Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Blaðsíða 31
DV. MÁNUDAGUR 25. MARS1985.
31
íþróttir fþróttir Iþróttir íþróttir
'Æ ' Vs <*tvr (M
71 v| jg| ■-UJ| L * y f * yy
íslandsmeistarar Njarðvikur 1985. Efri röð frá vinstri: Július Valgeirsson,
Hafþór Óskarsson, Hreiðar Hreiðarsson, Helgi Rafnsson, Jónas Jóhannes-
son, Valur Ingimundarson, Brynjar Sigmundsson liðsstjóri. Fremri röð:
Teitur Örlygsson, Árni Lárusson, Helgi Rafnsson, ísak Tómasson og
Gunnar Þorvarðarson.
DV-mynd Brynjar Gauti.
„Sigur
UMFN
krafta-
verk”
— sagði Bogi Þor-
steinsson, „faðir
körfuboltans” á íslandi
„Sigur Njarövíkinga er nánast
kraftaverk, miðað við að þeir misstu
fimm menn í haust. En skörðin hafa
verið fyllt, það ieynir sér ekki. Mér
kom ekki annaö i hug, þegar byrjað
var í haust sem leið, en baráttan hjá
liðinu stæði um það að halda sér í deild-
inni en ekki að sigra í úrvalsdeildinni.
Gunnar Þorvarðarson hefur sýnt að
hann kann til verka sem þjálfari og
frammistaða hans sem leikmanns
jafnframt því er hreint frábaer. Valur
Ingimundarson, maður mótsins, árétt-
aði í þessum leik, eins og ég hef áður
haldið fram, að hann er okkar snjall-
asti körfuknattleiksmaður.” Svo mælti
Bogi Þorsteinsson, kallaður faðir
körfuknattleiksins á íslandi, sem var
að vonum hrærður þegar við hittum
hann að loknum leik og afhendingu
verðlauna, sem hann tók þátt í.
-emm.
..Frábært lið í
lokaorrustunni”
— sagði Gunnar Þorvarðarson, fyritiiði og þjálfari UMFN
„Þungu fargi er af mér létt,” sagði
Gunnar Þorvarðarson, með fullt
fangið af blómum, þegar við hittum
hann á leið til búningsherbergja
UMFN þar sem hann komst varla
áfram fyrir himinglöðum fylgjendum
liðsins. „Þetta var erfiður leikur þar
sem úrslitin réðust ekki fyrr en á loka-
mínútunum enda við erfiða andstæð-
inga að etja. t hverju var sigurinn fólg-
inn? Frábæru liði sem ekki brást þegar
mest á reyndi. Við náðum góðum lcik-
kafla undir lokin, spennan fór úr leik-
mönnum og þeir spiluðu létt og leik-
andi. Hver sigrar í bikarnum? spyrðu
— um það get ég ekki sagt.”
Ánægjuleg stund
„Þetta var skemmtilegur leikur og
létt yfir honum þrátt fyrir mikilvægiö
og spennuna sem honum fylgdi,” sagði
Ingólfur Eiríksson, formaöur KKI,
þegar viö náöum tali af honum eftir að
hann hafði afhent sigurverölaunin, „og
besta liðið sigraði. Það er uppörvandi
að sjá hvað körfuknattleiksíþróttin á
miklum vinsældum að fagna hér syðra
og stemmningin var eftirminnileg.”
Vonbrigðin frá
fyrri ieiknum
„Auðvitað var sárt að tapa leiknum
eftir að hafa verið alveg á mörkunum
með að vinna mótið í leiknum sem spil-
aður var í Hafnarfiröi þar sem óheppn-
in elti okkur,” sagöi Hálfdán Markús-
son, ein aöalskytta Hauka,” og ég held
að vonbrigöin úr þeim leik hafi setið í
leikmönnum og skapað taugaspennu
enda bar liðið þess merki í þessum
leik, sérstaklega sóknarleiknum og
skotfiminni sem ekki var nógu mikil.
Vömin stóö sig hins vegar vel. Loka-
kaflinn var slæmur hjá okkur, urðum
staðir og misstumtaktinn.” Aðspurður
um bikarkeppnina kvað hann Haukana
ætla sér aö sigra þar.
Vissum að við myndum
sigra
„Þetta hafðist eftir mikið stríð,”
sagði Valur Ingimundarson. „En þessi
leikur var ekki eins erfiður og leikurinn
í Firðinum um daginn þar sem við
tryggðum okkur sigur á lokasekúnd-
unni. Sjaldan hefur reynt meira á liðið
en í þessum leik. Við höföum ótta af
Haukunum sem eru með ungt og efni-
legt lið en vissum aö viö mundum sigra
ef allt gengi upp. Haukamir voru samt
ekki okkar erfiðustu mótherjar, heldur
Valsmenn, en sá leikmaöur sem okkur
stóö mest ógn af var Pálmar Sigurðs-
son. Okkur þykir heldur miður að hafa
falliö úr bikarkeppninni en þar hefur
okkur jafnan gengiö illa. Haukamir
ættu að geta sigrað þar, því spái ég.”
Jónas kom á óvart
„Við náðum ekki að sýna okkar
besta,” sagði Pálmar Sigurðsson,
„álagið hefur verið mikið á okkur
undanfarið og þreyta komin í liöið.
Njarðvíkingar voru aftur á móti
ákveðnir og þeim tókst betur en okkur.
Sérstaklega kom Jónas Jóhannesson á
óvart. Sýndi það sem hann hefur ekki
gert í vetur og var kannski maðurinn á
bak við sigurinn í dag.
Pálmar sá erfiðasti
„Þetta er með erfiðari leikjum sem
ég hef spilað,” sagði Isak Tómasson,
ungliði UMFN. „En meö samheldni
tókst okkur aö merja sigurinn og halda
titlinum. Annars er þetta búið að vera
skemmtilegt í vetur og það er kannski
allra best aö vinna með hörðum
úrslitaleik. Jú, ég hef stundum haft
erfitt hlutverk, verið falið að gæta
snjöllustu andstæöinganna og því oft
fengið fimm vUlur í leik. Þá er slæmt
að geta ekki lagt neitt af mörkum,
verða að horfa á þaö sem eftir er leiks.
Pálmar er sá erfiðasti að gæta enda
frábær leikmaður. Að sumu leyti er ég
feginn að við féUum úr bikarnum en
samt hefði verið gaman að standa í
slagnum.”
Bogi Þorsteinsson afhendir Gunnari Þorvarðarsyni blómvönd.
DV-mynd Brynjar Gauti.
• Leikmenn Njarðvíkurliðsins þakka stuðningsmönnum sinum góðan
stuðning í „Ijónagryfjunni".
DV-mynd Brynjar Gauti.
Njarðvíkingum boðið i Þórscafe
Þórscafé hefur boðið tslandsmcist-
urum Njarðvíkur í körfuknattleik tU
kvöldverðar í Þórscafé á föstudags-
kvöldlð kemur. Njarðvíkingai hafa
þegið boðið með þökkum en í Þórs-
café taka tveir kunnir söngvarar á
móti þeim — þau Anna VUhjálms og
Einar JúUusson, sem hafa gert
stormandi lukku í Þórscafé að und-
anförnu, ásamt hljómsveitum s'mum
ogÞórscabarett.
— Þetta boð frá Þórscafé kom okk-
ur skemmtilega á óvart og hlökkum
við tU að eiga kvöldstund þar, sagöi
HUmar Hafsteinsson, formaður
UMFN, þegar Njarðvíkingar fengu
boöið. Hilmar sagði að án efa kæmu
margir Suðumesjabúar í Þórscafé á
föstudaginn til að eiga góða kvöld-
stund með leikmönnum Njarðvikur-
iiðsins sem hafa lagt mjög hart að
sér í vetur. — Eg hvet Njarövikinga
og aðra stuðningsmenn Njarðvíkur-
liðsins til að panta borð timanlega í
Þórscafé og taka þátt i „siðasta leik”
Njarðvíkurliösins á keppnistímabU-
inu, sagöi Hilmar.
I
J
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir