Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1984, Blaðsíða 27
DV MÁNUDAGUR 27. FEBRUAR1984
íþróttir
Iþróttir
íþrótt
Markahátíð í Watford
Það var sannkölluö markahátíð
þegar „spútnik”liöin þessa stundina í
Englandi, Watford og Everton,
mættust á Vicrage Road í Watford.
Þau skiptu bróöurlega með sér átta
mörkum í 4—4 jafntefli. Það leit nú
samt ekki út fyrir það að afloknum f.h.
— því þá leiddi Watford 1—0, meö
marki blökkumannsins knáa John
Bames — að sjö mörk myndu fylgja í
kjölfarið í s.h. Strax í upphafi hálf-
leiksins jafnaði Graeme Sharp með
skalla eftir homspyrnu frá Peter Reid.
Aðeins örfáum mínútum síðar náöi
Watford forystunni að nýju meö enn
einu marki Skotans Maurice Johnston
en Andy Gray jafnaöi metin um
miðjan s.h. með marki af stuttu færi,
eftir aukaspyrnu frá Peter Reid. John
Barnes náði forystunni enn á ný fyrir
heimamenn og Wilf Rostron bætti
fjórða markinu við eftir sendingu frá
Nigel Callaghan. Sigur heimamanna
virtist í höfn en það var nú öðru nær.
Greame Sharp minnkaöi muninn með
öðru marki sínu í leiknum og á loka-
mínútunum sótti Everton stíft aö
marki Watford og reyndi að knýja
fram jafntefli, sem og tókst á síðustu
mínútu leiksins þegar Adrian Heath
skoraði eftir að Alan Irvine hafði sent
góða sendingu fyrir markið. Að leik
loknum klöppuöu áhorfendur leik-
mönnum beggja liöa lof í lófa fyrir frá-
bæra skemmtun.
Besti ieikur á Anfield Road
í vetur
Það var samdóma álit fréttamanna
sem voru á leik Liverpool og QPR á
Anfield Road að leikurinn hefði verið
sá best leikni sem þar hefur verið í 1.
deild á þessu leiktímabili. Bæði lið léku
stórskemmtilega knattspyrnu og leik-
menn QPR gerðu allt jafnvel og leik-
menn Liverpool í leiknum nema það
sem öllu máli skiptir, að skora mörk.
Það var markamaskínan Ian Rush
sem skoraði fyrra markið í leiknum
strax á 8. mínútu og var skemmtilega
að því unnið. Mike Robinson sendi þá
knöttinn til Rush sem lék snyrtilega á
John Gregory og sendi síðan þrumu-
fleyg út við stöng, óverjandi fyrir
Peter Hucker í markinu. Ian Rush
þakkaði síöan Robinson greiðann fyrr í
leiknum meö því að leggja upp annaö
markið fyrir Robinson á 54. mínútu.
Eftir þetta þurfti Bruce Grobbelaar
nokkrum sinnum aö taka á honum
stóra sínum til þess að koma í veg fýrir
mörk. Á síðustu mínútu leiksins fékk
Liverpool síðan dæmda vítaspymu.
Peter Hucker gerði sér h'tið fyrir og
varði spymuna frá Phil Neal með
tilþrifum. Vítaspyman var dæmd
þegar Greame Souness, besta manni
vallarins, var brugöið innan vítateigs.
Kevin Moran
tryggði Man. Utd. sigur
Kevin Moran, miðvörðurinn sterki
hjá Manchester United, var hetja hðs
síns þegar það lagði Sunderland að
velli á Old Trafford, 2—1. Það leit samt
ekki vel út í byrjun fyrir heimamenn
því Sunderland náði forystunni með
marki Lee Chapman á 15. mínútu eftir
að Shaun EUiott hafði átt stungusend-
ingu inn fyrir vörn United. Man. Utd.
tókst loks á 41. mín. að jafna metin
eftir þunga sókn, en þá skahaði Kevin
Moran í netið eftir homspyrnu Arnold
Miihren og staöan því 1—1 í hálfleik.
Strax í upphafi s.h. fékk United horn-
spymu sem Ray Wilkins framkvæmdi,
sendi vel fyrir markið og þar nikkaði
Frank Stapleton knettinum áfram
fyrir markiö og Kevin Moran kom á
fuUri ferö og „hamraði” knöttinn í
netið meö hausnum, algerlega óverj-
andi fyrir Chris Tumer í markinu.
Eftir þetta þurfti Tumer að verja
tVívegis mjög vel frá Norman White-
side en hinum megin á veUinum átti
Gary BaUey einn af sínum allra náðug-
ustu dögum í öruggari sigri United en
markatalan gefur til kynna.
Öruggir sigrar
IMorwich og
Southampton
AUt gengur nú á afturfótunum hjá
West Ham. Þeir töpuðu sínum þriðja
leik á einni vUtu þegar þeir heimsóttu
Norwich City á Carrow Road. Norwich
hafði umtalsverða yfirburði í leiknum
og var það aðeins stórgóð markvarsla
Phil Parkes sem kom í veg fyrir enn
stærri sigur heimahðsins, en það
sigraði aðeins 1—0 í leiknum. Parkes
varði á sniUdarlegan hátt þrumuskot
frá John Deehan frá markteig á 30.
mínúiu. Eina mark leiksins skoraði
John Deehan á 70. minútu eftir að Mick
Channon hafði lagt knöttinn fyrir fætur
hans. West Ham lék enn sem fyrr án
nokkurra lykUmanna sinna og munar
þar mest um Alan Devonshire sem
verður ekki tilbúinn í slaginn aö nýju
fyrr en í fyrsta lagi um miðjan mars.
TaUð er nú nær öruggt að Steve WiUi-
ams muni verða valinn í byrjunarlið
enska landsliðsins gegn Frökkum á
miðvikudaginn eftir frábæran leik meö
Southampton gegn Luton á „The DeU”
þar sem Bobby Robson, einvaldur
enska landsliðsins, var meðal áhorf-
enda. WiUiams lagði upp fyrsta mark
leiksins sem annar „kandidat” í enska
landsliðið, Mark Wright, skoraði á 31.
mínútu. Var þetta fyrsta mark Wright
á leiktímabUinu. Dave Armstrong
bætti öðru marki við, einnig með
skaUa, en nú eftir hornspymu á 45.
mínútu. Mal Donaghy tókst að minnka
muninn fyrir Luton á síðustu mínútu
leiksins. ■ En úrsUt leiksins sögðu
ekkert um gang hans, því Southampt-
on hafði mikla yfirburði mestallan
leikinn og átti Frank Worthington m.a.
skot í þverslá og bjargað var á mark-
línu skoti frá Steve Moran.
Staða Úlfanna og
Notts County að
verða vonlaus
Staða MiðlandaUðanna Wolves og
Notts County fer að verða ískyggileg á
botni fyrstu deildar eftir að þau töpuðu
leikjum sínum á laugardaginn. Það
var mikUvægur botnbaráttuleikur
þegar Stoke City og Notts County átt-
ust við á Victoria Ground. Stoke
sigraöi í leiknum með marki Mark
Chamberlain í fyrri hálfleik og getur
mark þetta orðið Uðinu mikilvægt
þegar upp verður staðið í faUbarátt-
unniívor.
Ulfarnir áttu ekki möguleika í leik
sínum gegn Aston VUla á ViUa Park.
Aston ViUa lék mjög vel í leiknum og
voru Ulfamir heppnir að fá ekki fleiri
mörk á sig. Það var gamla kempan
Peter Withe sem skoraði fyrsta mark
Aston VUla í f.h., Paul Birtch bætti
öðru markinu við í upphafi s.h., Withe
þvi þriðja — og öðm marki sínu í leikn-
um — og Mark Walters því fjórða
undir lokin.
Óvæntur skellur
Tottenham
Tottenham tapaði óvænt fyrir
Birmingham City þegar Uðin mættust
á White Hart Lane í Lundúnum. Það
var Mick Harford sem skoraði sigur-
mark Birmingham í upphafi síðari
háUleiks. Hefur Birmingham nú leikið
átta leiki í röðán taps.
Enn syrtir í áUnn hjá Ipswich. Liðið
tapaði nú f jórða leik sínum í röð á úti-
veUi þegar það lék gegn Leicester City
á Filbert Street. Það var Alan Smith
sem náði forystunni fyrir Leicester í
fyrri hálfleik og John O’NeUl bætti
öðru markinu við í þeim síðari. Nicky
Cross náði forystunni fyrir West Brom-
wich Albion gegn Coventry City á The
Hawthoms, heimaveUi Albion, í
byrjun síðari hálfleiks en Terry Gibson
jafnaöi fyrir Coventry skömmu síðar.
Sheff. Wednesday
og Chelsea eru
nú efst í 2. deild
Sheffield Wednesday er nú efst í 2.
deild ásamt Chelsea, eftir að hafa
sigrað Brighton á heimaveUi sínum,
„HUlsborough”. Það voru þeir Gary
Bannister og Imre Varadi sem skoruðu
mörk Wednesday í leiknum. Chelsea
varð að sætta sig við jafntefU gegn
CarUsle á Stamford Bridge í Lundún-
um og var Lundúnaliöiö óheppið aö
hljóta ekki bæði stigin í leiknum og var
t.d. mark dæmt af Kerry Dbcon, sem
þótti meira en lítið furðulegur dómur.
Grimsby Town hefur komið mjög á
óvart í vetur í 2. deildinni og er nú í 3.
sæti í deUdinni. Þeir sigmðu Crystal
Palaee á SeUiurst Park með marki
Tony Ford. Newcastle vann auðveldan
sigur á Cardiff á St. James Park. Það
var Chris Waddle sem skoraði fyrsta
markið fyrir Newcastle en Kevin
Keegan bætti síðan tveim mörkum við,
öðru úr vítaspyrnu. Það var sögulegur
leikur á Craven Cottage þegar Fulham
lék gegn Shrewsbury því í leiknum
misnotaði Paul Carr tvær vítaspyrnur
fyrir Fulham í f.h., en það kom ekki að
sök þar sem heimamenn skoruðu
þrívegis í síöari hálfleik. Þeir Dean
Coney, Rosenior og Gary Stevens með
sjálfsmark sáu um mörkin.
Portsmouth vann góöan sigur gegn
neðsta liðinu í 2. deild, Cambridge
United, á Abbey Stadium (3—1). Það
voru þeir Mark Heatley, sem skoraði
tvívegis, og Aian BUey sem skoruðu
mörk suðurstrandarliösins.
Swansea City vann sigur aldrei þessu
vant. Þeir sigruðu Charlton á Vetch
Field 1—0 með marki CoUn Pascoe í
fyrri hálfleik. Hefur Charlton gefið
mikið eftir að undanfömu eftir gott
gengi meginhluta vetrar. SE
OPGL KAÐGTT 1984
Opel Kadett 1984 hefur vakiö svo mikla athygli, að fyrsta sendingin hingað er
nærri uppseld. Ástæðan er einföld. Opel Kadett samsvarar þeim kröfum sem
gerðar eru til fyrsta flokks fjölskyldubíla. Hann sameinar vestur-þýska vand-
virkni, tækniþekkingu og reynslu. Sparneytni, lipurð, öryggi og kraftur.
Kadett.
Bensínnotkun 6,5 lítrar á hverjum 100 kílómetrum í blönduðum akstri.
Verð frá 272,000 Sex ára ryðvarnarábyrgð. (miðað við gengi 16.2.1984)
BIFREIBADIILD SAMBANDSINS
HOFÐABAKKA 9 SIMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM
GM
&
OPEL