side 51
207 kirkjunnar í raun réttri fullkomin harðstjórn. Á fyrri öldum voru gildi og iðnaðarskrár bygð á jafnrétti og sjálfstjórn, en þeim var stjórnað með harðri hendi og nákvæmar fyrirskipanir um hvaðeina. Alveg eins hafa þingin á vorum dögum með allskonar fyrir- skipunum og skattaálögum leyft sér á margan hátt að hefta frelsi og sjálfstæði einstaklinganna, og ganga lengra og lengra í því með hverju ári alt í frelsisins eigin nafni. Ef jafnaðarmenn gætu framkvæmt hugsjónir sínar, hlyti ríki þeirra og stjórnarfar að verða enn ófrjálslegra og harðara en stjórn miðalda-kirkjunnar. í kirkjunni voru líka lærðustu og beztu mennirnir oftast valdir til hinna æðri embætta, en foringjar jafnaðarmanna eru vanalega af alt öðru sauðahúsi. Yfirleitt stríðir það beint á móti náttúru- lögunum, að gera alla jafna; er því óframkvæmanlegt og heimska, að byggja framtíðarvonir á slíku. Eað var sagt um Forn-Grikki, að þeir elskuðu frelsi — þ. e. hver vildi hafa frelsi fyrir sig, en kærði sig ekki um frelsi fyrir hina; og eitthvað líkt mun nú mega segja um flestar þjóðir og flesta mannflokka. Oftast er frelsið innifalið í því, að menn vilja fá leyfi og vald til þess, að neyða hugsjónum sínum upp á aðra; hver flokkurinn þykist eiga heimtingu á því, ef hann hefir svolítið meiri höfðatölu, að kúga hina til þess, sem þeir sjálfir telja fram- farir. Flokksfylgið hefir jafnan mikil og heillandi áhrif á marga menn. Skoðanir þær, sem jafnt og þétt eru bornar fram, berjast og dengjast inn í hugskotið og æsa tilfinningarnar, unz staðhæf- ingar verða að trúarsetningum. Pegar allur umheimur er gripinn af einhverri hugmynd, er örðugt að standa á móti; einstaklingur- inn þybbist við, þrætir og mótmælir, en vinir hans fylgja flokknum, blaðið líka, alt loftið er fult af hugmyndinni, maðurinn linast smátt og smátt, dómgreindin sofnar og að lokum trúir hann hverju sem vera skal. Duglegir æsingamenn geta því opt komið ótrúlega miklu á stað og fengið heilan múg til að framkvæma verk, sem hver einstaklingur skammast sín fyrir á eftir, þegar hann hugsar málið í einrúmi. Pað er óhamingja fyrir allar þjóðir, en mest fyrir smáþjóðir, sem eru fátækar og kraftasnauðar, þegar í landinu myndast harð- snúnir óaldaflokkar af mönnum, sem hafa pólitík að atvinnu, lifa eingöngu á þingmensku, bitlingum, embættum, sem þingin ráða, og á ýmislegu pólitísku bralli. Pað liggur í augum uppi, að það eru ekki beztu mennirnir, sem velja sér þenna atvinnuveg eða

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.