Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Page 25
DV. LAUGARDAGUR 23. APRlL 1983. 25 ina í virki** jareth Humphreys iírí eftir stríðiú hermennirnir í Port Howard sögðu að þeir myndu ekki berjast og það kom á daginn. Þeir gáfust upp án bardaga fyrir breska hernum.” — Margareth Thatcher var mjög óvinsæl áður en Falklands- eyjastríðið hófst. Allt frá því að Bretar sigruðu í stríðinu hefur hún aftur á móti notið mikilla vin- sælda. Sumir hafa haldið því fram að Verkamannaflokkurinn hefði aldrei sent her til eyjanna. Hvað segiðþið um þetta? „Satt að segja fylgjumst viö ekki vel með breskum stjórn- málum og þessari spurningu er ekki auðsvarað. En ég held að hver sem hefði verið við völd hefði orðið að grípa í taumana og senda herástaðinn.” — Þekktuö þið Falklendingana semfélluístríðinu? , „Það féllu aðeins þrír Falk- lendingar í átökunum og viö þekktum þá alla. En þúsund manns féllu, meirihlutinn Argen- tínumenn. Þetta var sannarlega ekki þess viröi. Falklendingar eru ekki bitrir — Víkjum að ástandinu á Falk- landseyjum eftir stríðið. Gætuð þiðlýstþví? „Það er eins og í hervirki. Það eru f jórum sinnum fleiri hermenn en íbúar og það gefur augaleiö að ástandið er vægast sagt mjög óeðlilegt. I raun og veru stjórnar herinn öllu. Landstjórinn og yfir- maöur breska hersins eru jafn- réttháir en það er augljóst aö herinn hefur tögl og hagldir og ræður því sem hann vill ráöa um stjórneyjanna.” Viðræður höfðu staðið milli Breta og Argentínumanna um eyj-S arnar um nokkurt skeið, áöur en til átaka kom. Hefði breska stjórn- in ekki getað verið viðbúin innrás- inni? Eru Falklendingar ekki bitrir í garð bresku stjórnarinnar fyrir að hafa ekki getað varið eyj- arnar er Argentínumenn réðust til atlögu? „Nei, Falklendingar eru ekki bitrir. Auðvitað voru Falk- landseyjar vanræktar, því er ekki að neita. Meðal annars var eina varöskip eyjanna tekið frá þeim ekki löngu áöur en átökin hófust. En núna vantar víst ekki herskipin þarna suður frá! Ég álít að Falklendingar séu Bretum mjög þakklátir þrátt fyrir allt og þeim finnist að þeir eigi bresku stjórninni skuld að gjalda fyrir að bjarga eyjunum frá argentínskri stjórn.” ísland ekki ólíkt Falklandseyjum — Víkjum aftur að ykkur. Af hverju ákváðuð þið að flytjast frá eyjunum? „Eins og við höfum greint frá þá er hernaðarástand þarna og við gátum ekki sætt okkur við það. Önnur ástæða er öryggi barnsins. Þaö er hreinlega ekki hættulaust fyrir börn á eyjunum. Börnin eru að finna skotfæri, sprengjur og þess háttar út um allt, svo maður tali ekki um þær þúsundir jarð- sprengna sem grafnar eru víða.” — Hyggjast margir Falk- lendingar flytjast búferlum til annarra landa? „Já, talsvert margir. Nú þegar eru margir farnir og maður heyrði á ýmsum að þeir ætluðu aö bíða og sjá í tvö til þrjú ár. Ef ástandið skánar ekki munu margir taka þann kostinn að flytjast burt af eyjunum.” — Þá komum við að íslandi. Af hverju völduð þiö island fremur en önnurlönd? „Við ímyndum okkur að Island sé ef til vill ekki svo ólíkt Falk- landseyjum og við getum starfað svipað hér og þar. Veörá tan hér er svipuö og á eyjunum, rigning, kuldi og vindur! Það viröist snjóa meira hérna en mér skilst líka að það sjáist stundum til sólar!” (Það skal tekið fram að slydda var er viðtaliö var tekiö, tveimur dögum fyrir sumardaginn fyrsta!) Önnur ástæða er að ekki er fýsilegt aö flytjast aftur til Bretlands um þessar mundir. Við höföum bæði verið aö bollaleggja, sitt í hvoru lagi, að fara til Islands. Ég (Dennis) hef skrifast á við Guðrúnu Jónsdóttur í þrjú til fjögur ár og hún hafði fyrir löngu boðiö mér að koma. ’ ’ — Eruö þið ekki smeyk við að flytjast til lands sem býr við jafnslæman efnahag og Island um þessar mundir? „Við erum ekkert smeyk. Það verður að koma í ljós hvort þetta gengur hjá okkur. En við vissum af því að Ísland ætti við efnahags- erfiðleika að etja. Við höfum fengið fréttir héðan í gegnum Guðrúnu og svo erum viö áskrif- endur aö News from Iceland.” — Hvernig gengur ykkur að útvega ykkur störf ? „Við höfum fengið tvö tilboð. Annað er frá búi í nágrenni Reykjavíkur en hitt er nærri Akur- eyri. Við eigum eftir að kanna þessi tilboð, til dæmis hvernig húsnæði við getum fengið. Við vonumst eftir því að geta komiö okkur fyrir hið fyrsta og hafið störf!” Viö svo búið kvaddi blaðamaður DV Margareth og Dennis Humphreys og 10 vikna gamla dóttur þeirra. -ás. Vidtal: Árni Snævarr >Iynd: Gunnar V. Andrésson jar einu ríðið Stríðiö kostaði 1000 manns lífið og gífur- lega eyðileggingu. Bretar náðu eyjunum á sitt vald eftir ellefu vikna stríð. Argentínski herinn og stjómin þar höföu verið niöurlægö svo aö um munaði. En sigur Breta var um margt Phyrrosar- sigur. Bretar misstu dýr herskip og veröa að halda úti miklu herliði á eyjunum. Að- flutningar til liðsins kosta breska ríkið svimandi fjárhæðir. Talið er aö það muni kosta breska ríkið 2,5 milljónir sterlings- punda fram til ársins 1986 aö halda eyj- unum. Að minnsta kosti fjögur til fimm þúsund dátar eru á eyjunum aö staðaldri auk þess sem allt upp í 20 her- og birgöaskip eru að störfum kringum eyjarnar. Jafnframt er heil flugsveit Phantomvéla tilbúin til aö mæta skyndiárás Argentínumanna. Hér á opnunni er rætt við tvo fyrrverandi eyja- skeggja og kemur glöggt fram aö herseta Breta hefur haft mikil áhrif á líf eyja- skeggja. Ýmiss konar félagsleg vandamál hafa skotið upp kollinum. Breskir dátar fylla krár eyjaskeggja og „ástandsmál” eru mjög til umræðu. Mörg mikilvæg mannvirki eyðilögðust í stríðinu, mörg hver vegna lofiárása breska flughersins, en uppbygging gengur hægt. En hvaö sem öllu líður er ljóst að Falk- lendingar mega ekki til þess hugsa að Argentínumenn fái yfirráð yfir eyjunum. En ári eftir að striðiö hófst er ekki laust við að menn spyrji: Var ekki hægt að koma í veg fyrir að stríð brytist út? Hvað sem því líður er þaö staðreynd að margir íbúa Falklendinga hafa tekið eöa munu taka ákvörðun um aö flytjast burt af eyjunum. Dennis og Margareth Humpreys eru meðal þeirra og hafa ákveöið að setjast aö á Islandi. Helgarblað DV átti viðtal við þau fyrir skömmu og fáum við að heyra hvað „Falklendingar sjálfir hafa tilmálannaaðleggja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.