Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1983, Síða 32
32
DV. ÞRIÐJUDAGUR1. MARS1983.
Andlát
Öli Sigurjón Barödal lést 22. febrúar.
Hann fæddist á Patreksfiröi 5. júní
1917. Ungur hóf hann störf viö sjó-
mennsku og stundaði þau framan af
ævi. Er sjómennsku lauk keypti hann
seglagerðina Ægi sem hann rak með
aöstoð fjölskyldu sinnar til æviloka.
Eftirlifandi eiginkona hans er Sesselja
Guðnadóttir. Þau hjónin eignuðust 5
syni en misstu einn í æsku. Utför Ola
verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl.
13.30.
Stefana Björnsdóttir, fyrrverandi
saumakona, Bergstaöastræti 4, verður
jarösungin frá Sauðárkrókskirkju
miðvikudaginn 2. mars kl. 14.
Ólöf Magnúsdóttir, Digranesvegi 74
Kópavogi, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju miövikudaginn 2. mars kl.
13.30.
Friðrik Ingimundarson er látinn. Utför
hans hefur farið fram í kyrrþey aö ósk
hinslátna.
Vikingur Sævar Sigurðsson andaöist í
sjúkrahúsi í London 25. febrúar.
Brynjar Þór Ingason, Hátúni 32 Kefla-
vík, lést af slysförum í Las Vegas,
Bandaríkjunum, laugardaginn 26.
febrúar.
Guðrún Guömundsdóttir frá Snai tar-
stöðum andaöist á hjúkrunarheimilinu
Sólvangi, 27. þessa mánaðar.
Guðrún Helgadóttir frá Heggstööum,
Vogatungu 34 Kópavogi, lést á gjör-
gæsludeild Landspítalans 25. febrúar.
Jarðarförin fer fram föstudaginn 4.
mars kl. 15 frá Fossvogskirkju.
Elsa M. Jóhannesdóttir, Fifuseli 26,
áður Ásvallagötu 15, sem lést í Landa-
kotsspítala 22. febrúar sl., verður
jarðsungin frá Fossvogskepellu
fimmtudaginn 3. mars nk. kl. 13.30.
Fundir
1. Ráð Málfreyja
á íslandi
heldur fund laugardaginn 5. mars nk. að Síðu-
múlallíReykjavík.
Á dagskrá fundarins verður meðal annars
kosning í embætti æðstu stjórnar Málfreyja á
Islandi. Eitt stórt verkefni fundarins er ensk
ræðukeppni, en hún fer fram árlega og taka
nú 7 konur þátt í þessari keppni. Allar ræður
eru teknar upp á snældur og verðlaunaræðan
síðan send áfram í alþjóðlega ræðukeppni
sem haldin verður í Boston í júlí í sumar.
Málfreyjur á Islandi hafa oftar en einu sinni
orðið sigursælar í þeirri keppni.
Kvenfélag
Hreyfils
Fundur í kvöld, þriðjudag, kl. 21.00. Upplestur
o.fl.
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
Fundur verður haldinn í félagsheimili kirkj-
unnar fimmtudaginn 3. mars kl. 20.30. Dag-
skrá fundarins verður f jölbreytt, kaffiveiting-
ar verða og að lokum verður hugvekja sem
séra Ragnar Fjalar Lárusson flytur. Félags-
konur, fjöimennið og takið með ykkur gesti.
Samhygð
Kynningarfundur veröur hjá Samhygö alla
fimmtudaga kl. 20.00 aö Ármúla 36, 3. hæö
(gengiö inn frá Selmúla).
Konur í Árbæjar-
og Seláshverfi
fjölmennum á kynningar- og skemmtifundinn
hjá kvenfélagi Árbæjarsóknar í safnaöar-
heimilinu í kvöld, þriöjudaginn 1. mars, kl.
20.40, skemmtidagskrá og veitingar.
Kvenfélag Karlakórs
Reykjavíkur
verður meö skemmtifund og föndur í kvöld,
þriðjudagskvöld, kl. 20.30.
Kvenfélag Fríkirkj-
unnar í Reykjavík
heldur fund á Hallveigarstöðum fimmtudag-
inn 3. mars kl. 20.30, gestur fundarins verður
prestur safnaðarins, Gunnar Bjömsson.
Vígbúnaðurinn
í Norður Atlantshafi
Fræöslufundur samtaka herstöövaandstæö-
inga veröur á Hótel Heklu í kvöld kl. 20.30.
Framsaga: Árni Hjartarson. Allir velkomnir.
Málfreyjudeildin
Björkin
heidur fund miðvikudaginn 2. mars kl. 20.30
að Hótel Heklu. Gestir velkomnir.
Tilkynningar
14. Háskólatónleikar
vetrarins
verða í Norræna húsinu í hádeginu miðviku-
daginn 2. mars kl. 12.20—13.00. Einar Jó-
hannesson og Anna Málfríður Sigurðardóttir
leika saman á klarinett og píanó: sónötu í Es-
dúr eftir Brahms og Four short peaces eftir
írska tónskáldið Howard Ferguson.
JC Reykjavík
Félagsfundur verður haldinn að Hótel Loft-
leiðum, Kristalsal, í kvöld kl. 19.30. Fundur-
inn hefst með borðhaldi. Gestur fundarins
verður Davíð Scheving Thorsteinsson. Kom-
um öll tímanlega.
Árdagar Ármúlaskóla
standa fyrir
útvarpssendingum
alla daga fram á Smmtudag. Landsmenn geta
hlustað á útsendingar þeirra félaga á FM
bylgju 91,5 frá kl. 8—12, eftir hádegi frá kl.
14—19 og á næturútvarp frá kl. 22—03.
Ný störf
Forseti Islands hefur hinn 30. desember sl.
skipað frú Guðrúnu M. Skúladóttur til þess að
vera deildarstjóri í iðnaðarráðuneytinu frá og
með 1. janúar 1983 að telja.
Hinn 26. janúar 1983 veitti heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið Ama Tómasi
Ragnarssyni lækni leyfi til þess að starfa sem
sérfræðingur i gigtlækningum hér á landi.
Ráðuneytið hefur að ósk Guðsteins Þengils-
sonar veitt honum Iausn frá störfum heilsu-
gæslulæknis í Kópavogi frá og með 1. janúar
aðtelja.
Samgönguráðuneytið hefur með bréfi, dags.,
11. janúar 1983, skipað Ragnhildi Hjaltadóttur
lögfræðing í stöðu löglærðs fulltrúa frá og með
1. janúar 1983 að telja.
Hinn 3. febrúar 1983 var Páli Bjömssyni lög-
fræðingi, veitt leyfi til málflutnings fyrir
héraðsdómi.
Hinn 25. janúar 1983 veitti landbúnaðarráðu-
neytið Olafi Jónssyni leyfi til að stunda dýra-
lækningar hér á landi.
Hinn 3. febrúar 1983 veitti heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið Hafsteini
Sæmundssyni lækni leyfi til þess að starfa
sem sérfræðingur í kvenlækningum og
fæðingarhjálp hér á landi.
í gærkvöldi
í gærkvöldi
Limlestingar og píanóetýður
Innheimtudeild ríkisútvarpsins ætl-.
ar ekki aö gera þaö endasleppt í
óvenjulegum auglýsingum. Flestum
þótti nóg um dillibossana sem Rósa
nokkur Ingólfsdóttir hannaöi á skjá-
inn á síöasta ári og frægir uröu aö
endemum. En auglýsingin sem nú
birtist á skjánum á hverju kvöldi
tekur þó út yfir allan þjófabálk í
smekkleysu og fáránleika. Eg þori
aö éta hattinn minn upp á aö þarna
hefur sama mannesk jan lagt hönd aö
verki — sem aldrei skyldi veriö hafa.
Sjónvarpiö sýndi í gærkvöld mjög
áhrifamikla mynd, Sonur nágrann-
ans, sem fjallaði um pyntingar í
Grikklandi á dögum herforingja-
stjórnarinnar þar í landi. Þaö þarf
oft ekki aö leita langt yfir skammt til
aö finna mannréttindabrot af verstu
tegund, ofbeldi og pyntingar gerast
ekki bara í Sovét og Suður-Ameríku.
Á þeim árum sem herforingjastjóm-
in sat aö völdum, 1967 til 1974, fóru
þessi mál ekki hátt í vestrænum fjöl-
miðlum miöaö viö það sem gerðist
handan viö járntjaldið. Sama gildir
nú á dögum um þaö sem er aö gerast
í fangelsum tyrknesku herforingja-
stjórnarinnar. En þar era jú banda-
menn vorir til vamar frelsinu og lýð-
ræöinu.
Lýsingarnar á pyntingunum sem'
fram fóra vora hroöalegar, en jöör-
uöu viö aö vera fáránlegar þegar
fyrrverandi bööullinn lýsti því
hvernig hann gat kvalið menn,:
limlest og bariö til óbóta á daginn, en
farið síðan heim til fjölskyldunnar,;
sem ekkert vissi um starfa hans, og|
látiö sem hann heföi lokið góöu dags-
verki. Þetta minnti mig á Göring
gamla (eða einhvern af þessum
pamfílum nasista) sem skipulagði
útrýmingu á gyðingum í vinnutím-
anum en spilaði síöan rómantískar'
etýður á píanóiö fyrir börnin sín á
kvöldin. Mér varö líka hugsaö til
þess aö heppnir værum við Islend-
ingar aö hafa enga stofnun þar sem
menn era aldir upp í aö sitja og
standa eftir skipunum.
Ólafur E. Friðriksson.
Jói sýndur
enn um sinn
Vegna gífurlegrar aðsóknar að síðustu sýn-
ingum á leikriti Kjartans Ragnarssonar, Jóa,
sem Leikfélagið ætlaði að hætta að sýna fyrir
nokkru vegna þrengsla og annarra nýlegri
verkefna, hefur verið ákveðið að sýna leikrit-
ið enn um sinn. Ovíst er þó, hversu margar
sýningar geta orðið og fólki ráðlagt að draga
ekki að sjá sýninguna, hafi það áhuga á að
missa ekki af þessu vinsæla verki.
Sýningar á Jóa eru nú orðnar 120 og áhorf-
endur orðnir 24.500. I Jóa er sagt frá ungum
hjónum í Reykjavík á okkar dögum — hún er
sálfræðingur, hann myndlistarmaður —,
sem skyndilega standa frammi fyrir því að
þurfa að taka að sér þroskaheftan bróður kon-
unnar, Jóa, sem þarfnast sérstakrar umönn-
unar og krefst fórna af þeim, sem taka hann
að sér. Sýningin á Jóa í leikstjórn höfundar
sjálfs þykir einkar áhrifamikii, bæði vegna
efnismeðferðar og afbragðsgóðs leiks. Hafa
Leikfélaginu borist óvenju mörg bréf frá
þakklátum áhorfendum, sem hafa hrifist af
þessari fallegu sýningu.
Með titilhlutverkið Jóa fer Jóhann Sigurðs-
son, ungu hjónin leika Hanna María Karls-
dóttir og Sigurður Karlsson, föður þeirra syst-
kina leikur Guðmundur Pálsson og önnur stór
hlutverk leika Elfa Gísladóttir, Þorsteinn
Gunnarsson og Jón Hjartarson. Leikmynd er
eftir Steinþór Sigurðsson.
Næsta sýning á Jóa er á þriðjudagskvöldið.
Samtök um
kvennaathvarf
Skrifstofa okkar að Gnoðarvogi 44, 2 hæð, er
opin alla virka daga frá kl. 14—16, sími 31575.
Póstgírónúmer samtakanna er 4442—1.
Skrifstofa FR deildar 4
er opin að Síðumúla 2, sími 34200, pósthólf
4344. Þriðjudaga kl. 17—19, miðvikudaga kl.
18—19. Formaður til viðtals fimmtudaga kl.
20—22, föstudaga kl. 17—19, og laugardaga kl.
14-16.
að Kjarvalsstöðum
1 kvöld, þriðjudaginn 1. mars, heldur Tónskóli
Sigursveins D. Kristinssonar tónleika að
Kjarvalsstöðum. A tónleikunum koma fram
hljómsveit Tónskólans og einleikaramir
Gerður Gunnarsdóttir fiðluleikari og Olla
Carolusson pianóleikari. Þær taka báðar
lokapróf frá Tónskólanum á þessu vori og eru
þessir tónleikar liður í prófinu. Á tónleikunum
verða flutt verk eftir Wolfgang Amadeus Moz-
art, Joseph Haydn og John A. Speight. Stjórn-
andi er Sigursveinn Magnússon.
Allir eru velkomnir á tónleikana.
Flutningabíll
faukíHvalfirði
Stór vöraflutningabíll frá Þórði Þ.
Þórðarsyni á Akranesi fauk á veginum
fyrir sunnan Botnsá í Hvalfiröi í gær-
kvöldi.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Hafnarfiröi iokaöi bíllinn
veginum um tíma. Engin meiösl uröu á
mönnum viö veltuna en bíllinn mun
hafa skemmst nokkuð.
-JGH.
Félagsvist
verður spiluð í kvöid í safnaðarheimili Hall-
grímskirkju til ágóða fyrir kirkjubygginguna.
Byrjað verður að spila kl. 20.30.
Sóknarfélagar
Munið spilakvöldið að Freyjugötu 27,
miðvikudaginn 2. mars kl. 20.30.
Gjaldþrot
Meö úrskuröi Skiptaréttar Kópavogs, upp-
kveðnum 24. janúar 1983, var bú Fiskó hf.,
nnr. 2342-8369, tekið til gjaldþrotaskipta.
Meö úrskurði skiptaréttar Kópavogs, upp-
kveönum 15. desember 1982, var bú Anja hf., ■
nnr. 0307-8337, tekið til gjaldþrotaskipta.
MeÖ úrskuröi skiptaréttar Kópavogs, upp-
kveönum 22. desember 1982, var bú Mynd-
smiðjunnar hf., nnr. 6580-8749, tekiö til gjald-
þrotaskipta.
Kvenfélag Kópavogs
verður með félagsvist mánudaginn 28.
febrúar kl. 20.30 í félagsheimili Kópavogs.
Allir velkomnir.
Áskorendaeinvígin:
Jafntef li milli
Beljavskíog
Kasparovs
Fyrstu skákinni í áskorendaeinvígi
Alexanders Beljavskís og Garry
Kasparovs lauk í gær meö jafntefli eft-
ir allharða baráttu. Haföi Beljavskí
hvítt og tefldi hvasst í byrjun, fómaöi
peöi og virtist ætla aö ná undirtökun-
um, en Kasparov gaf peöiö aftur og
náði aö jafna stööuna. Þegar skákin
fór í biö haföi Kasparov tekist aö fá
heldur hagstæðara tafl en Beljavskí
tókst þó aö halda jöfnu í framhaldinu
og sömdu keppendur jafntefli eftir 64
leiki.
Báðir eru keppendur sovéskir.
önnur áskorendaeinvígi fara senn aö
hef jast og vinnur sá sem lengst heldur
velli réttinn til þess aö tefla einvígi viö
Anatoly Karpov um heimsmeistara-
titilinn á næsta ári.
BH.
H&H skoöar sjálft
Húsið í stúdióinu
Garöurinn
Dýrustu leöur-
húsgögnin koma
frá Sviss____
BÚIDÍ
, með torfþaki
-- og af'nað, sem
e'aðrisA
Torfuhús og Húsið í
„Trúnaðarmáli" í nýjasta
Hús & híbýli
Fyrsta tölublað Húsa & híbýla á þessu ári er
komið út. Tvö óvenjuleg „innlit” eru á efnis-
yfirlitinu, annað í bragga, sem trúlega er síð-
asti bragginn á landinu sem búið er í, og hitt
innlitið er í sjálft „Húsið”, sem fer með aðal-
hlutverkið í nýjustu íslensku kvikmyndinni.
H&H fékk að ljósmynda húseiningarnar, sem
reistar voru í kvikmyndastúdíóinu fyrir kvik-
myndatökuna. Forvitnilegt og spennandi efni.
Fleira forvitnilegt er að finna í þessu tbl.
H&H, svo sem eins og kúluhúsin, sem augu
manna beinast að í æ ríkara mæli. 1 þessu
blaði er sagt frá tveim íslenskum kúluhúsum.
Annaö er að rísa í Höfnum, en hitt húsið bíður
arkitekt eftir að fá að reisa eftir eigin teikn-
ingum í Kópavogi.
Og enn um nýstárlega hluti; H&H varpar
fram þeirri hugmynd, að lampaskermar
verði prjónaðir og kemur með uppskrift að
einum slikum ásamt ljósmynd af nokkrum
prjónaskermum.
Þá er í blaðinu að finna myndir af baðher-
bergissettum og blöndunartækjum, sem
hönnuð eru af heimsfrægum hönnuðum. Eitt-
hvað fyrir augað.
Enn meira óvenjulegt; óvenjulega heilsu-
samleg rúm eru tekin til meðferðar í þessu
tbl. og ennfremur óvenjuleg leðurhúsgögn.
Leðurhúsgögn þessi geta talist óvenjuleg
fyrir margra hluta sakir.
Ritstjóri H&H er Þórarinn Jón Magnússon.
Utgefandi er SAM-útgáfan s/f.
BELLA
Kannski lífið yröi heidur þægilegra, ef
ég breytti mér í þessa feitu, gáfuöu
kvengerö.