Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1983, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1983, Side 8
« DV. ÞRIÐJUDAGUR1. MARS1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd wmm. éíM, wm standa á landamærum Kosningar í Argentínu Kína og Sovétríkjanna og ekkert nema gaddavírinn aðskilur þá. Rússar og Kín- verjar vió samningaborðið Reynaldo Bignone, forseti Argentínu, tilkynnti í gærkvöldi að kosningar verði haldnar í landinu 30. október næsta haust og aö herinn muni skila af sér völdum í hendur kjörinnar rikisstjórnar30. janúar 1984. I sjónvarpsávarpi í gærkvöldi skoraði forsetinn á stjórnmálaflokka landsins að sýna ábyrgö á meðan lýð- ræðið er endurreist í landinu. Hvatti hann þá til að ganga til kosninga- baráttunnar án persónuníðs og skæt- ings eða annarra „eyöileggjandi aðgeröa”, eins og hann orðaði það. Bignone sagði að herstjómin fylgdi engum einum flokki öðrum fremur í kosningunum. — 1 fjölmiölum Argen- tínu hefur borið á ásökunum að undan- förnu um að yfirvöld drægju taum eins smærri í íhaldsflokkanna og veittu honum greiðari aðgang að sjónvarpinu en öðrum. Bignone forseti, sem herinn skipaöi forseta 1. júlí í fyrra, lýsti því yfir að hann bæri fullt traust til ráðherra sinna en heyrst hefur að herinn leggi fast að honum að víkja Jorge Wehbe efnahagsmálaráðherra úrstjóminni. Ósóttur vinning- ur Einhver sem veðjaö hafði tíu krónum á kappreiðum í Bretlandi hefur ekki hirt um að sækja vinn- inginn, og er hann þó ekkert smáræði. Heilar 500 þúsund krónur! Stjórnandi veðbankans, sem situr uppi með vinninginn, segir þetta stærsta vinning sem þeir eigi aö greiða og að líkast til viti maöurinn ekki af því aö hann hafi unnið. Sovétmenn og Kínverjar taka að nýju í dag til við samningaviöræður um bætta sambúð ríkja þeirra, en eru þögulir um hvaö þeir búast við að leiði af viðræðunum. Þær fara fram í Moskvu. Frá því aö viðræðurnar hófust í október í haust hafa ríkisstjórnir beggja lýst yfir vilja til þess að binda enda á meira en tveggja áratuga fjandsemi og taka upp eðlileg sam- skipti. Sú samningalota sem nú er hafin þykir líkleg til þess aö standa næstu þrjár vikumar að minnsta kosti. Fyrir kínversku sendinefndinni er Qian Qichen, aðstoðarutanríkisráð- herra, en Leonid Ilyichov, starfsbróðir hans, er fyrir Rússum. I fjölmiðlum í Kína og í Sovétríkjun- um er lítið gert með þessar viðræður og þeim lítið hampað. Pekingstjórnin hefur þrjár kröfur á hendur Moskvu: Að kallað verði burt herliðið frá landa- mærum Kína, aö kallað veröi heim herliðið frá Afghanistan og að hætt verði stuðningi við hernám Víetnama í Kampútseu. Almennt er ekki búist við því að Moskvustjómin veröi viö nema kannski fyrstu kröfunni og þá aöeins ef Kína lætur framvarðarsveitir sínar hörfa frá landamæmnum. Umsjón: Guðmundur Pétursson Ölafur B. Guðnason EBE bannar innflutning á selskinnum í tvö ár Efnahagsbandalagið ætlar aö banna innflutning á skinnum af selkópum í tvö ár frá næsta október að telja nema gerðar veröi róttækar breytingar á veiðiaöferöum Kanadamanna og Norð- manna. Umhverfisráðherrar EBE-landanna tíu samþykktu þetta mótatkvæðalaust í gærkvöldi á fundi í Brussel. Hverju aðildarríki var þó gefiö frjálst hvemig það framfylgir banninu, sem gengur í gildi 1. október. Jafnframt var Evrópuráðinu faliö að halda áfram viðræðum við Kanada og Noreg um vemdun selastofna og leiðir til þess að draga úr mestu grimmdinni í veiðiaðferðum. — Á ráðið að skila skýrslu af viðræðum sínum fyrir 1. september og umsögn um hvort hætt skuli við að láta banniö taka gildi. Um það verður þá gengið til atkvæða og þarf þá yfirgnæfandi meirihluta aðild- arríkja til þess að hindra innflutnings- bannið. I aðalstöövum EBE í Brussel í gærkvöldi létu menn í ljós vonir um að Kanadamenn og Norömenn mundu af- lýsa veiöunum, svo aö innflutnings- banniö yrði ónauðsynlegt. Bráða- birgöabann, sem sett var í desember sl., verður í gildi fram í október. Markaður fyrir kópaskinn hmndi þegar það bann var sett. Selveiðimenn í Noregi og Kanada segja að aðgerðir EBE hafi eyðilagt fyrir þeim 3 milljón doUara árlegar tekjur af selveiðinni og að þeir muni ekki veiða kópa þetta áriö. DreifbýUsfélk streymir til stærstu bæja sins héraðs undan ofsóknum stjómarhermanna. Grunurum fjöldamorð íZimbabwe Robert Mercer, biskup mótmæl- enda í Zimbabwe, hefur óskað eftir því við samtökin Amnesty Inter- national og Rauða krossinn að þau hlutist til um að fram fari rannsókn á meintum fjöldamorðum stjómar- hersins í Matabeland í Zimhabwe. Mercer hefur sagt fréttamönnum að borist hafi orðrómur um að her- inn beiti fólk pyntingum og taki það af lifi í leit sinni að byltingarmönn- um. Biskupinn sagðist ekki vita hvort þessi orðrómur væri sannur og þvi óskaði hann eftir rannsókn óháðra aðUa. Biskupinn talaði í nafni aUra kirkjuleiðtoga i Zimbabwe sem ræddu þessi mál á ráðstefnu i síðustu viku. Ævintýríá gönguför Breski ævintýramaðurinn, David Hepleman-Adams, er nú að undir- búa einmana gönguferð á norður- pólinn og hefur hann sett upp búðir í Eureka á EUesmere-eyju norður við íshaf ásamt tveimur aðstoðar- mönnum sínum. Hempleman-Adams segir að is- birair séu mesta hættan sem hann á eftir að mæta auk þess að hann kynni að detta niður i vök. Hann hefur sett sér það markmið að ganga frá ísröndinni að norður- pólnum, sem er um 500 kílómetra leið, vegna þess að enginn hefur komist þessa leið áður gangandl. Þeir sem áöur hafa komist á norðurpólinn hafa ýmist farið með snjóbílum eða á hundasleðum. Hempleman-Adams telur að gönguferðin muni taka 42 daga. Hempleman-Adams er kunnur fjaUgöngumaður og hefur áður klif- Isbiraír þykja vera eina hættan hjá göngumanninnm og er hún þó ekki mjög mikU. ið Everest. Aðstoðarmenn hans munu fljúga með hann að isrönd- inni í byrjun mars og síðan mun hann halda áfram einn að norður- pólnum. Háværtónlistill fyrirmagann Að hlusta á háværa tónlist á matmálstimum getur leitt til meltingartruflana og annarrar slæmsku í maga, að því er segir í frétt frá búlgörsku rikisfrétta- stofunni. í fréttinni segir að búlgarskir visindamenn hafi komist aö þeirri niðurstöðu að hávær tónlist leiði tU takmörkunar á blóðstrcymi tU magans og dragi úr framleiðslu á meltingarvökvum. „Hávær hljóm- sveit á veitingastað eyðUcggur ekki aðeins hið notalega andrúms- loft á staðnum og gerir fólki erfftt að halda uppi samræðum heldur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.