Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Page 1
DAGBLAÐIÐ —VISIR 71. TBL. - 75. og 11. ÁRG. MÁNUDAGUR 25. MARS 1985. Kennarar ákváðu með 210 atkvæðum gegn 57 að hefja kennslu á ný: Bréf Steingríms kom Albert í opna skjöldu Seint í gærkveldi ákváöu kennarar aö hefja störf á ný. Á félagsfundi þeirra var samþykkt ályktun þess efn- is. Samþykkir voru 210, á móti 57 og auöirseðlar27. Strax í morgun munu flestir kennar- ar hafa mætt i skólana. Ekki var samt búist við aö kennsla hæfist hjá þessum kennurum í dag. Dagurinn verður not- aöur til skipulagningar kennslunnar næstu vikurnar. Þessi ákvörðun kemur í kjölfar ákvörðunar á laugardaginn. Þá ákváðu kennarar að snúa aftur til starfa svo fremi sem ákveðin skilyrði yrðu uppfyllt. Stjórnvöld gengu að þessum skil- yrðum. Kennarar verða ekki lögsóttir og gengið verður frá greiðslu fyrir fyrirsjáanlega aukakennslu á næstunni. Kennarar telja nú að trygging sé fyrir því af hálfu ríkisins að þeir og aðrir eigi aö hafa sömu heildarkjör og aðrir á almennum markaði. Og fram- vegis verði dagvinna borin saman við dagvinnu annarra. Þetta kom fram í bréfi Steingríms sem hann sendi BHM á laugardaginn. Þetta bréf Steingríms kom fjár- málaráöherra í opna skjöldu og varð til þess aö í snarhasti var kallaður saman ríkisstjórnarfundur í gær. Á tólfta timanum í gær fékkst Albert til að skrifa yfirlýsingu þess efnis að hann væri efnislega sammála Steingrími — enda sé viö samanburö dagvinnulauna um sambærilegt vinnuframlag að — sjá einnig bls. 2 ræða, segir í yfirlýsingu hans. „Bréf Steingríms hefur ekkert að segja fyrir fjármálaráöuneytið. Það er fjármálaráöuneytið sem fer með samningamálin en ekki forsætisráð- herra. Túlkun Steingríms er ekkert framlag fyrir hönd f jármálaráðuneyt- isins,” sagði Albert í viðtali við DV í morgun. Albert sagði að launastefna ríkisins væri ekki fallin með þessu svo fremi sem farið yrði eftir stefnu fjármála- ráöuneytisins. Hann sagðist ekki búast við að málflutningur ríkisins myndi breytast í Kjaradómi. Forystumenn kennara og félaga í BHM eru bjartsýnir á að þessar yfir- lýsingar geti haft verulega mikil áhrif á laun þeirra. Á fundinum voru nefndar prósentur f rá 40 upp í 80. APH Fyrsti tíminn hjá Kristjáni Thorlacius i morgun var saga. Reyndar voru ekki mættir nema 10 nemendur af 27. APH DV-mynd GVA Hilmar Sigurgislason átti frábæran leik i Evrópuleiknum i Laugardalshöll eins og reyndar allir leikmenn Vikings. Á DV-mynd Brynjars Gauta skorar Hilmar af línu eftir sendingu Viggós Sigurðssonar sem sóst að baki hans. Viggó varð fyrir nokkrum árum Spánarmeistari með Barcelona. r Víkings á Barcelona — Víkingur sigraði, 20-13, ífyrri leik liöanna í undanúrslitum Evrópukeppni bikarhafa Sjö marka sigur og það á Evrópu- meisturum voru úrslitin, þegar Vík- ingur sigraöi Barcelona, 20—13, í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópukeppni bikarhafa í Laugar- dalshöll í gærkvöld. Frábær liðsheild Víkings skóp þann sigur og sjö marka munur í hálfleik, 11—4. Sjaldan hefur íslenskt handknatt- leiksliö sýnt jafnglæsilegan leik og Víkingar þá. Ahorfendur, sem troð- fylltu Laugardalshöll og studdu frá- bærlega vel við bakið á Víkingum, trúðu vart sinum eigin augum. Vík- ingur 11 — Barcelona 4 var staöan á ljósatöflunni í hálfleik. I síöari hálfleik skoruðu bæði liö níu mörk og lokastaöan því 20—13. Enn ein rósin í hnappagat íslensks handknattleiks og þó voru norsku dómaramir allt annað en hagstæðir Víkingum í leiknum. „Víkingur hefur raunhæfa möguleika á að komast í úrslit Evrópukeppninnar,” sagði Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSl, en síöari leikur Víkings og Barcelona verður næstkomandi laugardag í Barcelona. Sjá nánar 12 sfður um íþróttir á bls. 23—24. hsim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.