Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1983, Page 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRUAR1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Heimsmetí
hnattflugi
Þrítug bandari.sk kona, Brooke
Knapp, hefur sett nýtt met í hnatt-
flugi. Hún flaug Lear þotu um-
hverfis hnöttinn á 50 klst. 22 mín.
og 42 sek. Fyrra met í þessum
flokki flugvéla átti bandaríski flug-
maðurinn Henry Baird, 65 klst. 38
mín. og 49 sek. Þaö met var sett
1966. Fyrir fimm árum sagðist
Brooke Knapp hrædd við að fljúga.
Capote laðar að sér innbrotsþjófa.
17 sinnum
brotist inn hjá
rithöfundinum
Rithöfundurinn Truman Capote
þótti sýna glöggan skilning á innra
eðli glæpamanna, þegar hann
skrifaði bókina frægu „Með köldu
blóði”. — Það hefur komið honum
að litlu haidi í einkalífinu því að á
árinu 1982 var sautján sinnum
brotist inn í íbúöir hans i Sviss,
Kaliforníu og New York.
Tveirhrapa
Tveir ungir fjallgöngumenn
hröpuðu til bana um helgina þegar
hópur skólanemenda var í fjall-
göngu í Craig-yr-yfsa fjalli í Snow-
don-fjöllum í Wales. Sjö aðrir voru
lagöirinnáspítala.
Það var 16 ára skóladrengur sem
hljóp rúma átta kílómetra til
byggða til að ná í hjálp. Björgunar-
sveitir og þyrlur leituðu lengi á
svæöinu áður en hinir meiddu f jall-
göngumenn fundust í hlíðum fjalls-
ins sem er 1000 metra hátt. Seinna
fundustsvo tvö lík.
Skrílslætiút
afþvottaefni
Rúður voru brotnar og greipar
látnar sópa um verslanir í Títógrad
í suðvesturhluta Júgóslavíu þegar
þvottaefni barst loks í verslanir
eftir eins mánaðar vöntun á þeim
varningi.
Myndast höföu langar biðraöir
og troðningur þar sem börn og
gamalmenni í innkaupum féllu í
yfirlið í þrengslunum og þegar
tilkynnt var að þvottaefnið væri
uppurið strax á fyrsta degi varö
allt vitlaust.
Víða í Júgóslavíu eru gefnir út
skömmtunarseðlar fyrir kaffi,
þvottaefni og matarolíu, sem lengi
hefurverið hörgullá.
Saumakona
tekinaflífi
Fertug saumakona var hengd í
Kuala Lumpur um helgina fyrir að
hafa níu handsprengjur undir
höndum. Hún er fyrsta konan sem
fer í gálgann fyrir brot á neyðar-
ástandslögum sem gera ólöglega
vopnaeign aö dauðasök. Tíu hafa
verið teknir af h'fi á nýja árinu. 40
bíða aftöku.
Kongress
vann í
kosning-
um Assam
— kjörsókn mjög dræm
meðal hindúa
Norðmenn halda áfram tilraunum með sjálfstýrð mælitæki til eftirlits með hraðakstri í umferöinni og brotum við
umferðarljós.
Undir alsjáandi
auga „stóra bróður"!
,^Stóri bróðir sér þig” var framtíðar-
sýn Orvelles í sögunni „1984” og er nú
oröin veruleiki í Noregi, þar semkoma
skal upp sjálfstýrðum mæhtækjum til
eftirlits í umferðinni.
Geröar hafa veriö tilraunir meö
þessi tæki, sem taka sjálfkrafa myndir
af ökutækjum umferðarlagabrjóta
þegar þeir fara yfir hraðatakmörkin
eöa aka yfir á rauðu ljósi. Nú á að setja
upp fimmtíu slík tæki í fimm fylkjum
Noregs.
Um leiö á aö beita viðurlögum viö
ökumenn þessara bíla. Þeir geta búist
við aö fá í póstinum gíróseðla þar sem
þeim gefst kostur á aö sættast á sektar-
greiðslu fyrir brot sem hiö alsjáandi
auga „stóra bróður” stóðþá að.
Miklar umræður hafa verið í Noregi
vegna þessara tækja, og sýnist sitt
hverjum. Menn fella sig ekki viö
tilhugsunina um að ríkissjóður skapi
sér þama tekjulind af víxlsporum
borgaranna og vilja sporna gegn því,
að afsönnunarbyrði veröi færð á
hendur bíleigendum sem kannast ekki
viö aö hafa setið undir stýri þegar
„stóri bróðir” tók myndina af bílnum á
rauðuljósi.
Yfirvöld hafa enda fariö sér hægt við
þessar nýjungar, og fyrst um sinn,
verða tækin ekki sett upp nema á tíö-
ustu slysastööunum.
Það horfir til sigurs Kongressflokks
Indiru Gandhi í kosningunum í Assam,
en kjörsókn var afar dræm, enda
mönnum hótaö dauöa ef þeir sæjust við
kjörstaðina.
— Um eitt þúsund manna valköstur
eftir óeirðir síðustu tveggja vikna og
fjöldamorðin á föstudag vitna um hver
alvara fylgdi.
Indira Gandhi er í heimsókn í dag í
Gauhati, höfuðstaö Assam, og í Nellie,
sem hggur miðsveitar þar sem fjölda-
morðin voru framin.
Stjómarandstaðan sakar Indiru um
að hafa vanmetið andstööu innfæddra í
Assam við kosningarnar eða að hún
hafi kaldrifjað og yfirvegað reiknaö
sigurlíkur Kongressflokksins meiri í
óeiröunum. Raddir vom uppi um að í
siöuðum ríkjum segðu þjóöarleiðtogar
af ‘sér undir svipuðum kringumstæð-
um.
Indira hefur hafnað allri ábyrgð á
blóðsúthelhngunum og lýsir henni á
hendur hatursmönnum innflytjenda í
Assam.
Kongress sýnist hafa unnið 27 af 31
fuhtrúa á landsþingiö og meirihluta
126 fulltrúa sem kjörnir voru á fylkis-
þingið. Kjörsókn hindúa var mjög
dræm. I Bihpuriakjördæminu kusu
aðeins400 af 64 þúsund á kjörskrá.
Kyrrsettur
í Zimbabwe
Nkomo og Mugabe, fyrrum samherjar, en hinn siðarnefndi leyfir Nkomo ekki að
fara úr landi.
Anker gagth
rýndur inn•
anflokks?
Stjórnarandstöðuhlutverkið viröist
eiga Ula viö Anker Jörgensen, fyrrver-
andi forsætisráðherra Danmerkur, ef
marka má skrif Extrabladet í gær.
Blaðið heldur því fram að ýmsir for-,
ystumenn sósíaldemókrata vUji nú
losna við Anker þar sem hann sé ekki
fær um aðstjórua flokknumí stjórnar-
andstöðu.
Gagnrýnendur hans halda því fram
aö hann hagi sér eins og hann sé for-
sætisráðherra. Hann einangri sig á
skrifstofu sinni og geri sér ekki grein
fyrir því að borgaraflokkamir séu sí-
fellt að auka fylgi sitt.
Eftir því sem Extrabladet segir hef-
ur framkoma Ankers valdið óróleika í
þingflokki sósíaldemókrata. Jafnvel
nánir samstarfsmenn hans séu famir
að efast um að hann sé rétti maðurinn
til að leiða flokkinn þar sem hann sé al-
veg bhndur á að hægri öflin vinni stöð-
ugt á. Þykir þeim Paul Schliiter, for-
sætisráöherra og formaður íhalds-
flokksins, skapa sér óvenjulega sterka
stöðu í stjórnmálabaráttu þjóöarinnar
á meðan stjórnarandstaðan sefur á
verðinum.
GAJ — Lundi.
Joshua Nkomo, sem áöur var
samherji Mugabes í skæmhemaði
gegn yfirráðum hvítra í Ródesíu og
meöráðherra í fyrstu blökkumanna-
stjóm Zimbabwe, var stöðvaöur fyrir
helgi, þegar hann var á leið úr landi.
Var hann í haldi og yfirheyrslu lögregl-
unnar í átta klukkustundir.
Lagt var hald á vegabréf hans og
farseöla og öryggismálaráðherrann,
Emmerson Munangagwa, sagði blaða-
mönnum, aö Nkomo hefði reynt að
laumast úr landi undir föisku nafni.
Ennfremur var dregin í efa fullyrðing
Nkomos um að hann væri á leið á
Ian Smith, fyrrum forsætisráðherra
Ródesíu, fær ekki að fara úr landi.
ráðstefnu í Prag. — „Rannsóknir
okkar sýna að hann var á leið til Suöur-
Afríku,” sagði ráðherrann.
„Þetta em einskærar lygar. Maður-
inn bullar,” sagði Nkomo, þegar
fréttamenn bám ummæli ráðherrans
undir hann. — „Hvers konar ríkis-
stjóm er þetta sem gmndvallar starf
sitt á lygum, órökstuddum grun-
semdum ogbulli?”
Eftir því sem fréttamenn komust
næst hafði farangur Nkomos verið
merktur til sendingar til London á leið-
inni til Prag en þar stendur fyrir
dymm ráöstefna Heimsfriðarráðsins
og er Nkomo varaforseti þess.
Nkomo fullyrðir að vegabréf hans og
farseðlar hafi veriö með hans rétta
nafni.
Öryggisráðherrann vildi ekki
upplýsa fréttamenn um hvaða dulnefni
Nkomo hefði notað á skilríkin, en sagði
að stjóm Mugabes hefði engan hug á
að ofsækja leiðtoga Zapu-flokksins.
I Zimbabwe setja menn þetta feröa-
bann, sem Nkomo verður fyrir, í sam-
band viö réttarhöld yfir tveim
aðstoðarmönnum Nkomos sem sakaðir
hafa verið um samsæri gegn ríkinu.
Mennirnir vom áður foringjar í
skæruliðasveitum Zapu og annar varö
yfirmaður í stjórnarher Zimbabwe viö
stjórnarskiptin.
Annar forvígismaður stjórnarand-
stöðunnar í Zimbabwe, Ian Smith
leiðtogi hvítra manna og fyrrum
forsætisráöherra Ródesíu, er í feröa-
banni. Hann var sviptur vegabréfi sínu
á síðasta ári eftir aö hann haföi á
ferðalagi í Bandaríkjunum, gagnrýnt
stjóm Mugabes.