Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1984, Síða 21
DV MÁNUDAGUR 27. FEBRUAR1984
Framleiðsla
dömu-
binda í
undirbúningi
r
a
Akureyri
Ákveöið hefur veriö aö hefja fram-
leiðslu dömubinda á Akureyri og er
unnið aö stofnun fyrirtækis þar aö lút-
andi.
Að sögn Finnboga Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Iðnþróunarfélags Eyja-
fjaröar, hefur undirbúningur staðið
síöanísumar. Þá var leitað eftir því
aö félagið athugaði möguleika á slíkri
framleiðslu. Lá fyrir greinargerð um
það rétt fyrir jólin. Nokkrir aöilar
sýndu málinu áhuga og var niðurstað-
an sú að eigendur Brauögerðar Krist-
jáns Jónssonar og Co munu stofna og
reka fyrirtækið. Finnbogi sagði að sér
litist mjög vel á aö þessir aöilar tækju
framleiðslu dömubindanna að sér.
Þeir hefðu staðið sérlega vel að upp-
byggingu bakarísins og hefðu mjög
gott sölukerfi um allt land sem kæmi
sér vel í að byggja upp markaðinn.
Júlíus Snorrason, einn eigandi
brauðgerðarinnar, sagði að gert væri
ráö fyrir að dömubindin kæmust á
markaö með vorinu. Samvinna væri
viö sænska fyrirtækiö Dandi sem væru
stærstu framleiðendur dömubinda þar
í landi. Þeir veittu tækniaöstoð, útveg-
uöu hráefni og seldu vélar. Dandi er
framleiðandi vélanna sem til þarf. Is-
lensku dömubindin, sagði Júlíus, aö
væru sömu tegundar og þau sænsku, en
eru framleidd með íslensku nafni.
Nokkrar konur hér á landi notuðu nú
slík bindi til reynslu og hefðu þau
reynst vel. Kvaðst hann vonast til að
íslenska framleiðslan yrði undir mark-
aðsverði.
Ekki er ákveöiö með húsnæði fyrir
verksmiðjuna, en skrifstofa og dreifi-
kerfi brauðgerðarinnar munu nýtast
fyrir hana. Fjárfesting vegna fram-
leiðslu dömubindanna er áætluð 5
milljónir króna. I framleiöslunni
sjálfri er gert ráð fyrir 3 starfsmönn-
um.
-JBH/Akureyri
Þægindi frá Auping
Einnig í > þitt rúm
Nýi þverspennti sjúkrabotninn frá Auping sem
lagar sig að líkamanum.
Með einu handtaki lyftist höfðalagið sjálfkrafa
upp sem er mjög þægilegt t.d. fyrir bókaorma,
sjónvarpssjúklinga eða kaffiþyrsta (morgun-
kaffi). Einnig er hægt að lyfta upp fótalagsmegin
og þá líður þreytan þægilega úr fótunum. Einnig
eigum við USA dýnukerfið sem reynst hefur sér-
staklega vel fyrir brjósklossjúklinga og baksjúkl-
inga.
Al/ar nánarí upplýsingar veitum við i
verslun okkar.
komfortabeP
auping
Lancer er otrulega sparneytinn bill.
Aðeins 5,51100/km í utanbæjarakstri (1500GLX).
□ Mjög lágur vlndstuöull = 0,38.
jTTTTI D Ha9stæö Þungadreifing á framhjól.
VELimm? ** D Církassi meö 5 hraöastig - þar af einn yfirgír.
VcLDUK. Hiutfall millí orku og þunga mjög hagkvæmt.
Léttarí vél meö betri nýtingu.
ÚR STJÓRNSTÖÐINNI:
íbjúgt mælaborö meö nýstár-
legu fyrirkomulagi mæla og
rofa. — Allt til aö auka á
öryggi og vellíöan þeirra, sem
í bílnum eru.
1984 ARGERÐIN FRA MITSUBISHI
5 manna „drossía" með framhjóladrifi
6 ÁRA RYÐVARNARÁBYRCÐ
UR BETRI STOFUNNI:
í Lancer '84 skiptir vaxtar-
lagiö engu. Meö ótal mögu-
leikum á stillingu, veröa
sætin jafn þægileg fyrir alla.
H
-r