Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1984, Síða 4
» wei f'AT'mr-í'ir:! v: SMOAnfmAM v<
4 DV MÁNUDAGUR27. FEBROAR1984
Samningaviðræðum íslendinga, Norðmanna og EBE lauk án niðurstöðu:
Efnahagsbandalagið
vill fá hlut
af íslandsloðnunni
— beitir hagsmunum Grænlendinga fyrir sig f málinu
Viðræðum Islendinga, Norð-
manna og fulltrúa Efnahagsbanda-
lags Evrópu um skiptingu loðnu-
stofnsins á hafsvæðinu viö Island,
Jan Mayen og Grænland er lokiö án
þess að komist yrði að niðurstööu.
Ákveðið var að halda viöræðum
áfram í Bergen snemma í maí.
Til grundvallar þessum viöræðum
lá sameiginleg skýrsla vísinda-
manna þjóöanna frá í maí í fyrra um
dreifingu loðnunnar á þessu svæöi út
frá fjórum mismunandi forsendum.
Metinn var allur stofninn, veiöanleg-
ur hluti hans, fjöldi einstaklinga og
heildarþyngd stofnsins.
Eftir því hvaða forsendur eru not-
aðar meta menn hlut Islands á bilinu
73% til 86% en viö þetta mat er stuöst
viðhlutokkarnúsemer85%. Sútala
var fundin í samningum okkar við
Norðmenn árið 1980 og við teljum
enn í gildi. Skv. honum eiga Norð-
menn!5%.
Tala okkar byggist á því hversu
mikill hluti stofnsins er talinn innan
okkar lögsögu en vísindamenn hafa
ekki tekiö afstöðu til skiptingar
stofnsins á milli Jan Mayen-svæðis-
ins og Grænlandssvæðisins.
Það er inn um þessa smugu sem
EBE hyggst nú troða sér með hugs-
anlegan hlut Grænlendinga að vopni
og sýna samningamenn þess fulla
hörku í málinu eftir því sem DV
kemst næst. Tefla þeir fram tveim
Grænlendingum í samninganefnd
sinni.
Menn velta fyrir sér þessum
ákafa EBE í málinu þar sem Græn-
lendingar ganga úr bandalaginu um
næstu áramót. En glöggir menn
þykjast hins vegar sjá að þarna sé
veriö aö skapa dönskum nótabátum
tækifæri, sem síðar verði samnings-
atriði við Grænlendinga, eða þama
náist kvóti sem hægt verði að versla
með.
Eftir því sem DV kemst næst
standa íslendingar fast á sínu hlut-
falli, svo og Norömenn, en EBE vill
hluta af veiðum beggja.
-GS.
Næg atvinna hefur veríð á Djúpavogii vetur og óvenjumikið um aðkomufólk i fiskvinnslunni.
D V-mYndir Jón A. Garðarsson.
Djúpivogur:
NÝR BÁTUR,
NÆG VINNA
Frá Jóni A. Garðarssyni, fréttaritara
DV á Djúpavogi.
Búlandstindur h/f á Djúpavogi hef-
ur fest kaup á skipinu Pétri Inga KE 32
frá Keflavík og kom þaö til nýrra
heimahaga aðfaranótt síöastliðins
fimmtudags. Pétur Ingi er 214 tonn.
Hann verður skíröur upp og fær heitiö
Stjörnutindur SU 159 og fer á netaveið-
ar.
Búlandstindur á fyrir Mánatind SU
95, 102 tonna bát, og togarann Sunnu-
tind SU 59. Mánatindur hefur stundað
línuveiðar frá áramótum og er afli
hans orðinn 65 tonn að verðmæti 820
þúsund krónur. Sunnutindur hefur
fengið 520 tonn frá áramótum.
Ekkert atvinnuleysi hefur verið á
Djúpavogi það sem af er vetri og að
jinaði starfa milli 120 og 130 manns
hjá Búlandstindi. Aðkomufólk hefur
aldrei veriö fleira, eða 30—35 manns.
Þessi fjöldi er m.a. vegna síldarvinnsl-
unnar en hér var saltað í 16 þúsund
tunnur.
Nú er verið að vinna að breytingum
á húsnæði fyrir rækjuvinnslu hjá Bú-
landstindi og er stefnt að því að verk-
smiðjan verði komin í gagnið í apríl.
Rækjan sem þar veröur unnin fæst úr
Berufirði og einnig verður þar unnin
úthafsrækja. -GB
Pótur Ingi KE 32 frá Keflavik kominn til nýrrar heimahafnar á Djúpavogi og
fær nafnið Stjörnutindur. Eigandi bátsins er Búlandstindur h tf.
I dag mælir Pagfari
Idagmælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
Þvert á móti hefði hann greitt alla
reikninga frá skólanum með giöðu
gerði til að halda friðiun. Sá sem
brest við af hörku þegar honum er
hótað er ófriðarsinni. Skiptir þá engu
þótt hann hafi lög og regiur sin
megin. Friðinn verður að halda og
hvaða máli skipta þá sextíu þúsund
krónur milli vina?
Því miður er ófriðarvilji bæjar-
stjórans í Hafnarfirði ekkert eins-
dæmi. Reykvíkingar geta litið sér
nær. Ekki lyftir Davíð borgarstjóri
litla fingri til að halda friðinn meö
því að láta Reykjavíkurborg kaupa
Fjalaköttinn fyrir nokkra tugi millj-
óna. Þetta er þó réttmætiskrafa
nokkurra manna sem vilja ekki að
þetta glæsilega og sögufræga hús
verði rifið. Að vísu hefur nokkuð
verið sótt að þessum húsfriðunar-
mönnum. Jafnvel verið varpað fram
spumingum þess efnis hvort nokkrir
skattlausir skeggjúðar eigi að
komast upp með kröfur á hendur
samborgurum sínum af þessu tagi.
Langflestum Reykvíkingum sé engin
eftirsjá í þessum húshjalli, enda sé
hann ónýtur og að hmni kominn
hvort eð er. Enn eitt dæmi um
átakanlegan skort á friðaruppeldi,
en eflaust fara friðarsinnar með
sigur af hólmi, enda ávallt reiðubún-
ir að leggja allt í söluraar til að halda
friöinn.
Dagfari.
Það er ljóti kallinn, þessi bæjar-
stjóri í Hafnarfirði. Hann bara
harðneitar aö borga sextíuþúsund-
kall fyrir forláta ritvél sem
nemendur Flensborgarskóla höföu
keypt á bókasafn skólans og ætlað
skattborgurum að greiða. En bæjar-
stjóri belgir sig út og segir cnga f jár-
veitingu frá bæjaryfirvöldum fyrir
þessum kaupum. Svo bætir hann
gráu ofan á svart með því að iáta
seljanda ritvélarinnar taka gripinn
til baka.
Auðvitað brá nemendum og -
kennurum Fiensborgarskóla harka-
lega í brún þegar gerræði bæjar-
stjóra spurðist út. Þessir hópar iögðu
því niður allan innbyrðisskæru-
hernað og f jölmenntu í kröfugöngu á
fund bæjarstjóra. Eins og jafnan
þegar stórviðburðir eru annars
vegar vora fjölmiðlar látnir vita að
stórtíðinda væri að vænta úr Firðin-
um. Þótt Nútíminn hafi enn ekki séð
dagsins Ijós lét Gamlitiminn sig-ekki
vanta á staðinn, enda ótækt að mál-
gagn forsætisráðherra fylgdist ekki
með tímamótaviðburðum. Hálf for-
síða Tímans og ein innsíða vom
lagðar undir myndskreyttar frá-
sagnir af ritvélarmálinu.
I frásögn Tímans er vitnað í yfir-
lýsingu frá nemendum og kennurum
Flensborgarskóla. Hún er orðuð af
hógværð og lítillæti eins og upphafið
ber með sér: „I dag gerðist sá fá-
Ritvél veldur óf riði
heyrði atburður í skólasögu Islands
að bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Iétu
nema á brott ómissandi hjálpartæki
af bókasafni skólans, ritvél bóka-
varöar, sem fræðsluráö hafði gefið
vilyrði fyrir að keypt yrði. Við undir-
rituð, kennarar og nemendur við
Flensborgarskóla í Hafnarfirði
mótmælum þessum gerræðislegu
vinnubrögðum yfirvalda....” í niður-
lagi yfirlýsingarinnar er farið fram á
að bæjaryfirvöld endurskoði afstöðu
sína,...svo komast megi hjá frekari
aðgerðum.”
Þegar frásögn Timans af þessum
„fáheyrða atburði” er lesin fer ekki
hjá því að upp í hugann komi
umræöur þær sem nú fara fram um
friðaruppeldi. Af viðbrögöum bæjar-
stjórans í Hafnarfirði er ljóst að ekki
dugar að einbeita sér að dagheimil-
um og skólum þegar friðaruppeldi er
annars vegar. Það verður að leita
ofar í aldursstigann. Máltækið segir
að vísu, að það sé erfitt að kenna
gömlum hundi að sitja, en það má þó
alltaf reyna.
Ef bæjarstjóri hefði átt þess kost
að fá friðaruppeldi hefði honum
aldrei komið til hugar að efna til
ófriðar við nemendur og kennara í
Flensborg vegna ritvélarinnar.
■ Nemendur rlensborgarxkóli biða þess að fa aheyra
hjá bæjarstjóra. Tímamynd G.E
RITVELAFAR í
HAFNARFIRÐI!
—- miklar deilur vegna
brottnáms ritvélar
af bókasafni
Flensborgarskóla
■ „VID VILJUM RITVf;i,, VID VIIJllM RITVfX,
VID VIIJUM BÆJARSTJÓRANN....“ þelta óskruðu
nemendur Flensborgarskólans fyrír utan bzjankrífslofur
llafnaríjarðar í gærdag er þeir gengu á fund bxjantjóra til
að afhcnda honum yfirlýsingu tegna brottnáms rítvélar af
bókasafni skólans.
Ijöldi nemenda var það mikill að öll umferð um
Strandgöluna stöðvaðlsi meðan á aðgerðum þeirra stóð.
Kitvél sú sem um ræðir var upphallega keypt á bókasafn
skólans um áramótin og lóldu forráðamenn skólans sig hafa
vilyrði Frzðslurads til kaupanna. Bsejarsljórinn aflur á
móti segir að engin heimild hafa veríð til kaupa á rítvélinni
og lél hann því Qaríægja hana. - FRI
Sjá nánar á bls.5
■ Starfsmaður Gísla J. Johnsen fjarlzgir ritvelina ur
Flensborgarskóla. Skólastjórinn Krístján Bersi fylgir
honum tÚ dyra.