Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1984, Síða 45
),R8i HAUflaa'i .vs íiuoaouviam va
DV MÁNUDAGUR 27. FEBRUAR1984
45
Sviðsljósið_____________ Sviðsljósið_____________________________Sviðsljósið
BoyGeorge
ogskólastjórinn
„Það þýddi ekkert að eiga við strákinn.
Við vorum heppin ef hann lét sjá sig í skólan-
um einu sinni í mánuði,” segir Peter Dawson,
skólastjóri í Éitham Green skólanum í
London, en þar stundaði Boy George nám á
árunum 1971—76.
„Hann var hýddur í tvígang og fékk fjölda
viðvarana en allt kom fyrir ekki. Ekkert
þýddi að senda bréf heim til foreldra hans því
Boy George virtist alltaf ná því að koma þeim
undan. Því var gripið til þess ráðs að setja
hann í sérstaka deild fyrir vandræðagemlinga
en þar sat hann eins og daufdumbur og starði
á veggi,” er haft eftir skólastjóranum.
JamesBond
hjargarfjár-
hagnum fyrírhorn
Hinn cini og sanni James Bond, skoski
kvikmyndaleikarinn Sean Connery, haffti um
100 milljónir króna út úr málaferlum sem
hann stóó í vift fyrrverandi fjármálaráftgjafa
sinn. Réttur í Lundúnum hefur komist að
þeirri nifturstöftu aft fjármálaráftgjafinn hafi
meft röngu ráftstafaft peningum Connery á
vægast sagt vafasaman hátt árift 1977 þegar
hann lánafti frönsku verktakafyrirtæki tug-
milljónir. Verktakafyrirtækift varft svo gjald-
þrota og James Bond sat eftir með sárt ennift.
Kenneth Richards, en svo nefnist ráðgjaf-
inn, býr nú í Frakkiandi og lét þau boð út
ganga þegar hann frétti dómsniðurstöður að
hann væri enginn maður til að greifta þessa
upphæð. Sean Conncry cr aftur á móti hinn
versti og segist ekki hætta fyrr en hann hafi
knébeygt þennan gamla féiaga sinn: „Ég
treysti honum fyrir fjármunum minum en
hann brást því trausti. Ég sýni enga misk-
unn.”
Talift cr víst aft fjárhagsvandræfti lcikar-
ans hafi orðift þess vaidandi að hann lét tillcift-
ast að lcika Jamcs Bond á ný í kvikmyndinni
„Never say never again”.
VILIS....
... sagði ísbjöminn í Sædýrasafninu við ljósmyndara DV sem þar var á ferð fyrir skömmu til að taka
myndir af apanum.
„Ég á engan ís, sagði ljósmyndarinn og leitaði í öllum vösum.
— Taktu þá þennan, hreytti isbjöroinn út úr sér, reif upp ishellu og henti í ljósmyndarann. Þeim
síðaroefnda brá, greip íshelluna á lofti og setti í vasann með þeim afleiðingum að allar filmurnar
blotnuðu.
Sneri hann heim við svo búið án apamyndanna en reynslunni ríkari: Setjið aldrei íshellur frá ís-
björoum í vasann. DV-mynd Loftur.
MSB
Kerfið í reynd:
GUÐRÚNÁ
GÖTUNNI
— húsnæðisvitleysan bitnar
á landsfrægri söngkonu
„Ég hef búið í 20 ár í útlöndum og alltaf leigt mér húsnæði og
það sama hef ég gert þau 20 ár, sem liðin eru frá því ég flutti
heim. En nú allt í einu, nýorðin sextug, stend ég á götunni og allt
útlit fyrir að ég verði að búa í bílnum mínum með allt mitt hafur-
task og fá að skreppa inn til kunningja til að nota klósettið,” segir
Guðrún Á. Símonar og á varla orð til að lýsa vanþóknun sinni á
íslensku húsnæðismálakerfi.
„Ég er góð og gegn sjálfstæðiskona og hef alltaf kosið íhaldið.
En ég er á móti þeirri stefnu að allir eigi að eiga sitt. Eg hef séð of
marga streða allt lífið til þess eins að eignast þak yfir höfuðið og
deyja svo frá öllu saman. Þá er betra kerfiö í útlöndum, maður
leigir þann tíma sem maður þarf og fer svo. Það hefur aldrei verið
hægt hér heima.”
Heimskonan Guðrún Á. Símonar hefur að vísu fengið eitt tilboð
í húsnæðisvandræðum sínum: „Mér voru boðin þrjú herbergi í
Kópavogi, of all places, á 7.500 krónur. Svona er verðið í dag, það
er vandlifað í þessu landi. Svo ekki sé minnst á blessaða hundana.
Ég var að heyra það um daginn að til stæði að halda námskeið
fyrir börn þar sem ætti að kenna þeim að þekkja mun á hundum
og kindum.”
-EIR.
Guðrún Á. Símonar sextug sl. föstudag: - Ég frétti að halda ætti nám-
skeið þar sem kenna ætti börnum að þekkja mun á hundum og kind-
um.
HEIMSLJÓS
Sleppur
slátrarinn?
| Svo getur farift aö nasistinn
'Klaus Barbie, oft nefndur slátrar-
ijinn frá Lyon vegna þeirra fólsku-
jverka sem hann vann á gyöingum
I og Frökkum í síðari heimsstyrjöld-
I inni, sleppi við réttarhöld. Er talið
, að frönsk yfirvöld treysti sér ekki
I til að dusta rykið um of af ýmsum
" tengslum Frakka við nasista á
stríðsárunum.
Barbic hefur setið í frönsku
] fangelsi frá því hann var framseld-
| ur frá Bóliviu fyrir um ári.
Sæthefnd
Dönskum lögreglumanni, sem
ætlaði heim til sin eftir erfiða vakt,
brá heldur betur í brún þegar hann
komst að því að bilnum hans hafði
verið stoiið af bílastæði lögreglu-
i stöðvarinnar. -
Er talið víst að maður sá er lög-
reglumaðurton hafði vcrið að yfir-
] heyra rétt áður hafi stolið bilnum
þcgar honum var sleppt.
Kynlíf
borgar-
stjórans
Htan 59 ára borgarstjóri New
! York borgar, Ed Koeh, sem cr
piparsveinn, var að því spurður í
sjónvarpsviðtali fyrir skömmu
hvort hann liði ekki vegna skorts á
[ kynlifi.
„Bitnar þaö ekki á starfi þínu?”
|i spurði sjónvarpskona sú er hér átti
jíhlut.
„Ég þykist vita að þér séuð frá-
i skilin,” svaraði borgarstjórinn,
* „hcfur það áhrif á starfsgetu yð-
ar?”
Þá var skipt um umræðuefni.
Dýrsvefn
20 nemendur í háskólanum :
Sussex i Englandi hafa teklö tilboði
um að vtona sér inn aukaskilding á
meðan þcir sofa. Taka þeir þátt í
tilraunum með nýja tegund svefn-
lyf ja, gleypa eina töflu áður en þeir
fara að sofa og svara síðan nokkr-
um spurningum þegar þeir vakna.
Fyrir þetta greiðir framleiðandinn
þeim sem svarar 600 krónum á tím-
ann.
30 aðrir nemendur hafa lýst sig
reiðubúna til að taka þátt í tilrauu
um þessum. „Þetta er þægilcgra
starf cn mörg ömiur sem stúdent-
um standa til boða,” segir eitt til-
raunadýrið.
Frú Brandt
í framboð
Brigitte Seebacher-Brandt, hin
37 ára gamla ciginkona Willy
Brandt, fyrrverandi kanslara V-
Þýskalands, sem hann kvæntist í
fyrra, hefur ákvcðið að fara í fram-
boð. Ekki kanslaraframboð heldur
ætlar hún að rcyna við sæti í bæjar-
stjórn Unkel í Rheinland-Pfalz en
þarbúaþau hjón.
rændur
Franski biskupinn, Jean
Orchampt frá Angers, var fyrir
stuttu rændur á hótelherbergi sinu í
Róm. Var hann staddur í borginni
til að vera viðstaddur hyllingu 99
pislarvotta úr frönsku byltingunni
og var að sögn 330 þúsund krónum
fátækari þegar þjófarnir höfðu lok-
iö verki sínu.