Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Qupperneq 23
DV. MÁNUDAGUR 25. MARS1985.
23
Sigurjón
skoraði
— og hefurverið
boðinn samningur hjá
Farense í 1. deild
íPortúgal
Sigurjón Kristjánsson skoraði
sigurmark Campinense í gær þeg-
ar liðið sigraði þriðja efsta liðið i 2.
deild í Portúgal, EstorU Amaroi,
0—1 og það á útiveUi. Það voru
hvað óvæntustu úrsUtin í Portúgal í
knattspyrnunni um helgina. Þeir
Sigurjón og Trausti Ömarsson áttu
báðir góðan leik með Campinense.
Þegar Sigurjón skoraði fékk hann
knöttinn, spyrnti á markið eftir
mUdnn einleUt. Knötturinn fór i
varnarmann og Sigurjón náði hon-
umafturogskoraði.
Eins og oftast áður í vetur fylgd-
ust menn frá Farense með íslensku
leikmönnunum. Það lið er um
miðja 1. deUd og hefur þegar boðið
Sigurjóni samning næsta leiktíma-
bU. Það mál er nú í athugun en
fleiri portúgölsk lið hafa fylgst með
Isiendingunum í vetur.
hsím.
Matti heims-
meistari
Fluuinn Matti Nykacnen varð sigurveg-
ari í heimsbikarkeppnluui í skiðastökki,
þegar hann sigraði i stökki af 90 m palli i
Strbskc Pleso í Tékkóslövakiu í g»r.
Matti hlaut samtals 224 stig. Austurrikis-
maðuriun Andrcas Felder er næststiga-
hæstur með 198 stig og landi haus, Emst
Vettori, þriðji með 176 stig. Jens Wciss-
flog frá A-Þýskalandi er i f jórða seti með
lSlstig.
-SOS.
Aðsfæður slæmar
en Ijis stórbætti
þó Islandsmetið
— Kastaði spjóti 58,24 m. Eggert og Sigurður sigruðu í Georgíu
„Það kom mér svolítið á óvart að ég
skyldi setja nýtt Islandsmet þar sem
ég er tU þess að gera nýbyrjuð að kasta
úti. Hef verið í mjög erfiðum æfingum
og svo var annað. Veður þarna í Gains-
vUle í Florida var erfitt tU keppni.
Mjög hvasst og kastað undan vindinum
sem er slæmt í spjótkasti,” sagði tris
Grönfeidt cftir að hún setti nýtt ts-
landsmet í spjótkasti. Kastaði 58,24
metra þarna í Fiorida og stórbætti
eldra íslandsmet sitt. Það var 56,14 m.
„Eg er mjög bjartsýn á góðan árang-
ur í sumar. Það er gaman að byrja
svona vel. Ég held að þetta komi vel út
hjá mér — það er bara að sleppa við
meiðsU. Kastsería mín í Florida var
þannig. Ogilt — 55,98 — 53,00 — 51,20 —
58,24 og 55,52 m”.
Iris er 22ja ára Borgfirðingur og hef-
ur undanfarin ár stundað nám í
íþróttafræðum við háskólann í Ala-
bama. Þar eru nokkrir aðrir Islending-
ar. Hún var eini Islendingurinn sem
keppti á mótinu í Florida. KvennaUð
Alabama-háskóla fór þangað en Þórdis
Gísladóttir á enn viö meiðsU að stríða.
Gat því ekki keppt þar og er reyndar
meö hækjur enn.
Hins vegar kepptu þeir Eggert Boga-
son og Sigurður Einarsson á frjáls-
íþróttamóti í Athens í Georgíu og sigr-
uðu þar báðir eins og Iris. Sigurður
kastaði spjótinu 80,18 metra og Eggert
kringlunni 53,26 m.
Með afreki sínu í Florida vann Iris
sér rétt til að keppa á bandaríska há-
skólamótinu í frjálsum íþróttum. Það
verður háð í Austin í Texas 28. maí tii
1. júní og eftir það kemur Iris svo
heim. Fer aftur utan í haust en hún á
eftir eitt og hálft ár í námi sínu í Ala-
bama.
hsím.
„Njósnarar”
frá Juventus
— fylgdust með leik Bordeaux á laugardag.
Bordeaux sigraði6-l
Frá Árna Snævarr, fréttamanni
DV í Frakklandi.
Það voru njósnarar frá
Juventus, sem fylgdust með leik
Bordeaux og Auxerre í 1. delldinni í
Frakklandi á laugardag í
Bordeaux en ítalska liðið leikur ein-
mitt við Bordeaux í undanúrslitum
Evrópublkarsins. Og þeir hafa
fenglð nóg um að hugsa því
Alain Giresse var hreint frábær, |
vann stórsigur, 6—1. Lacombe ■
skoraði fyrsta markið á 15. mín. I
Darren jafnaðl úr vítaspyrnu í 1—1 I
rétt á eftir. Síðan var einstefna á *
mark Auxerre. Battiston skoraði I
annað og þriðja mark Bordeaux,
hið fyrra úr víti og í síðari hálf- j
leiknum skoruðu Giresse, Martinez ,
og Lacombe. Sjá nánar bls. 32.
^ Bordeaux, þar sem fyririiðinn -hsím. |
Siggi Sveins
markahæstur í
V-Þýskalandi
— skoraði 10 mörk fyrir Lemgo sem vann
Schwabing, 22:20
Frá Atla Hilmarssyni, fréttamanni DV
í V-Þýskalandi:
— Sigurður Sveinsson fór heldur bet-
ur á kostum þegar Lemgo vann mjög
þýðingarmikinn sigur, 22—20, yfir
Schwabing hér í 1. deildar keppninni í
handknattleik. Sigurður var hreint
óstöðvandi og skoraði hann 10 mörk í
leiknum og er hann nú markahæstur i
V-Þýskalandi, með 131 mark.
„Ég skoraði fyrstu fimm mörkin
okkar. Var þá tekinn úr umferð,” sagði
Siguröur eftir leikinn. Þess má geta að
Sigurður skoraði sjö af ellefu fyrstu
mörkum Lemgo sem var yfir, 11—8, í
leikhléi.
Sigurður skoraöi fjögur af mörkun-
um sínum tíu úr vítaköstum. -AH/-SOS
• Sigurður Sveiusson.
„Fór troðnar slóðir
í síðasta leik mínum”
— sagði iónas Jóhannessson, N jarðvík, sem er ákveðinn í að hætta
„Mér fannst ég ekkl geta lagt skóna
á hilluna nema með sigri,” sagði hinn
hávaxni og gamansami Jónas Jóhann-
esson, sem að margra dóml áttl mest-
an þátt í sigri UMFN gegn Haukum,
um leið og hann setti skóna sína upp i
hillu á heimili sinu í Njarðvík, „en ég
vildi ekki fara ótroðnar slóðir í leikn-
um og „tróð” því tvisvar og meira að
segja skoraðl ég allra síðustu körfuna
á mínum langa ferli á þann máta.”
Jónas átti sinn langbesta leik í vetur
í lokastríðinu viö Hauka. „Já, eins og
þú sérð auglýsum við fyrir Osram,
þetta er búið að vera blikkandi hjá mér
í vetur en nú, þegar spennan náði há-
marki, þá kviknaði á perunni hjá mér í
dag.”
Eftir frammistöðu Jónasar í „sein-
asta leiknum” geta Njarðvíkingar illa
sætt sig viö að hann skuli vera hættur
og við erum reyndar efins um það, og
því spurðum við Brynjar Sveinsson
ljósmyndari hvort við ættum ekki að
koma aftur í haust og vera viðstaddir
þegar hann blési rykið af skónum og
tæki þá fram að nýju. „Þaö er óþarfi, í
fyrsta lagi er ég hættur og í öðru lagi
verður ekkert ryk á þeim — ég dusta
það af daglega.”
emm
• Sjá allt um úrslitaleikinn
ábls. 30-31.
„Nú legg ég skóna á hilluna”, Jónas I ákveðinn í að hætta.
DV-mynd Brynjar Gauti.