Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1984, Page 29
DV. MÁNUDAGUR14. MAl 1984.
\
8S
29
KOSTIR
IANDSBANKASKIRTETNANNA
ERUFLEIRI
EN HÁMARKS ÁVÖXTUN SPARIF)ÁR
Landsbankinn var fyrstur
banka til að bjóða spari-
fjáreigendum hærri inn-
lánsvexti en Seðlabankinn
ákveður. Með útgáfu
LANDSBANKASKÍR-
TEINA vill bankinn örva
sparnað og þar með fyrir-
greiðslu til atvinnuvega og
einstaklinga.
ÞAU ERU ÖRUGG
LANDSBANKASKÍR-
TEINI er innlánsform,sem
ber allt að 22,1% ársvexti.
Pannig ávaxtaSt pening-
arnir betur en völ er á með
öðrum innlánsformum.
Engin áhætta er tekin þeg-
ar þau eru notuð í við-
skiptum.
ÞAU ERU HAND-
HÆG
Innstæður LANDSBANKA
SKÍRTEINA má taka út
að 6 mánuðum liðnumfrá
dagsetningu. En jafnframt
eru þau framseljanleg á
tímabilinu eins og almenn
viðskiptabréf. Því getur
eigandinn gripið til spari-
fjárins ef þörf krefur.
ÖRYGGISFORÐI
HEIMILANNA
Eitt meginmarkmið hvers
einstaklings er að skapa
sér og sínum öryggi, með
hagsýni í fjármálum.
LANDSB ANK ASKÍ R -
TEINI er öruggur forði sem
ber góðan ávöxt og er til
taks þegar á þarf að halda.
FJÁRFESTING
FYRIRTÆKJA
Fyrirtækjum gefst hér
kostur á að ávaxta lausafé
á hagkvæman hátt. Sparn-
aður í LANDSBANKA-
SKÍRTEINI er skynsam-
leg ráðstöfun. Enginn
aukakostnaður fylgir þeim
en kostirnir eru margir.
TRAUSTUR BANKI
TEKURFORYSTU
Landsbankinn hefur tekið
forystuna í eðlilegri
bankaþjónustu eins og
hún þekkist víðast hvar á
vesturlöndum. Hann mun
halda áfram að þróa þá
þjónustu — því getur þú
treyst.
STARFSFÓLK
LANDSBANKANS
AÐSTOÐAR
Allt starfsfólk í sparisjóðs-
deildum Landsbankans er
þaulkunnugt kjörum á
LANDSBANKASKÍR-
TEINUNUM, sem og
öðrum innlánsformum. Þú
getur því snúið þér til ein-
hvers þeirra og rætt þín
mál í trúnaði.
HUGIÐ AÐ FJÁRMÁLUM YKKAR TRYGGIÐ YKKUR LANDSBANKASKÍRTEINI
UPPLÝSINGABÆKLINGUR LIGGUR FRAMMI
LANDSBANKINN
Græddur er geymdur eyrir