Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1984, Side 2
2
DV MANUDAGUR 27. FEBRUAR1984
Fjármálaráðherra hafnar auknum
útgjöldum af sérkjarasamningum
ríkisstarfsmanna:
BÝÐUR BSRB
SAMA OG ASÍ
SAMDIUM
Hlé er á samningalotu ríkisins og ekki verkfallsréttur. Því hafi veriö sér-
BSRB frá því á laugardag. Þaö var stök ástæöa til þess að gera hlé og gefa
gert til þess aö stjórnir félaga í banda- félögunum kost á aö taka strax afstöðu
laginu gætu f jallaö um þá afstööu f jár- til skilyrðis fjármálaráðherra.
málaráöherra aö hafna fyrirfram sér- Þá segir formaöur BSRB aö samn-
kjarasamningum, hafi þeir aukin út- inganefnd bandalagsins hafi áhuga á
gjöld í för meö sér. Aö ööru leyti liggur aö ræða fleiri mál í viöræöunum viö
fyrir aö ráöherra og samninganefnd fjármálaráöherra og samninganefnd
BSRB ætla aö ræöa um beinar launa- ríkisins. Sérstaklega sé áhugi á því aö
hækkanir af svipuöúm toga og ASI og álmennur ellilífeyrir veröi hækkaður.
VSIsömduum. „Tveir ráöherrar hafi þegar lýst
Kristján Thorlacius, formaöur áhuga sínum á því efni og eru þeir
BSRB, segir að samkvæmt lögum eigi sammála okkur um nauðsyn á frekari
félög í bandalaginu rétt á því aö stofna lagfæringu á ellilífeyrinum. Og viljum
til sérkjarasamninga hvert fyrir sig, viölátareynaáíþvíefni.”
eftir aö aðalsamningur hafi veriö Samningafundir hefjast aftur
geröur. Þeim rétti fylgi á hinn bóginn klukkanlOífyrramáliö. HERB
„Samningarnir rangtúlkaðir,”
segir Vinnuveitendasambandið:
EFTIR- OG NÆTUR-
VINNAN HÆKKAR
JAFNT DAGVINNU
,,Frá og meö 21. febrúar hækka öll
laun félagsmanna þeirra verkalýðs-
félaga er samþykkja samningana um
að minnsta kosti 5%. Gildir þetta jafnt
um dag-, eftir- og næturvinnukaup,”
segir í tilkynningu Vinnuveitenda-
sambandsins. Það segir samningana
rangtúlkaöa, síöast í ályktun Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar.
„Þaö er .. beinlínis rangt, sem fram
hefur veriö haldiö, aö laun fyrir eftir-
vinnu, næturvinnu og bónusvinnu hafi
veriö skert meö þessum samningum.”
Þá segir um tekjutryggingu að hún
hækki um 5% fyrir starfsmenn 16 ára
og eldri, en sérstök 15,5% hækkun komi
til fyrir þá sem náö hafi 18 ára aldri og
starfað sex mánuöi í starfsgrein. Þessi
tekjutrygging komi einnig ákvæðis-
vinnufólki til góöa, ef bónusgreiðslur
veröi lágar eöa falli tímabundiö niður.
HERB
15.000 laxar
í lífshættu
er djúpvatnsdæla bilaði í Neslaxi
Litlu munaöi að illa færi í laxeldis-
stöðinni Neslaxi í Garöi er djúpvatns-
dæla þar bilaði. Um 15.000 laxar voru í
stöðinni og lá við sjálft aö þeir dræpust
af súrefnisskori. Betur fór þó en á
horfðist því Aöalverktakar hlupu undir
bagga og lánuöu laxeldisstööinni tank-
bíl til aö aka vatni í stööina þar til
dælan komst í samt lag.
Þaö var í fyrradag sem dælan
bilaði. Þótti ljóst aö allur fiskur í
stöðinni myndi drepast ef ekki yröí aö
gert hiö bráðasta. Því var fenginn aö
láni tankbíll hjá Aðalverktökum.
Bíllinn var tekinn úr verki til aö bjarga
laxinum og var hann notaöur til aö
sækja vatn til Keflavíkur, 26.000 lítra í
senn. Sótti bíllinn fimm farma og
bjargaði þar meö verðmætum upp á
um þaö bil 1,3 milljónir króna.
Að sögn Arnar Eyjólfssonar, eins
eigenda Neslax, hefur laxeldi í stööinni
gengið mjög vel. Fiskurinn hefur vaxiö
tiltölulega hratt miöaö við þaö sem
gerist og er því talinn góður möguleiki
á frekara fiskeldi á þessum slóöum.
-JSS/Magnús G.
TILBUNIR TIL AÐ
TAKA Á MÓTI
HROGNUM
Frá Emil Thorarensen, fréttaritara
DV á Eskifiröi.
Svanur RE landaöi í gærmorgun 600
tonnum af loönu á Eskifirði. Nú hafa
borist 30 þúsund tonn af loðnu til
Eskifjaröar frá því að veiðar hófust
eftir áramóta. Hraöfrystihús Eski-
fjaröar hf. er nú tilbúið til aö taka á
móti loönuhrognum. En enn sem
komiö er viröist loönan ekki vera orðin
nægilega þroskuö til að unnt sé aö nýta
hrognin. -APH.
Sandey á hvolfi við Engey igær. Starfsmenn Björgunar eru á kilisanddælusklpsins. p V-myna: nmu.
Styttist íbjörgun Sandeyjar:
ÞURFA GOn VEÐUR
í TVO SÓLARHRINGA
Starfsmenn Björgunar hf. bíöa nú
eftir góöu veöri til aö velta sanddælu-
skipinu Sandey II viö og ná því á flot
þar sem það liggur viö Engey. Til
verksins telja þeir sig þurfa einn til
tvosólarhringa.
A háflóöinu klukkan 15 í gær tókst
Kristni Guðbrandssyni og félögum
að hagræöa skipinu betur þar sem
þaö liggur á um fimm faöma dýpi.
Liggur Sandey II nú nokkurn veginn
lárétt á botninum skammt undan
Engeyjarrifi.
Tvær jaröýtur eru í Engey. Þær
eru tengdar viö sanddæluskipið með
sterkum vírum. Þannig eru ýturnar
látnar toga í Sandey. Önnur tæki í
björguninni eru fiskiskipiö Aöalbjörg
RE og flotprammi á hjólum.
Um borö í Aöalbjörgu eru afkasta-
miklar loftpressur. Meö þeim hefur
lofti verið dælt inn í skrokk Sand-
eyjar.
Flotpramminn eða vatnadrekinn
kemur sér vel í þessu björgunar-
starfi. Síðastliðiö sumar var hann í
gullskipsleit á Skeiðarársandi. I gær
mátti sjá hann bæöi sigla í kringum
sanddæluskipiö og aka á landi í
Engey.
Sandey er töluvert skemmd. Krani
hefur til dæmis brotnaö af. Vélar
skipsins eru taldar mikið skemmdar
ef ekki ónýtar. Brúin virðist heilleg.
Náist skipið á flot er ætlunin aö
draga þaö til hafnar við Ártúnshöföa
þar sem bækistöövar Björgunar hf.
eru.
-KMU.
Harður árekstur varð á Vesturlandsvegi, um 105 metra vestur af Gufunesafleggj-
aranum, skömmu eftir hádegið á föstudag er tveir bílar skullu sarnan er þeir voru að
mœtast. Fimm voru fluttir á slgsadeild Borgarspítalans, þar affjórir úr öðrum bíln-
um, Mitsubishi Colt. Annar bílanna miin hafa skrikað til á veginum og sveigt gfir á
rangun vegarhelming. DV er ekki kunnugt um hve meiðsli fólksins eru alvarleg en
enginn mun þó vera í lífshœttu. -JGH/D V-mgnd: S.
Léleg sölumennska
veldur lágum launum
— segir í áskoran f ormannaf undar ASÍ
A formannafundi Alþýðusam-
bandsins þar sem samningurinn viö
Vinriuveitendasambandið var borinn
upp voru jafnframt samþykktar
tVær áskoranir til ríkisstjórn-
arinnar.
Annars vegar skoraöi fundurinn á
ríkisstjórnina og Alþingi aö taka til
alvarlegrar umfjöllunar útflutnings-
og sölumál íslenskra landbúnaöar-
og sjávarafuröa. Taldi fundurinn aö
einn þáttur láglauna hér á landi væri
léleg sölumennska íslenskra afuröa
erlendis.
I annan staö skoraöi fundurinn á
ríkisstjórn og Alþingi aö hlutast til
um aö verslunarálagning verði
lækkuð nú þegar. Segir í áskoruninni
aö sú vaxtalækkun sem þegar hefur
oröið hljóti að koma versluninni til
góða eins og öörum en þaö hafi ekki
skilaö sér sem skyldi í lækkuöu
vöruveröi.
-OEF.