Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1983, Page 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRUAR1983.
3
Birgir sigraði í
ískrossakstri
Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur
efndi til ískrosskeppni um helgina. Fór
hún fram á Leirtjöm við Ulfarsfell og
mættu tólf bílar til leiks.
Sigurvegari í úrslitariöli varð Birgir
Bragason á Skoda 130 RS. Ok hann
brautina á 3.06 mínútum, en lengd
hennar var um átta hundruð metrar og
voru fimm hringir keyrðir um hana.
Næstur kom Kristinn Svansson á Dat-
sun 160 J á sekúndu lakari tíma en
Birgir. I þriðja sæti hafnaði Magnús
Baldvinsson á BMW 2002 á tímanum
3.09. Síðastur í úrslitariöli kom Rík-
haröur Kristinsson á Lödu 1200. Tími
hans var 3.13, en þess má geta að Rík-
harður er nýliöi í ískrossi. Keppnin um
helgina var frumraun hans í ískross-
akstri.
Keppnin á Leirtjöm gefur stig til
íslandsmeistaramótsins í ískrossi. Er
þetta önnur af fimm keppnum sem
ráðgert er að halda í ískrossi á þessu
ári. Kristinn Svansson er kominn með
flest stigin eöa 27. Næstir honum em
Birgir Bragason og Þórður Valdimars-
son meö 20 stig.
Þess má geta að ískrosskapparnir,
Jón Ragnarsson og Þórður Valdimars-
son, þurftu báðir frá keppninni að
hverfa vegna bilana í bilum sínum.
Headpakkning fór í bíl Jóns og Þórður
braut gírkassa í sínum bíl í upphafi ís-
krossakstursins á Leirtjörn. -SER.
Frá málþinginu i Norræna húsinu. Þór Vilhjálmsson er i ræðustóli að fjalla um mannréttindayfirlýsingu
Evrópuráðsins. DV-mynd:
Hellissandur: RKÍ ætlar að stofna
Símastrengurinn mannréttindanefnd
slitnaði tvisvar
Símastrengurinn til Hellissands
slitnaði í tvigang um síðustu helgi.
Á föstudagsmorgun klukkan hálf tíu,
þegar verið var að hefla Olafsvíkur-
enni, sleit veghefillinn símastrenginn
og var símasambandslaust fram yfir
miðnætti. Á laugardaginn var fengin
grafa til að moka yfir símastrenginn
þar sem hann stóð upp úr, en þá tókst
Sauðárkrókur:
Opnun
áfengis-
útsölu
samþykkt
Ibúar Sauðárkróks samþykktu í
atkvæðagreiöslu á laugardaginn að
opnuö skyldi áfengisútsala í kaup-
staðnum. Voru 603 samþykkir og 403
mótfallnir en 14 seölar vom auðir og
ógildir.
Að sögn Þórðar Þórðarsonar, bæjar-
stjóra á Sauðárkróki er hér aðeins um
viljayfirlýsingu að ræða, því að það er
á valdi fjármálaráðuneytisins að taka
endanlega ákvörðun.
Þetta er í þriðja sinn sem Sauðár-
króksbúar greiða atkvæði um opnun
áfengisútsölu. Árin 1974 og 1979 var
það einnig gert, og munaði aðeins
fjórum atkvæðum í síöara sinniö að
opnun yrði samþykkt.
-PÁ.
Gunnar
Kvaran á
háskóla-
tónleikum
Þrettándu hádegistónleikar Tón-
leikanefndar háskólans verða í
Norræna húsinu á morgun kl. 12.30.
Þar leikur Gunnar Kvaran á
knéfiðlu. Á efnisskránni em knéfiðlu-
samstæður eftir Johann Sebastian
Bach, nr. 1 í C-dúr og nr. 2 í D-moll.
Gunnar Kvaran er Reykvíkingur.
Hann stundaöi nám við Tónlistarskól-
ann hjá Einari Vigfússyni og síðan
framhaldsnám í Kaupmannahöfn hjá
Erling Blöndal Bengtson.
Að loknu námi dvaldist Gunnar um
árabil áfram í Kaupmannahöfn en
settist aftur að á Islandi fyrir u.þ.b.
tveimur árum. -PÁ.
ekki betur til en svo að hann slitnaöi í
annað sinn. Viðgerðin tók þó ekki nema
tvær klukkustundir, enda var
viðgerðarflokkurinn, sem komið hafði
frá Reykjavík daginn áður, ekki farinn
enn.
Það er mjög bagalegt þegar síma-
strengurinn í Olafsvíkurrenni slitnar
því að þá fer einnig fjarritasamband
Loranstöðvarinnar út, en stöðin þarf
að vera í stöðugu sambandi við Kefla-
víkurflugvöll.
Ibúar hér hafa verið að hamra á þvi
viö Póst og síma frá árinu 1970 að fá
símaviðgerðarmann á utanvert
Snæfellsnes. Þetta er aö vísu í fyrsta
sinn sem strengurinn slitnar á þessu
ári, en það gerðist oft á síðasta ári. Það
má varla hefla veginn fyrir Ölafs-
víkurrenni, þá fer strengurinn í
sundur. Það eina sem virðist duga er
að hafa radíósamband á meðan beðið
er eftir að nýi vegurinn komist í
gagnið.
ÖEF/JH Hellissandi.
Rauði kross Islands efndi til
málþings um mannréttindi og
mannúöarlög í Norræna húsinu síðast-
liðinn laugardag. Um 80 manns sátu
þingið sem var öllum opið.
Að loknu ávarpi formanns Rauða
krossins, Benedikts Blöndal, voru flutt
sex erindi. Guðmundur Eiríksson þjóð-
réttarfræðingur fjallaöi um mann-
réttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóð-
anna; Þór Vilhjálmsson, forseti
Hæstaréttar, flutti erindi um mann-
réttindayfirlýsingu Evrópuráðsins;
dr. Gunnar G. Schram prófessor ræddi
um tillögur stjórnarskrárnefndar um
mannréttindaákvæði; dr. Páll Sigurðs-
son dósent f jallaði um Genfarsáttmál-
ana; Olafur Mixa læknir fjallaði um
stöðu heilbrigðisstétta á ófriðartímum,
og loks flutti Hrafn Bragason dómari
erindi um mannréttindasamtökin
Amnesti Intemational.
Fram kom í upphafsávarpi Bene-
dikts Blöndal aö til stæði að Rauði
kross Islands setti á stofn íslenska
mannréttindanefnd.
-KMU.
Blönduvirkjun:
Framkvæmdir hefjast
í ágúst næstkomandi
„Áætlaöeraðvinna hefjist viðfyrsta
áfanga Blönduvirkjunar í ágúst næst-
komandi, með þeim fyrirvara, að
heimild fáist til lántöku til þessara
framkvæmda,” segir Halldór Jóna-
tansson, aðstoðarframkvæmdastjóri
Landsvirkjunar.
Þessi fyrsti áfangi er bygging
stöðvarhúss neðanjarðar og jarð-
ganga. Þó er ekki fullfrágengið hvort
stöðvarhúsið verður neðanjarðar, en
að sögn Halldórs hnígur allt í þá áttina
aðsvo verði.
Nýlega gekk Landsvirkjun frá for-
valsgögnum til verktaka og er þeim
gef inn kostur á aö sanna rétt sinn til aö
gera tilboð í verkin. Utboðsgögn verða
ekki send út fyrr en í apríl. Allt er þetta
gert með þeim fyrirvara sem áður er
nefndur.
-SþS.
Parftu
ADSTOD?
• Rádgjöf eöa hönnun
• Jarövinnsluverktaka
• Byggingarverktaka
• Pípulagningarverktaka
• Raíverktaka
• Múraraverktaka
• Málaraverktaka
• innréttingaverktaka
Þetta er fyrirtœki sem leitast við ad
veita góða þjónustu þar sem ábyrgð,
ráðvendni og þekking em höíð í
fyrirrúmi.
Fyrirtœkiö er eingöngu í samvinnu við
íullgilda fagmenn:
• Hurðarsmiðjur
• Gluggasmiðjur
• Dúklagningameistara
• Stálsmiðjuverktaka
• Hreingemingarverktaka
• Flutningsverktaka
• oil oiL
Tilboð—verksamningar—greiðsluskilmálar
Fyrirtœkið staríar almennt á sviði
íramkvœmda og breytinga jaínt í
gömlu sem nýjum húsum.
Q VERKTAKAIÐNADUR HF
SKIPHOLT119
SIMAR 29740 44413 26505