Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1916, Page 5

Eimreiðin - 01.01.1916, Page 5
5 samskonar geisla eins og þeim eru eiginlegir. Ljósið hefir þann eiginleika, að samskonar bylgjur eyða hver annarri og framleiða myrkur; eins er um hljóðbylgjur, ef þær mætast samstiltar og jafnstórar, þá eyðir hver tónninn öðrum, og niðurstaðan verður þögn; sævarbylgjur geta líka mæzt og orðið ládeyða og sléttur sjór (interferms). Til þess að kanna ljósbönd ýmsra efna eru notuð verkfæri af ýmsri gerð, sem kölluð eru spektróskóp, samsett af þrístrendum glerstuðlum, smásjám, mælingartækjum og sjón- pípum.1) Verkfæri þessi hafa á íslenzku verið kölluð »litsjár«, og má vel við það una, þó það sé ekki réttnefni; því með verk- færunum kanna menn ekki liti, heldur línur í ljósböndunum, og mætti því heldur kalla tæki þessi >ljósrákasjá«, en það orð er fremur langt og óþjált. Spektróskópið hefir afarmikla þýðingu fyrir efnafræðina, og þó einkum fyrir stjörnufræðina; með því hafa efnafræðingar fund- ið smáskamta af afar-sjaldgæfum efnum, og sum ný frumefni hafa uppgötvast með þessu verkfæri í fyrstu. Með ýmsum útbúningi má gera ljósband sólar mjög langt, og hafa þá í því fundist mörg þúsund dimmar línur, sem samsvara lituðum línum ýmsra frumefna. Línur þessar eru mjög mismunandi gildar og misþéttar í ýmsum köflum ljósbandsins. Með mikilli nákvæmni hafa menn ákveðið legu þessara ráka og reiknað bylgjuhreyfingar hvers geisla, og er þetta alt, úr því það er einu sinni fundið, óbreyti- legt og í óyggjandi skorðum. Sum frumefni einkennast af fáum línum í ljósbandinu, t. d. natríum, kalíum, blý; en önnur hafa fjölda ráka, t. d. járn yfir 2000; sumar línur hafa sterkan lit, sumar eru daufar. Sum efni einkennast á litnum í loganum, án nokkurrar litsjár, og eiga líka línur með sama lit í ljósbandinu. Efnið strontíum hefir sterkrauðan lit og er oft notað í flugelda; natríum, sem er aðalefnið í matarsalti, hefir fagurgulan lit; mag- nesíum brennur með afar-björtum loga og er notað við ljósmynd- un í myrkri, Á ýmislegum áhrifum efna á loga bygðu steina- fræðingar fyrrum, löngu áður en spektróskóp þektust, blásturs- pípurannsóknir sínar, til þess í flýti að komast að efni steina. Til þess að geta rannsakað ljósbandið sem nákvæmast og séð allar hinar smæstu rákir, nota menn geislabrotsgrind (diffrak- v) 1 »Andvara« VIII, 26—36 hefi ég all-ýtarlega lýst ljósbandsrannsóknum, og vísa þeim þangað, er nokkuð nánari fræðslu vilja fá.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.