Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1983, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1983, Side 10
10 DV. ÞRIÐJUDAGUR1. MARS1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Nú fordæmir PLO hryðjuverk Yasser Arafat, leiötogi Þjóðfrelsis- hreyfingar Palestínuaraba, hefur að nýju fengið umboð til þess að kanna möguleika til friðsamlegrar lausnar á deilu Austurlanda nær. Tókst honum að halda svo frið við sam- herja sína aö enginn klauf sig út úr samtökum PLO og þótti þó liggja nærri því um tíma. En harölínumennirnir í samtökun- um munu hafa vakandi auga meö hverju fótmáli Arafats þegar hann fetar þá braut sem þeir telja að útlagaþingið hafi lagt. Þinghald „þjóðarráðsins”, eins og það er kall- að, fór fram í Alsírborg og stóð í níu daga. Því lauk í síöustu viku. Þjóöarráðið er skipað 384 fulltrú- um sem, eins og á fleiri ámóta samkomum, má draga í nokkra ólíka skoöanadilka. Síöustu dagana, áður en ráðstefnan hófst í Alsírborg, höföu verið greinilegir flokkadrættir meðal fulltrúanna því að menn voru mis- jafnlega ánægðir meö forystu PLO eins og gengur. Margir hinna bar- dagaglöðustu hafa gagnrýnt harð- lega hvemig Arafat hefur haldiö á málum Palestínuaraba, og einkan- lega hafði óánægjan magnast eftir innrás Israelshers í Líbanon sem skæruliðasveitir PLO höfðu farið halloka fyrir. Auðvitað hafðí brott- flutningurinn frá V-Beirút veriö meiriháttar áfall í sögu PLO-barátt- unnar gegn Israel og fjöldamorðin á Palestínuaröbum, sem fylgdu í kjölfarið, voru verra en salt í þau sár. A ráðstefnunni fékkst þó mála- miðlun um mótun þeirrar stefnu sem fylgja skal eftir að PLO hefur misst sinn aðalvettvang og bækistöövar í Líbanon. Þá málamiðlun túlka bæði fylgismenn Arafats og svo hans helstu gagnrýnendur sem sigur fyrir málstað sinn. Stuðningsmenn Arafats, sem mót- atkvæðalaust var endurkjörinn leiö- togi samtakanna (þaö geröi 14 manna framkvæmdastjórn samtak- anna), vilja þakka honum það að ekki skyldi koma til klofnings milli Fatah-hreyfingarinnar og hinna rót- tækari hópa sem hvattir eru áfram og studdir af Sýrlandi og Líbýu. Þeir vilja túlka ályktanir á þá lund að þar hafi ekki veriö lokað neinni leiö sem forystan kann að velja til friöar í Austurlöndum nær. Róttæklingar bera engar brigöur á það að Arafat megi þakka aö eining hélst. Segja þeir þaö einmitt bera vitni persónufylgi Arafats og áhrifa sem engum öðrum meðal Palestínu- araba tjói að keppa við — fremur en að menn hafi lagt blessun yfir stefnu hans. Þeir túlka ályktanir sem áréttingu Arafat, sem andurkjörinn var leiðtogi PLO á útlagaþingi Palestinuaraba, i samræðum við aðra foringja skæruliðahópa samtakanna. á því markmiði að stofnað verði sjálfstætt ríki Palestínuaraba undir forystu PLO og aö áfram verði neitað að viöurkenna gyðingaríkið í Palestínu. — Þungi umræðnanna á ráöstefn- unni, þar sem oft hitnaði í kolunum, lá á tveim friðartillögum sem komiö hafa fram eftir brottflutning PLO frá Beirút. Þjóðarráðið vísaði frá sér áskorun Reagans um stofnun sjálfstjórnar- ríkis Palestínuaraba á vesturbakka Jórdanár og á Gazasvæðinu (hvort tveggja hernumið af Israelum), sem stæði í tengslum við Jórdaníuríki. — Afgreiðslu tillögunnar túlka Arafats- menn sem svo að skilinn hafi veriö eftir opinn möguleiki á því að tillag- an gæti komið til álita ef henni yrði breytt. Harðlínumenn túlka það hins vegar svo aö algerlega hafi verið hafnaö tilburðum Bandaríkjastjórn- ar til að hlutast til um málefni Austurlanda nær með ameríska hagsmuni efsta í huga. Hin tillagan var frá Arababanda- laginu komin og þjóðarráðið sam- þykkti forsendur hennar sem lág- markskröfur fyrir sáttum í Austur- löndum nær. Þykir sú samþykkt athyglisverðust úr störfum ráðstefn- unnar. Tillagan miðar að stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis, og íað að því, að til greina kæmi að semja um öryggi Israels út frá landamærum þess, eins og þau voru fyrir sex daga stríðið 1967. Að því síðasta veittust róttæklingar harðlega. Með samþykktinni lét þjóðarráðið þó fylgja áréttingu á þörfinni fyrir vopnaða baráttu Palestínuaraba, og jafnframt stæöi sem fyrr sú stefna PLO að viðurkenna ekki Israel. Þessi samþykkt þjóðarráðsins orkar að vísu ekki langt áleiðis til friðar í þessum heimshluta því Isra- elar hafa fyrir sitt leyti hafnað báöum þessum tillögum Reagans og Arababandalagsins. Það var ekki laust við aö utanaðkomandi lyftu brúnum þegar þeir sáu aðra samþykkt þjóöarráðs- ins þar sem hryðjuverk voru for- dæmd. Það var afgreitt umræðulaust og fylgir engin túlkun, enda augljós- lega þar höföaö til almenningsáUts- ins á Vesturlöndum þar sem PLO stefnir aö því að efla áht sitt. Finnskum kommum spáð fylgistapi — í kosningunum síðar í þessum mánuði Stærstu breytingamar sem búist er við að verði í þingkosningunum í Finnlandi sem fram fara síðar í þessum mánuöi eru fylgistap kommúnista og fylgisaukning hins íhaldssama Þjóðareiningarflokks. Þjóðareiningarflokkurinn skil- greinir sig sem miðflokk en er í raun langt til hægri. Hann hefur um áratuga skeið verið útUokaður frá stjómarsamvinnu vegna ótta ann- arra stjórnmálaflokka um að það myndi hleypa iUu blóði í Sovétmenn, hins áhrifamikla grannríkis Finn- lands. En aukin þéttbýUsmyndun í Finnlandi og vöxtur miöstétta hefur stóraukið fylgi flokksins á síðari árum. Nýlegar skoðanakannanir benda til að flokkurinn gæti fengiö aUt að 50 þingsæti í næstu kosningum sem verða 20. og 21. mars. Það þýddi að flokkurinn heföi fjórðung þing- manna á finnska þinginu, Edus- kunta, sem skipað er 200 þingmönn- um. Ef fylgi Þjóðareiningaflokksins yrði sem skoðanakannanir benda til myndi hann verða næststærsti flokk- urinn á eftir Sósíaldemókrataflokkn- um, sem skoðanakannanir segja að muni fá 60 þingsæti. Þetta fylgi Þjóðaremingarflokksins myndi gera það að verkum aö illmögulegt yröi aö ganga fram hjá honum við myndun næstu samsteypustjórnar í Finn- landi. Stærsta spurningm í þessu er hvort sósíaldemókrötum tekst að leysa innbyröis ágreining í flokknum og sameinast um að vera í forsvari fyrir sterkri ríkisstjórn sem myndi takast á við efnahagsörðugleika þá sem nú eru í landinu. Til þess að þetta yrði mögulegt þyrftu sósíaldemókratar aö láta af samstööu sinni meö kommúnistum, sem staðið hafa að ríkisstjórn samfleytt frá miöjum sjö- unda áratugnum. Lýðræðisbandalag alþýðunnar, sem er undir stjórn kommúnista, lét af stuðningi sínum við núverandi samsteypustjórn í ársbyrjun eftir að atkvæðagreiðsla í þinginu hafði fallið þeim í óhag. Flokkurinn var á móti þeirri fjarveitingu til varnarmála sem aðrir stjórnarflokkar greiddu atkvæði. Lýðræðisbandalagið hefur frá árinu 1966 verið klofið í tvær meginfylkingar. Annars vegar er sá hópur sem flokka mætti sem Evrópu- kommúnista og hins vegar harðlínu- Stalínistar. Ekkert bendir til að sundurþykkjan innan flokksins fari minnkandi. Stalínistarnir telja að fylgistap flokksins megi rekja til þess að vikið hafi verið um of af réttri linu. Fylgismenn þessa hóps hafa boðað að þeir muni bjóða fram sérstaklega í nokkrum kjördæmum. Skoðanakannanir benda til að Lýðræðisbandalagið muni tapa 6 þingmönnum af þeim 35 sem það hlaut í síðustu kosningum. Stjóm- málaskýrendur telja að frekara fylgistap muni gera flokkinn að lítt eftirsóknarverðum samstarfsaðila í ríkisstjórn. En meö því að útiloka kommúnista mun skapast góður samstarfsgrundvöllur fyrir sam- steypustjórnSósíaldemókrataflokks- ins, Þjóöareiningarflokksins og Miðflokksins. Miðflokknum er spáö 40 þingsætum í næstu kosningum, en hann hefur myndað kosningabanda- lag með Frjálslynda flokknum. Samsteypustjórn með sterkan þingmeirihluta þyrfti að takast á við vaxandi verðbólgu sem nú nemur um 9 prósentum á ári, atvinnuleysi sem nálgast óðfluga 7% markiö og að auki grynnka á erlendum skuldum. Svo virðist sem efnahagsmálin verði þau mál sem tekist verði á um í kosningabaráttunni. En utanríkis- málin, sem einkum felast í því að halda góðu sambandi við Sovétríkin, munu einnig koma inn í myndina. En utanríkismálin eru aðallega á verk- sviði Mauno Koivisto forseta, sem Kaievi Sorsa, forsætisráðherra og sósialdemókrati, nýtur mests fylgis einstakra stjórnmálamanna i Finnlandi. heldur fast við þá stefnu sem mörkuö var af Uhro Kekkonen fyrrverandi forseta. Næsta ríkisstjórn mun líklega leggja aukna áherslu á viöskipta- samvinnu við Vesturlönd. Hins vegar er búist við að viöskiptin viö Sovétríkin muni dragast saman en þau eru nú um fjórðungur af inn- og útflutningi Finna. Einkum mun sam- drátturinn þó koma fram í lækkandi olíuverði, en olíuna fá Finnar að meginhluta til frá Sovétríkjunum. Svo virðist sem Kalevi Sorsa, núverandi forsætisráöherra, njóti mests fylgis stjórnmálamanna. Fjórðungur þeirra sem spurðir voru í skoöanakönnun vildu að hann héldi embætti sínu áfram í næstu ríkis- stjórn, en það var mun hærra hlutfall en aðrir stjórnmálaforingjar fengu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.