Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Qupperneq 11
nr 11 fc«oríAM QTTnAnnraTo -r rrn DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ1984. Hvaö hefur einkennt þinghaldið í vetur? Gert er ráð fyrir að þinglausnir verði i dag. Brþá iokið 106. iöggjafarþingi islendinga. Þetta málum. O V leitaði af þessu tilefni til þingmanna úr öllum fiokkum og óskaði álits þeirra á láþó reyndar ekki Ijóst fyrir i gærkvöldi en þá stóðu yfir fundir þingflokksformanna og for- hvað hefði einkenn tþað þinghald sem nuerað Ijúka. Svör þeirra fara hérá eftir. seta þingsins. Ýmsir stjórnarandstöðuþingmenn höfðu þá hótað málþófi til að tefja fyrir Jóhanna Sigurðardóttir: ðsamkomulag stjórnarflokkanna einkennandi „Þaö er ljóst aö ef horft er til síö- ustu vikna þá er einkennandi það mikla ósamkomulag sem komið hefur í ljós hjá stjórnarflokkunum í hverju málinu á fætur öðru. Þaö ósamkomulag stendur enn eftir margra vikna samningaþóf,” sagöi Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaöur Alþýðuflokksins. „Þetta ástand hefur háö eðlilegum f ramgangi mála og afgreiðslu þeirra á síðustu dögum. Þingstyrkur stjómarliðsins hefur einnig gert það að verkum að stjómarandstöðunni er gert ómögu- legt að ná fram málum. Stjórnar- liðið er með formenn í öllum nefndum og þeir geta ráðið gangi mála og hvaða mál eru afgreidd. Eg hefði talið eðlilegra aö tekið hefði verið meira tillit til stjórnarandstöð- unnar þegar ákvarðanir voru teknar um nefndaformenn. Eg get nefnt sem dæmi að mál mitt um endurmat á störfum láglauna- hópa hefur ekki fengist rætt í nefnd- inni þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Það sama er aö segja um fmm- varpið um Framleiðsluráð land- búnaöarins eins og komið hefur fram. Þannig hefur komið fram veruleg tilhneiging stjórnarliða til að sitja á þingmálum. Eg hef einnig áhyggjur af því að stjórnarliðið hefur lagt mesta áherslu á að koma fram málum sem ganga á félagslega þjónustu og allar efnahagsráöstafanir hafa bitnað á launafólki. Þetta tel ég hafa verið einkennandi fyrir þinghaldið í vetur,” sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir. -OEF. Halldór Ásgrímsson: Eg tel aö þetta þing hafi verið mjög áþekkt fyrri þingum. Það hafa að vísu verið fleiri flokkar á þingi en nokkru sinni fyrr og þar af leiöandi hafa umræður verið lengri en oft áður,” sagði Halldór Asgrímsson sjávarútvegsráðherra. „Eg er ef til vill ekki besti aöilinn til að dæma hér um þar sem mestur hluti af starfi þingsins fer fram í nefndum, sem ég á ekki sæti í. En í þingsölum hefur starfið verið með heföbundnum hætti. Það má segja aö það hafi einkennst af slæmu efna- hagsástandi þar sem minna hefur verið flutt af málum sem krefjast aukinna útgjalda. Stjómarandstaðan hefur verið fremur róleg. Hún hefur að sjálf- sögðu verið á móti mörgum þörfum málum eins og stjómarandstöðunni er tamt. Þótt nýir flokkar hafi bæst í hóp stjómarandstöðunnar hafa þeir ekki tekið upp nýja siði eins og ég átti fremur von á, þannig að þeir myndu fylgja þeim málum sem þeir teldu nauðsynleg í stað þess að leggjast gegn þeim. Hvaö stjórnarsamstarfið varðar þá hefur það gengið vel. Auðvitað em alltaf vandamál í stjórnarsam- starfi en þau hafa verið leyst. En ef einhver ágreiningur hefur verið uppi þá hefur alltaf verið reynt að gera sem mest úr slíkum málum af stjómarandstöðunni. En í flestum tilvikum hafa það verið smámál sem hafa verið blásin upp sem meiri- háttar vandamál,” sagði Halldór Asgrimsson. -OEF. Guðmundur J. Guðmundsson: Fjörugt við- skiptalíf hjá stjórnarflokkunum „Þinghaldiö hefur einkennst sér- staklega af hrossakaupum milli stjómarflokkanna. Þar hefur ótrú- legasta skiptimynt veriö notuð. Þaö má segja að það hafi verið fjörugt viöskiptalíf milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks á þessu þingi,” sagði Guömundur J. Guðmundsson, þingmaöur Alþýðubandalags. „Það hefur einnig einkennt þing- haldið að Alþingi hefur verið mjög starfslítið fram eftir vetri en síðan dembast stór mál inn í lokin sem þingmenn hafa takmarkaðan tíma til að sinna. Eg skil ekki hvernig stend- ur á því aö nefndir skila ekki áliti fyrr þannig að hægt sé að láta mál fá nægilega umræöu og skoðun svo að ekki þurfi aö vera aö hespa af mál á síðustu dögunum. Hér er ekki við ráðherra að sakast heldur frekar for- mennþingnefnda. Nú er verið að vinna veigamikil mál og flókin löggjafaratriði á kvöldin og á nætumar. Þetta á við um mörg mál sem hafa tafist vegna þess að nefndarálit hafa ekki komið nægilega fljótt en hefði verið hægt að afgreiða úr nefndum fy rir löngu. Alþingi þarf að athuga sinn gang í þessum efnum. Það þarf að breyta þessum starfsháttum verulega. Það kæmi vel til greina að forsetar þings- ins rukkuðu mál úr nefndunum mánaðarlega. Þeir hafa reyndar séð ástæðu til aö minnast á þetta á þessu þingi. Þetta hefur oft verið slæmt á fyrri þingum en það hefur verið með versta móti núna,” sagði Guðmund- ur J. Guömundsson. OEF r Guðrún Agnarsdóttir: FUOTASKRIFTIN Á ÞINGIER ÓFÆR „Mér finnst þetta hafa verið áhugaverður og lærdómsríkur tími. Þetta eru mín fyrstu afskipti af stjórnmálum, ég hef verið reynslu- laus í þessum efnum og sé hlutina í ljósi þess,” sagði Guðrún Agnars- dóttir, þingmaður Kvennalistans. „En ég tel að reynsluleysi sé ekki síöur kostur en galli vegna þess hve ferskum augum maður getur litið málin. Sumir vilja meina að við höfum komið inn á þetta þing á þröngum forsendum, meö sjónarmið kvenna og barna að leiðarljósi. En ég neita þessu vegna þess að þaö sem kemur konum og bömum best kemur einnig körlum best. Eg er sannfærð um að það er ekki í allra þágu að sjónarmið hinna hörðu gilda, ef ég má kalla þaö svo, verði rík jandi. Það hefur verið ánægjulegt að fá tækifæri til að tala hér um kvenna- mál, að gefnu eða ekki gefnu tilefni. Það hefur verið fróðlegt aö sjá við- brögð þingmanna við því. Það hefur einnig verið fróðlegt að fylgjast með umræöum um stóru málin, fjárlög, lánsfjárlög og bandorminn og sjá hvaða forgangsrööun ríkir innan þeirra. Hin mjúku gildi eiga ekki aðeins rétt á sér inn í þá umræðu heldur verða þau að komast þar að. Það er lífsnauðsynlegt að þau komist að. Almennt séö mætti bæta mjög vinnubrögð Alþingis. En það er erfitt að rata bilið milli þess að aðlaga þingstörf nýrri tækni og halda í gamlarhefðir. Sérstaklega finnst mér ófær þessi fljótaskrift á þinghaldi fyrir jólaleyfi og þinglok. Þá eru viðamikil mál keyrö í gegnum þingiö án þess að tími sé til að athuga þau. Þessi vinnubrögð eru hvorki samboðin þingmönnum, málunum né því um- boði sem þingmenn eru kjörnir til aö fara með. Með betra skipulagi og meiri sanngimi milli stjómar og stjórnarandstööu þyrftu þessi vinnu- brögð ekki að vera,” sagði Guðrún Agnarsdóttir. ÖEF Eyjólfur Konráð Jónsson: Athaf nasamt þing „Það má segja að þetta hafi verið athafnasamt þing, stundum kannski um of. Ymis frumvörp sem óþarfi hefði verið að samþykkja hafa farið í gegnum þingiö en þegar þetta er sagt er von til þess að sett verði á laggirn- ar nefnd til að hreinsa burt óþörf lög,” sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Annars eru megineinkenni þessa þings þau að stjómin hefur ekki vikið frá markaðri stefnu sinni um að ná verðbólgunni niður, treysta atvinnu- lífiö og skapa þannig grundvöll til kjarabóta. Raunar hefði ég viljað ganga lengra í skattalækkunum, einkum fella niöur okurskatta á nauðsynjavörur þar sem ríkið tekur til sín meira en helming útsöluverðs og bæta þannig kjörin án verulegra kauphækkana. Eg varð mjög óánægður með aö Seðlabankanum var veitt heimild til að hækka bindiskyldu um 10%. Þótt hún sé skilyrt er hér um að ræða al- ranga stefnu. Nú er bundið í Seðla- bankanum og greitt til Fram- kvæmdasjóðs um 33% sparifjár- aukningar, en gæti orðið samkvæmt heimildinni 43%. Hér er um aö ræöa þá ofstjórnarstefnu í peningamálum sem er meginorsök verðbólgunnar og efnahagsvandræöa okkar, eða „monetarismann” svonefnda sem tröllriðið hefur vestrænum ríkjum en allir eru nú að kasta frá sér nema við. Sérstaklega hefur verið ánægju- legt að vinna aö utanríkismálum þar sem hafréttarmálin hafa veriö aðal- máhn og fullkominnar eindrægni hefur gætt. Það er ljóst aö Islending- ar verða sameinaðir um þá sókn í landhelgismálum sem væntanlega mun ná hámarki alveg á næstunni þegar við helgum okkur landgrunniö frá mörkum efnahagslögsögu Græn- lands og alveg vestur á Hatton- banka og 350 mílur út frá Islands- ströndum. Jafnframt þessu veröur reynt að ná samningum við ná- granna okkar um yfirráö mjög víð- áttumikilla hafsbotnssvæða á Rock- all-Hatton hásléttunni,” sagði EyjólfurKonráð Jónsson. OEF Krístín S. Kvaran: Endurskoða þarf starfstfma þingsins „Það er alveg augljóst að Alþingi er ekkert annaö en afgreiðslustofnun fyrir ríkisstjómina. Hér er alveg ótrúlegur seinagangur og ekkert farið að vinna fyrr en komin er pressa og þá eru málin keyrð í gegnum nefndir og umræður. Þá kemur einnig í ljós að ekkert skipu- lag er á því hvernig eigi að afgreiða málin,” sagði Kristín S. Kvaran, þingmaður Bandalags jafnaðar- manna. „Eg var í fjárveitinganefnd sem er einna virkust nefndanna. Þá sá ég að nefndir vinna mjög mismikið. I fjár- veitinganefnd er unnið mjög mikiö, að minnsta kosti áöur en f járlög eru afgreidd, og þar var mjög gott skipu- lag á vinnunni. Af nefndarálitum ýmissa annarra nefnda má sjá að þetta gildir ekki um þær allar. Það var mjög lærdómsríkt að taka þátt í þessari vinnu. Eg vil einnig taka það fram aö mér finnst þaö oröið mjög tímabært að endurskoða starfstíma og starfs- hætti þingsins og lengja þingsetuna. Starfstími þingsins eins og hann er nú gerir það að verkum aö mörg mál eru nú ekki afgreidd og það kostar bæði tíma og peninga að þurfa að leggja þau fram aftur á næsta þingi. Þinghaldið ætti að vera fram í júní og hefjast aftur í september. Það gæfi þingmönnum gott sumarfrí og tíma til að heimsækja kjördæmin. Það skipulag sem nú er tilheyrir gömlum tíma og er þjóðhagslega mjög dýrt,” sagði Kristín S. Kvaran. -ÓEF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.