Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1984, Page 16
16
VI —
DV MÁNUDAGUR 27. FEBRUAR1984
Spurningin
Hver er uppáhaldsþátturinn
þinn í sjónvarpinu?
Ásgeir Sigurjónsson: Það eru
fréttimar. Annars finnst mér Kastljós
líka athyglisvert, svo eru framhalds-
þxttirnir ágætir.
Guðrún Olafsdóttir: Mér finnst nýi
þátturinn á þriöjudögum
skemmtilegur. Síðan eru Tommi og
Jenni ágætir. Annars horfi ég ekki
mikiðásjónvarp.
Þórey Björgvinsdóttir: Ég horfi nú
ekki mikið á sjónvarp. Annars eru
framhaldsþættirnir ágætir, ég horfi
yfírleitt áþá.
Kolbrún Leifsdóttir: Eg myndi segja
að iþróttaþættirnir væru skemmtileg-
astir. Og svo náttúrlega fréttir. Annars
eru framhaldsþættirnir ágætir.
Ragnhildur Einarsdóttir: Egveitekki
hvað ég á að segja. Mér fannst
Dallasþátturinn skemmtilegur en nú
er ég búin að fá leiða á honum.
Sigurður Páll Sigurðsson: Mér finnst |
bíómyndirnar á laugardögum j
skemmtilegastar. Annars eru fram-
haldsþættimir ágætir.
Hans Ragnar Þór í starfskynningu
spurði.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
MÁLGAGNIÐ í ÞORSKHAUS
Anna Hulda skrifar:
Ungur myndlistarkennari, Björgvin
Björgvinsson, skrifaði kjallaragrein í
DV mánudaginn 20. febrúar síðastlið-
inn.
Fyrirsögn greinarinnar var
„Pólitísk f jölmiðlaeinokun” og fjallaði
hún um stofnun hlutafélagsins Isfilm.
Helst þá þátttöku Reykjavíkurborgar í
fyrirtækinu. Þessi ungi myndlistar-
kennari talaði um aö ,,þaö sem er hvað
alvarlegast viö þetta stórfyrirtæki í
fjölmiðlun er aö í því má greina mjög
ákveðiö pólitíska einokun á vettvangi
fjölmiðlunar hér í framtíöinni”. Og
síðan var hluti greinarinnar um
„afglöp” borgarstjórans í Reykjavík,
Davíðs Oddssonar, í þessu máli.
Umþannþáttinnsagðihann: „Egvil
bæta því við að víða erlendis sjá valda-
menn sig knúna til aö segja af sér emb-
ætti fremji þeir pólitísk mistök. Þetta
ætti Davíð Oddsson að taka sér til
fyrirmyndar og segja af sér embætti
borgarstjóra vegna þess að framkoma
hans í þessu máli eru alvarleg pólitisk
afglöp.”
Eg vil leyfa mér aö benda þessum
unga kratasyni á, já maöurinn er
sonur stórkratans Björgvins Guð-
mundssonar, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Bæjarútgeröar Reykja-
víkur, að hann hefur flett upp í röngum
fræðum. Þess vegna fengiö rangar
niðurstööur, heimatilbúinn sleggju-
dóm um pólitísk afglöp.
Kratakenningarnar, sérstaklega
heimatilbúnar, eru líka fátæklegar. Sá
stakkur er þröngur og heppilegar væri
fyrir myndlistarkennarann að leita aö
frjálsri hugsun og frjálsri skoðana-
myndun, sem hann ræöir einnig um í
greininni, annars staðar en á heima-
velli. Þegar stjórnmálamaður sýnir
mikla framsýni í starfi, eins og Davíð
Oddsson gerir í þessu máli, er þaö að
sjálfsögöu ofvaxið skilningi kratatitta
úti í bæ sem hafa fengið nasasjón af
rekstri Bæjarútgeröar Reykjavíkur í
tíð stórkratans. Slíkir skilja ekki hvað
er hér á ferðinni. Og auðvitað eru þeir
hinir sömu sárir yfir því að vera fyrir
utan þróunina í fjölmiölaheiminum.
Þeir sem státa sig aðeins af málgagni
sem kemst fyrir í einum eldspýtu-
stokki eða þorskhaus.
Berarhendur
— Ijót auglýsing fyrír matvælaiðnað
GRA skrifar:
Það er ósjaldan að brugðið er upp
myndum úr matvælaiðnaði okkar
landsmanna, t.d. í fréttatíma sjón-
varps af hinum ýmsu tilefnum.
Þaö er ekki einungis þegar sýndar
eru myndir úr fiskvinnslu aö þar er
fólk sem handleikur fiskflök, rækju og
skelfisk með berum höndum áður en
hann er settur í umbúðir.
Þetta á sér staö um fleiri þætti í
vinnslu matvæla. Mest er þetta áber-
andi þegar auglýsingamyndinni um
aukið eftirlit í fiskiðnaði bregöur fyrir.
Það er sennilega í þeirri mynd sem
lögð er áhersla á „hvert óvarlegt hand-
tak.. . ”o.s.frv.
Gott og nauðsynlegt slagorð en þaö
stingur í stúf að sjá hluta af fólkinu við
vinnslu með hanska á höndum en
annað sem notar berar hendumar.
Það er löngu liðin tíð alls staðar í
hinum iðnvædda heúni í kringum
okkur aö fólk noti berar hendur við
hráefnisvinnslu, aö ekki sé nú talað um
matvæli á lokastigi vinnslu svo sem við
pökkun, frágangogafgreiðslu.
Ekki þarf að kenna um óhentugum
eða óþægilegum hönskum eða því aö
þeir séu ekki til. Mörg ár eru síðan
þunnir, glærir hanskar voru teknir í
notkun við hvers konar matvælaiðnaö
til aö hlífa bæði starfsfólki og mat-
vælum og til að koma í veg fyrir óhöpp
sem geta orðið fyrirtækjum dýrkeypt.
Þær myndir, sem sýndar eru á opin-
berum vettvangi, t.d. í auglýsinga-
bæklingum eða fréttum frá vinnslu-
stöðum sem framleiða matvæli til út-
flutnings, geta ráðið úrslitum um við-
tökur og vinsældir þeirra vara sem um
ræðir.
Það hefur oft reynst erfitt aö venja
Islendinga við viðteknar reglur og
skyldur sem annars staðar þykja sjálf-
sagðar. Myndirnar af berhenta fólkinu
í fiskiðnaði sanna það.
Iðnaður er ekki allur á eina bókina
lærður og þótt í sumum greinum séu
vörur verðmætar, sem hægt er að
stimpla á „handmade”, á það ekki við
um matvæli til útflutnings, hvaö sem
öðru líður. Þar á best við að auglýsa að
mannshöndin hafi þar hvcrgi komiö
nærri, a .m.k. ekki óvarin.
Þaö er hörmulegt til þess að vita aö
starfsfólki skuli það í sjálfsvald sett
hvort það notar hanska við frágang og
pökkun á fiski eða ekki. Starfskraftur
sem bregður sér frá færibandavinnu í
slíkum iðnaði getur víða komið við
áður en hann tekur upp þráðinn að
nýju. Og ekki er víst að hann fylgi þá
reglum í þeirri ferð sinni frekar en
hann skirrist við að nota hanska.
Nóg um þaö að sinni. En hér hlýtur
opinbert eftirlit að taka upp þráðinn og
sinna sinni skyldu.
Heimsmetstilraun í göngu
Tveir frá höfuðborgarsvæðinu skrifa:
Við skrifum vegna greinar sem kom
í lesendadálki DV 14. febr. 1984. Eig-
andi þeirrar grein'ar er „einn sem er á
móti því að kasta skít á landsbyggð-
ina”. Og okkur langar aö koma með
nokkrar athugasemdir.
Bréfritari segist eitt kvöldið hafa
gengiö frá Hlemmi upp í Breiðholt
(sem eru litlir 10—12 km) á 40—50
minútum. Ef það er satt þá langar
okkur tii að óska þér til hamingju með
þennan frábæra árangur. Heimsmetiö
í 20 km göngu er 1 klst., 20 mín. og 6,8
sek., þaðsamsvarar80mín. og6,8 sek.
Ef þú margfaldar með 1/2 þá færðu 40
mín. og 3,4 sek. Þú ert hér með aö ógna
heimsmeti í 10 km göngu en ert örugg-
lega nýbakaður Islandsmeistari í 10
kmgöngu (SjánánaríHeimsmetabók
Guinness, bls. 280).
Þótt þiö Vestfirðingar séuðmiklir
göngugarpar og með fjöllin rétt við
bæjardyrnarþá erþetta ótrúlegt.
Einnig segir þú aö 90% af öllum öku-
mönnum (um það bil 55.000 ökumenn)
á höfuðborgarsvæöinu fari á nælon-
skyrtum út í ófærðina og á nauðasköll-
óttum dekkjum, sem er í meira lagi
ýkt.
Og svo að lokum má benda á aö bíll-
inn er þarfasti þjónninn hér á höfuð-
borgarsvæöinu, tii dæmis um f jöldann
hafa mælst 35.000 bílar á sólarhring á
Bilafjöldinn hefur mælst 35.000 á sóiarhring á Breiðhoitsbrautinni en þó má gera ráð fyrir því að svo hafi
ekki verið þegarþessi mynd var tekin.
Breiðholtsbraut við Fáksheimilið og mýrarbraut í Fossvogi og auk þess númeri fastir í ófæröinni í höfuöborg-
um 25.000 bílar á sólarhring á Kringlu- hafa oft sést bílar með utanbæjar- inni.
Afgreidsla til
fyrirmyndar
Sigríður Jónsdóttir, Seltjarnarnesi,
skrifar:
Vörumarkaðurinn á Seltjamarnesi
býöur upp á alls konar vöruúrval og
afgreiðslufólk er með afbrigðum lipurt
og leiðbeinandi þar til kemur aö kass-
anum. Þar sitja fyrir ungar stúlkur
með fýlu- og nánast frekjusvip og
sömu framkomu. Svo brá þó viö í gær,
þann 21. febrúar, að ég fór þangað tii
að versla. Vora tveir kassar opnir,
númer tvö og þrjú. Flýtti ég mér að
kassa númer tvö þegar ég sá hver sat
við kassa þrjú. Þar var þá fyrir stúlka
sem sýndi framúrskarandi kurteisi,
lipurð og alúölegheit og ber að þakka
henni.
Svo undrandi varð ég og ánægð
aö strax þegar heim kom hringdi ég og
talaði við verslunarstjórann og fékk
nafn stúlkunnar. Vil ég aö fram komi
að nafn hennar er Rúna. Mættu hinar
kassadömumar taka hana til fyrir-
myndar. Veit ég um marga hér á
Seltjarnarnesi sem af þessum sökum
versla í matvöraverslun JL-hússins.
Þar þarf ekki að standa, þótt biðröð
sé, hálfskjálfandi bíðandi eftir ónotum
þegar greitt er. Þar er einnig allt til
mikils sóma og fólki hjálpaö út, já alla
leiö út í bifreið meö poka sína, ef svo
ber undir. Þökk sé „kassastúlkunni”
Rúnu í Vörumarkaðnum og vonandi að
hún haldi þessu áfram.
17
DV MANUDAGUR 27. FEBRUAR1984
Husqvarna - mest selda saumavélin á íslandi
Nýtum göt-
uríbróðemi
Hlaupari úr Breiðholti hringdi:
Sagðist maðurinn iðulega fara út að
hlaupa um miðnætti og hlypi þá á göt-
unum því búið væri aö nota peninga
skattborgara til að moka snjónum upp
á gangstéttir. Sagði hlauparinn að bíl-
stjórar þyrftu að hafa í huga þá stað-
reynd að í þessu tíðarfari væru göt-
umar einu umferðaræðarnar og þær
þyrftu akandi, fótgangandi og hlaup-
andi aö nýta í bróðemi.
Hægtað hlera
Utvarpseigandi hringdi:
Eg vil benda þeim sem eiga nýju
bílasímana á aö tala ekki saman eins
og þeir séu að tala á lokaðri línu.
Þannig er mál meö vexti að með
ákveðnum viðtækjum, sem til eru víða,
má hlera öll þessi samtöl í bílasím-
unum. Þessi viðtæki eru þau sem hafa
skalann VHF eöa mjög háa tíöni
(very high frequency).
Liverpool of of t
Henry Alexander Henrysson skrifar:
Við erum hér tveir úr Hlíðunum og
okkur langar til að benda á það að
Liverpool er einum of oft í ensku knatt-
spymunni. Okkur finnst einnig of
mikið aö hafa tvær beinar útsendingar
með Liverpool í vetur. Leik Everton og
Liverpool, sem sjónvarpað verður
beint 3. mars, er alveg hægt að sleppa
og sýna í þess stað leiki t.d. með
Arsenal eða Southampton. Þess má
geta að aðalleikur með Arsenal hefur
aðeins verið á dagskrá einu sinni í
vetur en Liverpool er í annaö hvert
skipti.
NÝTT SÍMANÚMER
í NÝ)U HÚSNÆÐI Á NÝ)U ÁRI
687700
Við fiuttum okkur um set
ínýtt glæsilegt húsnæði,
eða yfir portið láttu sjá þig
Velkomin.
HUSA
SMIDJAN
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 91352ÖO
Nýkomin vorlínan af Baby-Kit tilsniðnum
barnafatnaði frá Husqvarna.
Vekjum sérstaka athygli ó hinum vinsœlu lánskjörum okkar vifl
saumavólakaup, sem er ca helmingur út, eftirstöðvar lánum vifl
vaxtalaust í tvo mánufli.
EV- SALURINN
Á 3. HÆÐ í FIATHÚSINU
800 FERMETRA SÝNINGARSALUR
ENGIN ÚTBORGUN
JÚ - Þaðer STAÐREYND
Talsvert magn af notuðum bílum
sem greiða má á 3,6,9 eða jafnvel
12 mánuðum.
BARA HRINGJA - SVO KEMUR ÞAÐ
HRINGIÐ - KOMIÐ - SK0ÐIÐ
Opiö kl. 9—19 virka daga,
laugardaga kl. 10—16
sífelld þjónusta-sífelld bílasala
1929 ALLT Á SAMA STAÐ 1984
notodir bílor
EOÍLL * ©Í9f« umbodssins
VILHJÁLMSSON HF
Smíðjuvegí 4c — Kópavogi — Sími 79944
Lesendur Lesendur
SPARIÐ - SAUMIÐ SJALF
MEÐ HUSQVARNA
VERÐ FRÁ KR. 9.800.