Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1984, Blaðsíða 18
18
DV. MÁNUDAGUR 27. FEBRUAR1984.
STÖRF í LONDON
1 I ~
1. Starfskraftur óskast til starfa við íslenska versl-
un í London. Um er að ræða kynningu og sölu á
íslenskum ullarvörum og fleiru.
2. Starfskraftur óskast til starfa við íslenska um-
boðs- og fyrirgreiðsluskrifstofu í London, ásamt
verslunarstörfum. Æskileg reynsla við ferða-
skrifstofustörf eða annað hliðstætt.
Hér er um að ræða fyrirtæki sem mun hefja rekstur í apríl nk.
Krafist er góðrar enskukunnáttu, góðrar framkomu, heiðarleika
og annars þess sem varðar góða landkynningu.
Störf þessi eru bundin við að viðkomandi sé ekki yngri en 22 ára.
Upplýsingar með nafni, heimilisfangi, aldri, menntun og fyrri
störfum leggist inn á augldeild DV, Þverholti 11, fyrir 10. mars
nk. merkt
„STARF í LONDON"
(r
\ IFJOÐRIN
I í fararbroddi
0
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
rv
NÝKOMIN
STYRKTARBLÖÐ í FJAÐRIR
Vegna mjög hagstæðra innkaupa
eigum við hljóðkúta og púströr í
flestar gerðir bifreiða sem þýðir
lækkun frá þvi sem áður var.
Framleiðum eingöngu úr álseruðu efni
sem gefur mun meiri endingu.
D
D
\
D
D
fli
D;
0
D:
I . ^ ,,AUt á toppinn
Bílavörubúoin Skeifunni 2
FJÖÐRIN 82944
■ ■ 1 Púströraverkstæói
83466 /Jjfc
SKOVERSLUN
ÞÚRÐAR
PÉTURSSONAR
Nr. 28-33kr. 494,-
Nr. 34-39kr. 546,-
Nr. 40-45kr. 598,-
Kirkjustræti 8 — sími 14181.
Laugavegi 95 — simi 13570.
Per-Olof Johnson.
Leikiö á gamla sænska sekkjapípu.
ÞiÓÐLEGT 0G ALÞJÓÐLEGT
Nýjar sænskar hljómplötur
Maurice Karkoff — Vokal — och Kammar-
musik Iróne Mannheimer, ptanó, Margareta
Hallin, sópran, Rolf Lindblom, píanó, Oscars
Motettkör,
Stjórnandi: Torsten Nilsson
Hljómsveit Kungliga Hovkapellet, stjórnandi
Kjell Ingebretsen
Caprice CAP 1189
Per-Olof Johnson, gitarleikari
Tónlist eftir Hilding Hallnas, Johan Helmich
Roman og Per-Olof Johnson
Caprice 1236
Folkmusik í Sverigo: Drillarhorn och knaver-
harpa
Caprice CAP1233
Umboð á íslandi: Fálkinn
Maurice Karkoff er sænskt tón-
skáld sem lengi hefur starfað á
jöörum tónlistarlífs í landi sínu.
Ekki svo aö skilja aö Karkoff hafi
veriö utangarðsmaður, heldur hefur
hann á löngum ferli sínum gætt þess
aö ánetjast ekki einum stíl eöa
„skóla” í nútimatónlist. Hefur hann
þess í staö dregiö aö sér áhrif úr
ýmsum áttum og mótaö úr þeim sin-
ar sérstöku tónsmíðar. Nýlega kom
út hljómplata meö nokkrum þekkt-
ustu verkum Karkoffs, bæöi fyrir
rödd og kammersveitir, og gefur hún
tilefni til frekari umf jöllunar um tón-
skáldiö. Karkoff fæddist árið 1927 í
Stokkhólmi, nam tónsmíöar hjá
Karl-Birger Blomdahl og pianóleik
hjá Olof Wibergh og lauk námi í
píanóleik áriö 1951. Síðar gekk hann
til læris hjá tónskáldum, sem viröast
afar ólík innbyrðis, Vagn Holmboe,
André Jolivet, Hans Holewa, ásamt
fleirum, skrifaöi tónlistargagnrýni í
Stokkhólmi og kenndi tónsmíöar. Á
þeim tíma samdi Karkoff fjölda
verka og í dag eru ópusar hans 152
talsins, þ.á.m. 9 sinfóniur, 30 hljóm-
sveitarverk og ca 150 sönglög.
Með austurfensku
yfirbragði
Þótt ekki sé auðvelt aö feðra tón-
list Karkoffs í tónlistarsögulegum
skilningi þá er hægt aö lýsa henni.
Sérkenni hennar liggja m.a. í ljóö-
rænum undirtón, sem margir vilja
rekja til norrænnar tónlistarheföar,
en fær á stundum á sig austurlenskt
yfirbragö, jafnvel slavneskt. Þó er
e.t.v. ekki úr vegi aö kenna Karkoff
viö miðevrópskan, helst franskan,
expressjónisma. Tónsmíöar hans
eru samt ekki „atónal” heldur „frí-
tónal”, svo aö notuð séu tónlistar-
fræöileg hugtök, og í seinni tíö er aö
finna í þeim aukna festu sem er í ætt
viö nýklassík.
Hljómplötur
Aðalsteinn Ingólfsson
En umfram allt fer Karkoff eigin
leiðir eins og endranær, semur þaö
„sem liggur mér á hjarta”, eins og
hann sjálfur lýsir tónlistariðkun
sinni. Fordómaleysi hans hefur boriö
ávöxt í þeim fjölbreytilegu verkum
sem finna má á hinni nýju plötu
hans. Hann semur lög viö fábrotnar
ljóðlínur Párs Lagerkvist, háfleyg
ljóð Tagores og erótíska hendingu úr
Ljóðaljóðum, tregablandiö rekvíem
yfir fómarlömb nasista — allt af ein-
stöku öryggi. Þessi tónlist er túlkuö
af einvalaliöi sænskra tónlistar-
manna.
Grand old man
Eg hef áður rætt um mikinn upp-
gang og velgengni sænskra gítarleik-
ara, Göran Söllscher og fleiri. Því er
mér sérstök ánægja aö hafa undir
höndum hljómplötu með leik „grand
old man” sænska gítarsins,Per-01of
Johnson. Johnson fæddist áriö 1928
og hefur fyrst og fremst helgaö sig
kennslu á hljóöfæri sitt, innan Sví-
þjóöar sem utan. Gegndi hann um
tíma prófessorsembætti í gítarleik á
þremur stööum, í Malmö, Kaup-
mannahöfn og Basel í Svisslandi.
Um tíma voru horfur á aö Svíar
mundu missa þennan mikla pedagóg
alveg til Vínarborgar og þá var í
skvndi búiö til fyrir hann sérstakt
prófessorsembætti í Malmö.
Á tveimur fyrri hljómplötum sín-
um lék Johnson bæði klassíska gítar-
tónlist og nýja, en í þetta sinn ein-
skoröar hann sig viö sænska tónlist.
Eftir Hallnás leikur hann „Strengja-
spil” (1975), sem er lausbeisluö og
ljóöræn stemma, einhvers staöar
mitt á milli draums og veruleika, en
þó skýrt formuð. Tónlist Brittens
kemur upp í hugann við áheym
verksins.
Púkablístrur og
Harðangursfiðla
Johann Helmich Roman sem lést
1758 var eitt afkastamesta tónskáld
Svía fyrr á tímum. Helmich samdi
býsn af „assaggi” eöa tilraunatónlist
fyrir einleiksfiðlu, og eitt slíkt verk
tók Johnson og útsetti fyrir gítar af
sinni venjulegu snilld. Og loks leitar
gítarsnillingurinn til ástsælasta tón-
smiös Svía fyrr og síöar, Bellmans,
og semur langa svítu, yndislega
áheymar, í kringum nokkur þekkt-
ustu lög hans, þ.ám. Mowitz bláste
en konsert”, „Likdom en herdinna”
og, .Solen glimmar blank och trind”.
Loks langar mig að vekja athygli
á röð hljómplatna sem Caprice hefur
gefiö út á undanfömum árum og nefn-
ir „Folkliga musikinnstrument í
Norden”, og er eins konar tónlistar-
saga. Grafnar hafa veriö upp gamlar
melódíur, sönglög og vísur og eru
þær leiknar inn á hljómplötur á
upprunaleg hljóöfæri. A þeirri plötu,
sem hér er til umræöu, er leikiö á allt
mögulegt, frá púkablistru til Harö-
angursfiðlu.
AI
Olyri^pia compact
Rafeindaritvél í takt við tímann
Hraði, nákvœmni og ýtrasta nýtni á skrifstofurými.
Vél fyrir þá sem gera kröfur um afköst og hagkvœmni ekki síður
en heilsusamlegan og hljóðlátan vinnustað.
Prenthjólið skilar áferðarfallegri og
hreinni skrift. Leiðréttingarminnið
hefur 46 stafi. Pappírsfœrslu og dálkasetningu
er stjómað án pess að fœra hendur af
lyklaborði. Endurstaðsetning, leturpétting og
ýmsar leturgerðir.
KJARAIM
ÁRMUL1 22 - REYKJAVlK - SlMI 83022