Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1984, Side 10
10
.<‘8eiHAOHa3'íí.Y£JHJOAniWÁM VG
DV MÁNUDAGUH 27. FEBRUAR 1984
Utlönd
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Maria Mangonde veitir forstöðu bráðabirgðabarnaheimili fyrir börn sem fundist hafa úti i skógunum.
Þurrkur, hungur, skæruliðar og hvirfilvindar hafa leikið ibúana grátt. En drengirnir þrir á myndinni munu
lifa af, lofarhún. „Ástand þeirra varmiklu verra."
Miklar þjáningar fólks í Mósambik:
Þurrkur, hvirfílvindar og
skæruliöar leggjast á eitt
Maria Mangonde, ekkja og fimm
barna móöir, rekur bráðabirgða-
bamaheimili fyrir sjötíu munaðar-
laus börn, er fundist hafa ein og yfir-
gefin í skógum Mósambik, foreldra-
laus, nafnlaus og heimilislaus.
,,Biaframagar"
Flest barnanna eru með uppbólgna
„Biaframaga”, greinilegt merki um
vannæringu og efnaskort. Þrír litlir
drengir, sennilega á f jóröa ári, liggja
á mottu í skugganum af tré. Þeir
liggja alveg kyrrir, hljóöir og lítið
lifsmark virðist meö þeim.
Maria Mangonde fullvissar um að
takast muni aö bjarga lífi þeirra þó
að ekki sé auövelt aö ímynda sér það.
Hún segir að þeir séu á batavegi,
ástand þeirra hafi áður veriö miklu
verra.
Þetta er í Macuacua, litlum bæ
með um það bil fimm þúsund íbúum
í Gaza-héraöinu í Mosambik, rúm-
lega 200 kílómetra fyrir austan
höfuðborgina Maputo.
Macuacua og nágrenni er bara
einn af mörgum stööum í suðurhluta
Mósambik sem á síöastliðnum
þremur til fjórum árum hefur mátt
þola gríöarlegan þurrk, útbreitt
hungur, fjandsamlega uppreisnar-
menn frá Suöur-Afríku og nú síðast
hvirfilvindinn „Domoina”.
Maria Mangonde hafði sjálf verið
nærri því að láta lífið í þessum hörm-
ungum er „heimavamarlið”
Macuacua fann hana og kom henni
til hjálpar. Flest bömin á barna-
heimilinu hafa h'ka fundist af hern-
um. Tekist hefur að bera kennsl á
nokkur barnanna og foreldrar þeirra
hafa sótt þau en reiknað er með að
flest hinna séu munaöarlaus.
„Domoina"
hvirfílvindur
Fréttamaður sænska blaðsins
Dagens Nyheter kom til Macuacua
einni viku eftir að „Domoina”
hvirfilvindurinn hafði herjað á Suð-
austur-Afríku. Tæplega áttatíu kíló-
metra fyrir sunnan Macuacua Uggja
tugkílómetra breiðir hrísgrjóna- og
maísakrar og sykurplantekror í
Limpdalnum sem nú er allur undir
vatni. En í Macuacua er jafnþurrt og
áður en hvirfilvindurinn kom inn yfir
landið frá Indlandshafi.
Það regn sem þá féll saug þurr
sandjörðin fljótt í sig og eina gagniö,
sem regnið gerði, var aö vatnsból
fylltust og það hjálpaði fólkinu tU að
slökkva sárasta þorstann.
Ibúar Macuacua bölva hvirfilvind-
inum sem flutti með sér stór högl
sem feUdu bæði hálfþroskaöa- og
þroskaöa acajou-ávexti td jarðar.
Uppskera, sem lofað hafði mjög
góðu, eyðilagðist í einu vetfangi.
Hinir safarUtu acajou-ávextir eru
ríkir af vítamínum. Þá má bæði
borða eins og þeir koma fyrir og
breyta þeim í vín eða áfengi. En
eftirsóknarverðust eru tveggja til
þriggja sentímetra. löngu fræin sem
köUuö eru „cashew” hnetur, mikið
notuð af Bandaríkjamönnum út í
kokkteila.
Helsta útfíutnings-
varan eyðilagðist
Acájou-hnetumar eru ein helsta út-
flutningsvara Mósambik og ein aðal-
tekjulind landsins. Macuacua og um-
hverfi er eitt drýgsta ræktunarsvæði
Gaza-héraðsins. Nú er hins vegar
svo komið fyrir þessu svæði að hinn
80 kilómetra langi vegur frá Xai-Xai,
höfuðstað héraðsins, er nær allur
manna. En nú eru liönir tveir
mánuðir frá því að Macuacua bárust
nokkrar hjálparsendingar í formi
matvæla.
Þar tU fyrir skömmu höfðu um 10
þúsund manns safnast saman í
Macuacua í leit að hjálp en þegar
matvælasendingamar hættu hélt
fólkið á ný út í skógana til að freista
þess að draga fram lífið á berjum,
rótumoglaufi.
1500 manns
hafa iátist
Macuacua liggur í Manjacaze-hér-
aði, þar sem 1500 manns hafa fram
að þessu látið lífið af völdum þurrka
og hungurs. Ibúafjöldi héraösins er
svipaður og fjöldi Islendinga eða
rúm 200 þúsund. Tuttugu prósent
þeirra eða um 40 þúsund þarfnast
neyöarhjálpar þegar í stað og þá er
rétt að minna á að hér er bara um að
ræða eitt af mörgum héroðum
Mósambik sem orðiö hafa svo illa
úti.
Ibúum Macuacua er enn í fersku
minni árás skæroliöa þann 16. maí
1982.1 þeirri árás létu sextán manns
lífiö þar á meðal fimm starfsmenn
Frelimo-stjórnarinnar.
„Þeir eru vanir því aö spyrja fyrst
um okkur Frelimomenn,” segir
Sarmento Kuku, einn af embættis-
mönnum héraðsins. „En mér tókst
að komast undan. Eg heyröi byssu-
skot í nágrenninu og flýði. En þeir
eyðilögöu heimili mitt.”
Sjúkrastofan
brennd
„Glæpamennnirnir”, eins og
skæruliðamir ero kallaðir af íbúun-
um, brenndu sjúkrastofuna til ösku
og gamall maður fórst þar í
logunum. Rétt hjá standa rústirnar
af fæðingarheimilinu. Ljósmæðrom
tókst aö tala skæroliðana á að
hleypa þunguðum konum og nýfædd-
um bömum út áður en eldur var bor-
innaðhúsinu.
Lítil rafstöð meö vatnsdælu, sem
dældi vatni upp úr 40 metra djúpri
borholu, hefur verið biiuö í tuttugu
mánuði. Uppreisnarmennirnir sáu
til þess aö stööin varö ónothæf. „En
það vantar ekki nema c-inn varahlut
og rafmagnsmann til að koma vél-
inni í gang aftur,” segir Sarmento
Kuku og konumar, sem eiga sæti í
kvennaráði bæjarins, kinka kolli
samþykkjandi.
Konumar segja aö það vanti líka
tilfinnanlega nýjan vörobíl í stað
þess sem skæroliðarnir brenndu,
einnig nokkrar dráttarvélar, nýtt
maís-útsæði og grænmetisfræ „og þá
mun okkur örogglega takast að
koma matvælaframleiðslunni í gang
á ný ef það bara kemur meiri
rigning... ”
„Heimavarnar-
iiðið" fíúði
Þegar skæruliðamir réðust á
Macuacua flúði heimavamarlið
vegna þess að „glæpamennimir”
höfðu komið þeim orðrómi á kreik aö
byssukúlur Frelimo væro alveg
gagnslausar.
En árangursrík sókn hersins í
janúar 1983 hefur gefið „heima-
vamarliðinu”sjálfstraust á ný. Trú
fólksins á framtíöina hefur einnig
aukist með því að vamirnar hafa
verið tryggðar. Nokkurt uppbygg-
ingarstarf hefur byrjað. I fyrra var
fólkið allt of veikburða til að vinna
sökum þurrksins og hungursins.
„Glæpamennirnir” voru vanir að
vinna saman í um hundrað manna
hópum. I sókn Frelimo-hersins í
fyrra náði hann að uppræta sjö
skæraliðastöðvar í skógunum
kringum Macuacua. Það þurfti
fimmtíu vöruflutningabíla til að
flytja burt öll vopnin úr þessum
stöövum en þeim haföi veriö flogið
með þyrlum frá Suður-Afríku að
næturlagi.
Árás skæruliða
á jóiadag
Skæruliðamir láta þó enn til sín
taka á svæðinu og síðastliöinn jóla-
dag sátu þeir fyrir og eyðilögðu flutn-
ingabíl er flutti námuverkamenn til
Suður-Afríku.
Lítil járnbraut liggur meðfram
veginum til Macuacua en langt er
um liðiö síðan hún kom að gagni.
Jámbrautin var lögð til að flytja
acajou-uppskero og námuverka-
menn. Otflutningur á acajou-hnet-
um til Bandaríkjanna og námu-
verkamanna til Suöur-Afríku hafa
verið aðaltekjulindir héraðsins. En
þessar tekjulindir hafa báöar orðið
fyrir barðinu á efnahagslegu stríöi
stjómarinnar í Pretóríu gegn
Mósambik og skæruliðunum sem
studdir eru af Suður-Afríku. Ofan á
ógnir þeirra hafa svo bæst þurrkar
og hvirfilvindar.
þakinn brotnum og föllnum acajou-
trjám.
I Macuacua eru nokkrar verslanir
í einkaeign og þar er margvíslegur
vamingur á boöstólum. En hvaö
getur fólkið keypt þegar það hefur
ekki lengur acajou-hnetur til að
borgameð?
Versti þurrkurinn í manna minn-
um hefur staðið nær látlaust frá 1981.
Árið 1982 eyöilagðist meira að segja
„kassavan”, sem er mjög lífseigur
rótarávöxtur, sem þolir þurrk venju-
lega mjög vel og er ásamt maísnum
þýðingarmesta grannfæða fólksins.
Árið 1983 gerði nokkrar smáskúrir
og með neyöarhjálp á síöari helmingi
ársins tókst að bjarga h'fi margra
Umsjón: Gunnlaugur A. Jónsson