Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1983, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1983, Side 5
DV. ÞRIÐ JUDAGUR1. MARS1983. 5 Stjórnarskrármálið: Ráðgjafar hvetja til að tillögumar verði felldar Þingmönnum Sjálfstæöisflokks og Alþýöuflokks barst nýlega bréf þar sem þeir eru hvattir til aö fella frum- vörpin um breytingar á stjórnar- skránni og kosningalöggjöfinni. Bréf þetta sömdu lögfræðingamir Jón Steinar Gunnlaugsson og Finnur Torfi Stefánsson, en þeir hafa veriö flokkunum innan handar viö undir- búning þessara frumvarpa. I bréfinu gera þeir grein fyrir af- stöðu sinni og segir þar meöal annars: „1 tillögunum er gert ráö fyrir verulegu misvægi atkvæöa iandsmanna eftir því hvar þeir eru búsettir á landinu. Enn verður sú skipan höfö á aö um 60 af hundraði kjósenda á landinu, þaö er k jósendur í Reykjavíkur- og Reykjaneskjör- dæmum, eiga aöeins aö kjósa 29—30 þingmenn af 63 eöa nokkuð innan viö helming þeirra. Er ætlunin aö halda áfram að stjórnarskrárbinda þetta misvægi atk væðanna. ’ ’ Minnt er á mannréttindayfir- lýsingu Sameinuöu þjóöanna þar sem segir til um jafnan kosningarétt, sem einnig er til vísaö í inngangi mannréttindasáttmála Evrópu. Bent er á aö Island hafi samþykkt báöar þessar yfirlýsingar og beri því aö laga löggjöf landsins aöþeim. Þá segja þeir Jón Steinar og Finn- ur Torfi aö meö misjöfnum atkvæðis- rétti sé verið aö flokka borgarana. Veriö sé aö segja aö einhverjir verðleikar manna eigi aö valda því aö þeir teljist gildari borgarar en aörir. Þetta hafi verið gert áöur er menn höfðu ekki atkvæðisrétt nema að þeir ættu nokkuö undir sér. Þá þótti ekki heldur ástæöa til aö konur mættu kjósa. Frá þessum hugmynd- um hafi fyrir löngu veriö horfiö. All- ar lýðræðisþjóðir, sem viö teljum okkur skyldar aö menningu og lögum hafi í reynd viöurkennt meginregl- una um jafnan atkvæðisrétt. Sumar þeirra hafi tekið bein ákvæöi um þetta inn í stjómarskrár sínar og önnur hafi regluna í heiöri þó hún sé ekki berum orðum bundin í stjórnar- skrá. Ekki sæmandi Aö mati þeirra Jóns Steinars og Finns Torfa er ekki annað sæmandi íslensku þjóöinni, en aö nú veröi komiö á þeirri skipan, sem aðrar - þjóöir hafa viöurkennt í þessu efni. Þeir komast aö þeirrri niðurstöðu að þaö sé siöferöileg skylda alþingis- manna aö bera þaö aö minnsta kosti undir þjóöina í þjóðaratkvæða- greiöslu, hvort menn vilji hér á landi taka upp meginregluna um jafnt vægi atkvæða. Einfaldast væri þó aö þingmenn heföu sjálfir siðferðilegt þrektilaðkomaá jöfnum atkvæöis- rétti landsmanna. Síðar í bréfinu er rætt um þær breytingar sem áætlaö er aö gera á kosningalöggjöfinni og telja þeir Jón Steinar og Finnur Torfi aö á þeim séu verulegir gallar. Fyrst er vikið aö því aö aöferðin sem beitt var viö ákvarðanatökuna sé forkastanleg. Breytingarnar hafi veriö leyföar inn- an mjög þröngra marka. Kjördæma- mörkin skyldu vera óbreytt, ekki mátti fjölga þingmönnum nema um þrjá og aö minnsta kosti fimm þing- menn skyldu koma úr hverju kör- dæmi. Fella tillögurnar Mestur hluti umræðnanna um mis- munandi útfærslur á hugsanlegum kosningaaöferöum hafi síðan miðast við, hvernig þessi eöa hinn flokkur- inn og ef til vill sérstaklega þessi eöa hinn þingmaöurinn myndi koma út. Þetta séu yfirleitt þingmenn, sem sitji í ákveönum sætum á listum flokka sinna í kjördæmunum. Á þess- um grundvelli séu svo „leikreglur lýöræöisins” ákveðnar. Sá megingalli er talinn vera á til- lögunum aö þær beri þess merki að vera smíöaðar utan um niöurstöður fyrir stjómmálaflokka sem búiö var aö ákveöa fyrirfram. Niðurstaöa þeirra Jóns Steinars og Finns Torfa í heildina er því sú aö fellaberitillögumar. -SþS Eskifjörður: Tveir slösuðust í bílveltu Bilvelta varö á Eskifiröi aðfaranótt laugardags. Fjórir voru í bílnum og slösuöust tveir þeirra allnokkuð. Bíll- inn er gjörónýtur eftir slysið. Aðdragandi slyssins var sá aö BMW bifreið var ekiö á mikilli ferð á leið til Eskifjaröar. Þegar hún nálgaöist beygjuna í svokölluöum Krók, sem er sunnanmegin í botni fjarðarins, sprakk annar afturhjólbaröinn. Viö það missti ökumaður stjóm á bílnum og fór hann nokkrar veltur. Hafnaöi hann aö lokum á stórgrýti um 80 metra frá veginum. ökumaöur og þrír far- þegar hentust út úr bílnum. Tveir sluppu meö skrekkinn en ökumaðurinn og stúlka í aftursæti slösuöust nokkuö. Hún fékk heilahristing, hann tognaöi á hálsi auk þess sem hann slasaöist á mjöðm. Þau voru flutt á fjóröungs- s júkrahúsiö á N eska upsstaö og er líðan þeirra eftir atvikum. Eins og sjá má er billinn gjörónýtur eftir slysið og með ólikindum að ekki skyldi fara verr. DV-mynd Emil Má þetta heita vel sloppiö þar sem vorunotuðbílbeltiíþessutilviki. bíllinn, nýlegur, er gjörónýtur. Ekki Emil, Eskifirði/-KÞ Mverður kátthjá öllum Pálfaum SAMAVERÐ UM ALLT LAND NÚ 8.750,- STAÐGR. VERÐ 8.320.- í yfir 20 ár höfum við selt Husqvarna 2000 saumavélina, með frábærum árangri. Husqvarna 6570 SLE er sama vélin, með öllum áorðnum breytingum til liins enn betra. Vegna gífulegrar söluauimingar á sl. ári fengum við takmarkað magn af þessari frábæru vél með stórkostlegum afslætti. All- ir landsmenn sitja nú við sama borð, sama verð alls staðar á Husqvarna 6570 SLE (selectronik). Husqvarna 6570 SLE er auðveld í notkun og hún er mun kraftmeiri en aðrar vélar. Auk þess er hún með „stop-right“ (]pið ákveð- ið sjálf í hvaða stöðu nálin á að stöðva í), þarf ekki að smyrja, auðveld að þræða og elektrónisk hraðastilling, ótal mynstur, lár gír og að sjálfsögðu állir nytjasaumar. Akranes: Þórður HjáJmsson Borgarnes: Kaupfélag Borgflrðinga Qrundarflörður: Verzlunarfólagið Qrund Stykkishólmur: Húsið Búðardalur: Einar Stefánsson Patreksjgörður: Raíbúð Jónasar Þórs ísaQörður: Póllinn Bolungarvík: Jón Fr. Einarsson Hvammstangi: Kaupfólag V.-Húnvetninga Blönduós: Kaupfólag A.-Húnvetninga Sauðóækrókur: Rafsjá Sigluflörður: Qestur Fanndal ÓlafsQörður: Valberg Akureyri: Akurvík Húsavík: Bókaverslun Þórarins Stefánssonar Kópasker: Kaupfólag N.-Þingeyinga Vopnaflörður: Kaupfólag Vopnflrðinga Egilsstaðir: Kaupfólagið Egilsstöðum SeyðisQörður: Kaupfólag Hóraðsbúa ReyðarQörður: Gunnar Hjaltason Höfn: Kristall Vík: Kaupfólag V.-8kaítfellinga Þykkvibær: Friðrik Friðriksson Hvolsvelli: Kaupfólag Rangæinga Hella: Mosfell hf. Selfoss: GÁ. Böðvarsson Vestmannaeyjar: Brimnes Keflavík: Stapafell Umboðsmenn fyrir Husqvarna saumavélar Gunnar Ásgeirsson hf. Suöurlandsbraut 16 Sími 9135200 Akurvík, Akureyri Asetning

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.