Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1983, Síða 3
DV. ÞRIÐ JUDAGUR1. MARS1983.
3
Það er allt i óvissu i videomálunum, enginn veit hvað má og kapalkerfi. Myndin er frá borgarafundinum i Broadway á
bvað má ekki, segir einn af viðmælendum DV sem rekur sunnudag. DV-myndir Gunnar V. Andrésson
Vestmannaeyjar:
Stöðvumst sjálf krafa
„Eg veit satt að segja ekki hvað er til
ráða,” segir Guðni Grímsson í
Vestmannaeyjum, en hann rekur
videokerfi í Vestmannaeyjakaupstað.
„Við vorum nýbúnir að gera samn-
ing við Video-son um dreifingu á efni
svo að þetta er að heita stopp hjá okkur
vegna efnisskorts. Við fáum ekki leigt
hjá videoleigunum hér því að þeir aðil-
ar sem útvega þeim efni setja það skil-
yröi að þeir leigi ekki út til kapalkerfa.
Mér finnst þessar aðgerðir yfirvalda
gegn Video-son vera skerðing á
persónufrelsi manna. Þaö er hart að
menn skuli ekki fá aö leysa þau mál
saman hvað þeir vilja horfa á i stað
þess að hver og einn kaupi sér video-
tæki,” segir Guöni Grímsson, Vest-
mannaeyjum.
-SþS
Hamraborg:
Held áfram og sé til
„Ég er ekki búinn að gera það upp
við mig hvað ég geri í málinu,” segir
Hannes Kristinsson, en hann rekur
videokerfi í fjölbýlishúsinu við Hamra-
borg íKópavogi.
„Ég var hálf sjokkeraður fyrst eftir
að ég frétti af aðgerðum yfirvalda
gegn Video-son, og var þá helst á því
að hætta rekstrinum en ætli ég haldi
ekki eitthvað áfram og sjái til hvernig
málin þróast. Ég passa mig á því að
vera eingöngu með myndir sem eru lög-
legar. Annars er allt í óvissu í þessum
málum, hvað má og hvað ekki,” segir
Hannes Kristinsson, Kópavogi. -SþS
Engihjalli:
Höldum áfram en erum hálf smeykir
„Við teljum að okkar starfsemi sé
ekki rekin á sama grpndvelli og starf-
semi Video-son og því munum við
halda áfram sýningum,” segir
Sæmundur Jón Stefánsson einn af
eigendum videokerfis sem starfrækt
er í Engihjalla í Kópavogi.
„Það sem við teljum frábrugðið við
okkar strarfsemi er að við erum á
einni lóð með okkar kerfi. Vissulega er-
um við hálf smeykir við að fá á okkur
kæru en við vörumst það að brjóta lög
um höfundarrétt. Persónulega finnast
mér aðgerðir yfirvalda gegn Videoson
óréttlátar. Það er undarlegt að þetta
skuli ekki hafa verið stöðvað fyrr en
menn eru búnir að leggja út í mikinn
kostnað og vinnu,” segir Sæmundur
JónStefánsson.
-SþS
Salóme Þorkelsdóttir:
„Fagna því að ég
held mínum hlut”
„Mér finnst fyrst og fremst
umhugsunarvert hve treglega hefur
gengið aö auka fylgi kvenna í þessu
prófkjöri,” sagði Salóme Þorkels-
dóttir alþingismaður er DV leitaöi
álits hennar á úrslitum prófkjörsins.
,,Ég hef því ástæðu til aö fagna því
aö ég held mínum hlut, þriðja sæti.
Ég þakka það fyrst og fremst
ómetanlegum stuðningi sem ég hef
orðið vör við nú allra síðustu daga.
Þar eiga konur í kjördæminu stóran
hlutaðmáli.
Það eru mér vonbrigði aö Olafur
G. Einarsson virðist hafa verið lát-
inn gjalda þeirrar erfiðu stööu sem
hann hefur verið í sem formaður
þingflokksins. Að því leyti eru úrslit-
in ómakleg.
Urslit þessa prófkjörs markast
af því óréttlæti í vægi atkvæða sem verður ekki búið til lengdar,” sagði
við búum við í kjördæminu. Við það Salóme Þorkelsdóttir. ,»a
Matthías Á. Mathiesen:
„Þátttakan sýnir
styrk Sjálfstæðis-
flokksins”
kjördæmi.
„Með minni kosningu hefur mér
verið falin áframhaldandi forysta í
þingliði Sjálfstæðisflokksins í kjör-
dæminu og ég þakka þeim sem það
gerðu og mig aðstoðuðu. Það verða
hins vegar breytingar í efstu sætun-
um, nýtt fólkkemur inn.
Ég held að sú sterka staða sem
flokkurinn hefur í dag, muni leiða til
þess að við munum endurtaka
kosningaúrslitin frá 1974 og fá f jóra
menn kjörna. Niðurstaðan verði sú,
að við sem sitjum á þingi í dag verð-
um kjörin, að viöbættum fjórða
manni.
Fólk gerir sér grein fyrir að þjóð-
félagið er ímiklumógöngum;úr þeim
verður ekki komist öðruvísi en undir
styrkri forystu Sjálfstæðismanna.”
-PÁ.
„Mér finnst að þátttakan, sem var
geysimikil, sýni styrk Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi,”
sagði Matthías Á. Mathiesen al-
þingismaður, er hann var inntur álits
á úrslitum prófkjörsins í Reykjanes-
o
■o
SANTA PONSA
er sériega fallegur
baðstrandabær og einn
allra eftirsóttasti
dvalarstaðurinn
á Mallorca. Þar er iðandi
mannlíf, fjöldi verslana
veitingastaða,
skemmtistaða og
frábærar baðstrendur.
PÁSKA-
FERÐ
30. MARS 2 VIKUR
VERÐ FRA KR. 11.700,
JARDIN DEL SOL
MINIFOLIES
LUXUSVILLUR I
SÓLSKINSPARADÍS
Dvalið er í lúxusvillum (bungalows) eða ibúðum á einum fegursta og eftirsóttasta ferðamanna-
staðnum á Mallorca, Puerto de Andrtaitx.
í boði er gisting í glæsilegum villum og ibúðum.
VERÐTRYGGING:
Ef ferö er pöntuð og greidd aö fullu fyrir 15. mars 1983, festum viö verö feröarinn-
ar miðað viö þann dag. Viö veitum 5% staögreiðsluafslátt oöe greiðslukjör sam-
kvœmt nénari upplýsingum é skrifstofu okkar.
er stórglœsilegt nýtt
íbúðarhótel í Santa Ponsa,
sem var opnaö í júlí 1982.
Allar íbúðir eru meö svefn-
herbergi, rúmgóðri stofu,
baðherbergi, eldhúsi og
svölum sem snúa að sjó.
Glæsilegir veitingastaðir
og setustofur. Mjög góö
aöstaða til útivistar og sól-
baða, stór sundlaug og
Jarcjin del Sol stendur al-
veg við sjóinn.
MALLORCA - VERÐSKRÁ 1983
30/3 13/4 11/5 27/5 1516,6/7 27/7.17/8,7/9
Páskaferð
2 vikur 4vikur 17 dagar 19 dagar 22 dagar 22 dagar
MINI FOLIES
íbúð 1 svefnh. 4 i íbúð 11.700 11.700 11.900 15.200 15.400 15.500
3 í íbúð 12.200 12.200 12.900 16.900 16.800 17.100
2 i ibúð 12.800 12.800 13.900 18.500 18.900 19.100
Bungalow 1 svefnh. 4 i ibúð 13.900 13.900 13.900 16.200 16.700 16.900
3 i ibúð 14.600 14.600 14.600 17.200 17.600 17.800
2 i íbúð 16.200 16.200 16.200 18.700 19.200 19.700
JARDIN DELSOL
íbúð 1 svefnh. 4 í íbúð 13.900 13.900 13.900 16.200 16.700 16.900
3 í íbúð 14.600 14.600 14.600 17.200 17.600 17.800
2 i íbúð 16.200 16.200 16.200 18.700 19.200 19.700
Verð 15. janúar 1983.
BARNAAFSLÁTTUR:
2—5 ára kr. 4.000,00, 6 -11 ára kr. 3.000,00, 12-15
ára kr. 2.000,00.
Simi
28633
Ferðaskrifstofan Laugavegi 66.