Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Page 28
GAT ÍSLEN
íþróttir
ðþróttir
íþróttir
fþróttir • íþróttii
DV. MÁNUDAGUR 25. MARS1985.
Víkingur sigraði Evrópumeistara Barcelona meí
tslenskur handknattlelkur fékk enn
eina rósína í hnappagatið í Laugar-
dalshöll í gærkvöldi, þegar bikarmeist-
arar Víkings léku frábæran handknatt-
leik gegn Evrópumeisturunum Barce-
lona, v'oru sterkari á nær öllum sviðum
handboltans og unnu verðskuldaðan
sigur. Sjö marka munur í lokin, 20—13,
og sá munur náðist í fyrri hálfleiknum.
Sjaldan hefur islenskt lið leikið jafnvel
og Víkingar þá — Evrópumeistararnir
ráðalausir gegn snjöilum leik Víkinga.
Komust litið sem ekkert áfram í sókn-
arleiknum og á meðan Víkingar röðuðu
inn 11 mörkum með frábærri nýtingu
tókst Barcelona aðeins að skora f jögur
mörk. Fyrsta mark sitt eftir tæpar 12
min. sem var nær endurtekning á
leiknum við Crvenka á dögunum. Ann-
að markið eftir 17 mín. og staðan i hálf-
leik var hreint ótrúleg. Víkbigur 11 —
Barcelona 4. Víkingur náði mest niu
marka forustu í leiknum en Barcelona
tókst að minnka muninn með aðstoð’
norskra dómara. Þeir voru Vikingum
ekki hagstæðir i leiknum og beinlínis
fóru úr sambandi um tíma.
Víkingssigurinn byggðist fyrst og
fremst á mjög snjöllum vamarleik og
frábærri markvörslu Kristjáns Sig-
mundssonar. Vörnin leikin framarlega
og ruglaði það mjög sókn Barcelona.
Leikmenn Barcelona flestir mjög há-
vaxnir en samt tókst þeim sjaldan að
skora úr langskotum. Víkingsveggur-
inn þéttur og að baki Kristján með sinn
snilldarleik í markinu. Fékk aðeins á
sig 13 mörk en sóknarlotur Barcelona
voru 37.
Liðsheildin aðall Víkings
En það er erfitt að taka einn leik-
mann Vikings út öörum fremur. Það
voru átta hetjur í liöinu, samstillt liðs-
heild. Já, liðsheildin var aðall Víkings.
Varnarleikurinn stórgóður og þar var
hlutur þeirra Hilmars Sigurgíslasonar
og Einars Jóhannessonar stór, leik-
menn sem ekki ber mikið á en standa
vel fyrir sínu svo ekki sé meira sagt.
Steinar og Þorbergur einhverjir al-
sterkustu vamarmenn Islands — Guð-
mundur og Karl gefa sjaldan eftir í
hornunum. Sóknarieikurinn var ekki
alltaf nógu yfirvegaður en fallegar
fléttur sem gáfu mörk sáust oft. Allir
útileikmenn Víkings skoruðu — flétt-
urnar rugluðu hávaxna leikmenn
Barcelona sem flestir gnæfðu yfir Vík-
inga. En það er ekki nóg að vera stór —
þaö þarf líka að vera stór í hugsun.
Leikurinn í heild verður lengi minnis-
stæöur, þökk sé Víkingum.
Gangur leiksins
Víkingar byrjuðu mjög vel — skor-
uðu þrjú fyrstu mörkin en misnotuðu
þó vítakast. Guðmundur fiskaði tvö
vítaköst frá upphafi leiksins. Viggó
Sigurðsson lét verja það fyrra frá sér
en skoraði úr því síðara. Síðan skoraöi
Þorbergur tvö mörk úr hraðaupp-
hlaupum, 3—0. Einari var vísað út af
og Spánverjum tókst að skora sitt
fyrsta mark eftir 11.30 mín. Zerrano
var þar aö verki en rétt áður hafði úti-
dómarinn dæmt mðning á spánska.
Hinn breytti því í brot á Víking og
Barcelona skoraði.
En Víkingar héldu áfram sínum
góða leik. Karl skoraði úr hominu, síð-
an Guðmundur, gull af marki, 5—1,
eftir 16 mín. Mínútu síöar tókst Barce-
lona að skora sitt annaö mark, víta-
kast. Síðan aftur þrjú Víkingsmörk í
röð, Hilmar fyrst af línu eftir sendingu
Viggós, síðan Þorbergur tvö með lang-
skotum, 8—2, eftir 22 mín. Hreint ótrú-
iFáar taktískar
í villur Víkinga í
— sagði Bogdan Kowalczyk Víkingsþ jálfari
„Þetta var mjög góður leikur
hjá Víkingum, sérstaklega varnar-
leikurinn. Undirbúnmgur fyrir
leikinn var góður og skynsamlega
byggður upp. Vikingsliðiö spilað
mjög vel og urðu á fáar taktískar
villur,” sagði Bogdan Kowlaczyk
Vikingsþjálfari eftir leikinn i gær-
kvöld í Laugardalshöll.
„Eini plúsinn sem við höfum í
síöari leikinn í Barcelona eru
mörkin sjö sem Víkingur vann
meö. Það er nokkuð algengt í
Evrópukeppni að liö vinni með sjö
marka mun heima en tapi með
meiri mun á útivelli,” sagði Bogd-
an ánægður en hann vildi ekkert
ræða um dómgæsluna í leiknum.
-hsím.
Karl Þráinsson, Vikingurinn 19 ára, skoraði falleg mörk úr hornunum. Hér
fékk hann tækifæri til að bæta einu við úr hraðaupphlaupi en markvörður
Barcelona varði.
DV-mynd Brynjar Gauti.
Góð nýting
hjá Víkingum
Þaö er ekki annaö' hægt að segja en að nýt-
ing Víkinga hafi verið mjög gðð gegn Barce-
lona í Laugardalshöllinni. Víkingar náðu stór-
góðri nýtingu í fyrri hálfleik en þá skoruðu
þeir XI mörk úr 17 sóknarlotum sem er 64,7%
nýting. Þeir skoruðu 9 mörk ár 20 sóknariot-
um í seinni hálfleik sem er 45%. AIIs skoruðu
þeir 20 mörk úr 37 sóknariotum sem er 54%.
Kristján Sigmundsson varði mjög vel í
markinu — samtals 18 skot. Þar af 12 skot þar
sem Víkingar f engu knöttinn.
Árangur einstakra leikmanna var þessi í
leiknum — fyrst mörk/víti, þá skot, knetti
tapaðognýting:
Viggó
Þorbergur
Karl
Guðmundur
HUmar
Einar
Steinar
6/2-9-4-46,1%
5/2-8-1-55%
3 -4-0-75%
2 -3-0-66,6%
2 -2-1-66,6%
1 —1—0—100%
1 -2-1-33,3%
Víkingar skora fimm mörk úr langskotum,
fjögur úr vítaköstum, þrjú úr horni, þrjú af
Kolbeinn
fékk bronsi
Kolbeinn Gíslason varð í þriðja sæti
á opna belgíska meistaramótinu í júdó
um helgina í +95 kg flokki. Ekki hafa
borist fréttir um í hvaða sæti Bjarni
Ág. Friðriksson hafnaði.
Strachan ekki
með Skotlandi
Gordon Strachan hjá Manchester United,
mun ekki geta leikið HM-leik Skotiands og
Waies á Hampden Park á miðvikudaginn.
Þegar Strachan kom til Glasgow í gær kvart-
aði hann undan meiðsium í tá. Jock Stein,
iandsiiðseinvaldur Skota, sendi hann þá strax
á sjúkrahús — í röntgenmyndatöku. — „Táin
var ekki brotin en ég heid að það sé rétt að
senda hann til Manchester til meðhöndlunar
hjá lækni,” sagði Stein.
-SOS
línu, þrjú úr hraðupphlaupum og tvö með
gegnumbrotum.
• Guðmundur fiskaði fjögur víti, Steinar
eitt. Karl átti tvær línusendingar, sem gáfu
mark, Viggó eina. Viggó misnotaði eitt víta-
kast.
• Sjö Víkingum var vikiö af leikvelli, fjór-
umspánverjum.
• Kristján varði alls 12 skot þar sem
Víkingar fengu knöttinn. Níu langskot, tvö úr
hornum og eitt af h'nu. Spánski markvörður-
inn varði sex skot.
• Spánverjar skoruðu fjögur mörk með
langskotum, þrjú úr hornum, þrjú með gegn-
umbrotumogeittúrvítakasti. -SOS.
I OJU mwi H I
j - og Essen á toppinn I
j Kiel tapaði j
IAlfreö Gíslason skoraði sjö mörk I
fyrlr Essen, þegar félagið vann I
I stórsigur, 25—16, yfir Gummer-i
|*bach í Essen. Essen skaust þar*
með upp á toppinn í V-Þýskalandi, I
I þar sem Kiel mátti þola tap, 20—21, .
I fyrlr Atla Hiimarssyni og félögum |
Ihans hjá Bergkamen. ■
Essen er með 28 stig, Gummers-1
Ibach 27 og Kíei, sem hefur leikiö I
einumleikfærra,ermeö26stig. ■
I Leikur Bergkamen og Kiel var I
J æsispennandi. Bergkamen var:
| yfir, 19-16, en Kiel náöi aö jafna. |
■ Þaö voru aðeins 54 sek. eftir þegar ■
I Bergkemen náði að tryggja sér sig-1
- ur — þýðingarmikínn sigur i faU-J
I baráttunni. f
Li nn wmm hw a wmm mwm
* Guðmundur Vikingsfyrirliði svífur inn úr horninu og skorar. Hann fiskaði
• Pétur Pétursson.
Pétur með
„come back”
— skoraði með skalla þegar
Feyenoord vann Zwolle, 6:0
Frá Kristjáni Bemburg, frcttamanni DV í
Belgíu: — Pétur Pétursson átti mjög gott
„come-back” með Feyenoord þegar félagið
vann stórsigur, 6—0, yfir Zwolle. Pétur kom
inn á sem varamaður fyrir Houtmann og skoraði
hann sjötta mark Feyenoord með skalia, eftir
fyrirgjöf frá Simon Thamata. Þá lagði Pétur
upp eitt mark, sem Tahamata skoraði, en hann
skoraði tvö mörk í leiknum, einnig Hoekstra og
Houtmann skoraði eitt.
♦ Ajax iagöí Sittard að velli, 2—0, úti og er
félagið efst í Hollandi með 39 stig, eftir 22 leflti
Eindhoven er með 36 og Feyenoord 33.
-KB/-SOS
Bjarai áfram
íV-Þýskalandi
Frá Atla Hilmarssyni, fréttamanni DV í V-
Þýskalandi: — Bjarni Guðmundsson, landsUðs-
maður í handknattleik, hefur skrifað undir
nýjan eins árs samning við 2. deUdar Uðiö
Wanne-Eiken.
-AH/-SOS
Atli aftur
til ísaf jarðar
Frá Kristjáni Bernburg, fréttamanni. DV i
Belgíu: — tsfiröingurbm Atli Ebiarsson er
farinu frá Lokercn áður en samnbigur hans
rann út. Forráðamenn féiagsms gáfu Atla leyfi
tll að fara eftir að hann hafði farið f ram á þaö. —
Þetta hefur veriö mikil og góð reynsla fyrir mig.
Ég kunni vel við mig hér þegar júgóslavneski
þjálfarinn Davidovic var hér en eftir aö hann
var iátinn fara fann ég mig ekki i herbúðum
Lokeren og óskaði eftir að fá að fara, sagði AtU í
stuttu spjalli við DV.
-SOS.
Haukar leika
gegn Fram |
— og KR mætir Keflavík
Undanúrsiitín í bikarkeppnínni í körfuknatt-
ieik fara fram í kvöid. Haukar leika gegn Fram í
Hafnarfirði kl. 20.30. Viðar Þorkelsson og Símon
Ólafsson leika að nýju með Framliðinu.
KR-ingar mæta Keflavik i Hagaskólanum
kl. 20.
Nafnið komið
á bikarinn |
Það vakti athygU á laugardag í Njarövík,.
þegar Njarðvíkurliðinu var afhentur bikarinn
fyrir -igur á Islandsmótinu í körfuknattleík, að
nafn UMFN var komið á bikarinn. Brynjar liðs-
stjóri Sigmundsson var með plötuna og var
fljótur til. Festi hana á bikarinn.
-emm.
■
Reid og Hughes
eruþeirbestu!
Peter Reid, fyrirliði Everton-liðsins, var í
gær útncfndur „Leikmaður ársbis 1985” af sam-
tökura atvinnuknattspyrnumanna í Englandi.
Þá var Mark Hughes hjá Manchester Unitcd út-
nefndur efnilcgasti leikmaðurinn. Hughes hefur
skorað 21 mark fyrir Unlted og er hann taUnn
efnilegasti miðherji ensku knattspyrnunnar.
-SOS.
ENN EIN
fþróttir
íþróttir
iþróttir