Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1984, Blaðsíða 31
DV. MÁNUDAGUR 27. FEBRUAR1984.
31
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar:
Umsóknir um fjár-
hagsaðstoð hafa aukist
— segir Guðrún Kristinsdót tir félagsráðgjaf i
Samúel kærirríkið
fyrir eitursölu:
Þetta er
gamankæra
— segir
ríkissaksóknari
„Eg lít á þetta sem gamankæru.
Kæran liggur hérna á boröinu hjá
mér og ég sé ekki ástæðu til að ana
að neinu,” sagði Þórður Bjömsson
ríkissaksóknari aðspurður um
kæru tímaritsins Samúels á ríkiö
vegna tóhaks- og áfengissölu þess.
I kærunni er vitnað til greina í lög-
um sem kveða svo á um að óheimilt
sé aö flytja inn eöa selja nautna-
vörur sem ætla megi að séu skaö-
legarheilbrigði manna.
„Eg ætla að þeir Samúelsmenn
séu að þessu vegna þess aö þeir
hafa sjálfir verið kæröir fyrir vind-
lingaauglýsingar og vilja halda
umræöunni lifandi. Ef þeim væri
alvara hefðu þeir átt að snúa sér
beint til Alþingis og fara fram á að
lögum þeim sem heimila ríkinu að
flytja inn og selja áfengi yrði breytt
eða þau numin úr gildi,” sagði rik-
issaksóknari. „En ég svara þessu
erindi meö tíð og tíma líkt og
öðrum.”
-F.IR.
„Því er ekki að leyna að við höfum
orðið vör við greinilega aukningu á
umsóknum um fjárhagsaðstoð,” segir
Guðrún Kristinsdóttir, félagsráðgjafi
hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur-
borgar.
Strax í maí í fyrra fór að bera á
þessari aukningu og hefur hún haldið
áfram jafnt og þétt síöan.
„Umsóknir hafa aukist bæði hjá
f jölskyldum og einstaklingum, þó frek-
ar meira hjá einstaklingum og þá sér-
staklega yngri skjólstæðingum okkar,
á aldrinum 17—26 ára,” segir Guörún.
Stór hluti þeirra sem sækja um að-
stoö eru atvinnuleysingjar, öryrkjar
og sjúklingar eða ailt aö áttatíu af
hundraði umsækjenda.
„Þetta segir kannski nokkuö um
ástandiö hjá þessum hópum. Margt af
þessu fólki lifir ekki af þeim bótum
sem það fær,” segir Guðrún.
Félagsmálastofnun er frekar þröng-
ur stakkur skorinn hvað varðar rými
til aðstoðar þessu fólki og segir Guörún
að flestum starfsmönnum stofnunar-
innar finnist allar fjárupphæðir mjög
naumar.
„Það er ákveðin pólitfk í þessu og
sjálfsagt eru margir sammála því að
hafa þessar upphæðir lágar en ég er
þeirrar skoðunar að þaö væri hægt að
veita raunhæfari aðstoð með því að
hafa þetta aðeins ríflegra. Þannig tel
ég að stofnunin geti betur rækt þaö
hlutverk sitt að vera uppbyggjandi í
starfi sínu því eins og er eru upphæð-
irnar þaö lágar aö við byggjum enga
uppmeðþeim,” segirGuörún.
Þar að auki telur Guðrún að það
starfsfólk stofnunarinnar sem sinnir
þessari einstaklingsbundnu þjónustu
sé of fátt.
„Alls eru það 15 stöðugildi sem eiga
að sjá um þessa þjónustu á vegum
borgarinnar. Fimm manns sjá um
Breiðholtshverfi, fjórir mið-austurbæ-
inn og fimm og hálft stöðugildi er fyrir
mið- og vesturbæ. Þetta er hreinlega
of fátt fólk því við eigum líka að sinna
áfengismálum og barnavemd og það
tekur sinn tíma líka,” segir Guðrún.
Nokkuö er um aö félagsmálastofnun
verði að vísa frá fólki sem ekki uppfyll-
ir þær kröfur sem gerðar eru til styrk-
þega. En þrátt fyrir aö fólk þetta fái
ekki fjárstyrk frá stofnuninni er því
hjálpað á ýmsan máta. Mikið er um að
starfsfólk stofnunarinnar aðstoði fólk
sem er í fjárkröggum við að semja um
sínar skuldir, skipuleggja greiðslu-
áætlanir og f leira í þeim dúr.
„Synjun á f járhagsaðstoð þarf ekki
að þýða synjun á aðstoð,” segir Guð-
rún Kristinsdóttir, félagsráðgjafi hjá
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborg-
ar.
-SþS
FRISKK
/MÍN
Nýr heilsuvökvi
fyrirbömog fulbröna.
Frískamín er blanda rík af A-, B-, C-
og D-vítamínum. Hæfilegur
skammtur uppfyllir vítamínþörf
allra aldurshópa. Dagleg notkun
Frískamíns kemur í veg fyrir
vítamínskort á vaxtarskeiði barna
og unglinga.
Frískamín með fersku ávaxta-
bragði fæst í næstu matvöruverslun.
r—-----------"
[ Nafnspjöld og alls konar
skírteini
L DISKORT
IARDARHAGA 27 a22680^
■
B
■
■
IH
"ATHÍ........=
Prantum allskonar J,
sjálflímandi miöa
og merki.
■
LÍMMERKI |
Síðumúla 21
sími 31244.
!■■■■■■■■■■■■!
,\
ii GEYSJR
Bíla I eiga
Car rental
Borgartún 24 (hom Núatúnsl
Sími 11015, á kvöldin 22434,
Sækjum — Sendum
— Aðeins að hringja —
Nýir og sparneytnir bílar.
Tegund og árgerð
daggj Kmgj
Lada 1500 station
árgerð 1984.
500
5,00
Opel Kadett (framdrif)
árgerð 1983.
600
6,00
Lada Sport jeppar 1984
Subaru 4 WD 1984
800
Allt verð er án söluskatts og bensins
AIWA*
HLJÓMUR
FRAMTÍÐARINNAR