Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Qupperneq 2
2
DV. MÁNUDAGUR 25. MARS1985.
Bréf frá Steingrími
olli straumhvörfum
Bréf frá Steingríini Hermannssyni Stjórn HIK vann aö því aö semja hlunnindahverskonar.” klukkan 17 á laugardag, dróst til
forsætisráöherra olli straumhvörf- ályktanir á laugardaginn' þar I þessum orðum telja kennarar, og klukkan að verða 18. Stjóm HlK sat
um i kennaradeilunni. Reyndar segir sem kennarar ætiuðu ekki að mæta í reyndar aörir BHM-félagar, aö komi með sveittan skallann við aö semja
forsætisráðherra þetta bréf hafa ver- dag. skýrt fram aö bera eigi dagvinnu- nýja ályktun í kjölfar bréfsins frá
iöþaöhálmstrásemkennararþurftu Svo kom brefiö frá Steingrimi og laun saman og sömu heildarkjör steingrimi.
tilaðsnúa afturtilstarfa. allt breyttist. Sá hluti bréfsins sem tryggö ríkisstarfsmönnum og þeim A fundinum voru tíðindi dagsins
A föstudag og fram eftir laugar- þykir hvaö merkastur er svohijóö- sem starfa á almennum markaöi í ræddogílokinlögðfraraályktunþar
deginum var nokkuö ljóst hvert andi: „Yfirlýsingar ríkisstjórnar- sambærilegum störfum. sem kennarar telja aö náöst hafi
stefndi í kennaradeilunni. Kennarar innar ber aö skilja svo aö ætlunin er Þetta bréf Steingríms er eitt af frammeginmarkmiö baráttunnar og
voru æfir yfiryfirlýsingu Ragnhildar aö tryggja ríkisstarfsmönnum sömu nokkrum bréfum sem fóru á miili séu því tilbúnir að ganga inn. Fyrst
þess efnis að leysa þá frá störfum ef heildarkjör og menn hafa viö sam- hans og formanns launamálaráðs þurfi þó aðganga frá launamálumog
þeir mættu ekki til starfa í dag. Svo bærileg störf og ábyrgö, m.a.aðdag- BHM, Stefáns Olafssonar. Stefán hvort þeir veröi kærðir vegna aö-
virtist sem bókun Alberts, sem kenn- vinnulaun veröi hin sömu þegar bor- spurði Steingrím í þaula um upphaf- gerða HlK.
arar höföu bundið vonir við, heföi in eru saman laun, sem eru fyrir lega samþykkt ríkisstjómarinnar. APH
ekkiorðiðtilneins. fulla dagvinnuaöeinsogtekiðtillittil Fundurinn, sem átti aö hefjast
— segir Kristján
Thorlacius
Þaö var endaniega bréfiö frá Stein-
grími sem aö sjálfsögöu er í framhaldi
af öörum bréf um sem höföu borist bæöi
frá Albert og ríkisstjóminni,” sagði
Kristján Thorlacius, formaöur HBC,
aðspurður hvað þaö heföi veriö sem
leysti deiluna. „Og þegar alit er sam-
antaiiö fannst okkur aö við gætum ekki
hafnaðþví.”
— Var bréf Steingríms það hálmstrá
sem ykkur vantaði til að hef ja störf aft-
ur?
„Bréf Steingríms talar mjög skýrt.
Gallinn viö það er auövitað sá að það
er hann sem segir það en ekki Albert.
Okkur er þaö auðvitaö ljóst aö þetta er
engin gulltrygging. Hins vegar er þetta
að mati okkar mjög mikilvægt.”
— Heföu kennarar ekki snúiö til
starfa í dag eða næstu daga ef bréf
Steingríms hefði ekki komið?
„Nei, það er held ég alveg ljóst.
Klukkutíma fyrir fundinn á laugardag-
inn vorum við með allt annan fund í
huga,” sagði Kristján Thorlecius.
APH
Albert Guðmundsson fjármálaráðherra ræðir við Kristján Thorlacius, formann Hins íslenska kennara-
félags, á ráðherraskrifstofunni síðdegis í gær. DV-mynd: GVA
Sambandsleysi milli ráöherranna?
Mesti misskilningur
— segir menntamálaráðherra
„Eg er því allshugar fegin aö þessu
ástandi er loksins lokið og kennarar
skuli nú aftur taka til starfa í skólun-
um. Það var hver dagur sem var orð-
inn til svo mikilla óþæginda fyrir nem-
endur að við það var ekki búiö lengur,”
sagði Ragnhildur Helgadóttir mennta-
málaráðherra í viðtali við DV í gær.
— Nú var Ijóst að kennarar hugðust
ekki mæta á mánudag þrátt fyrir yfir-
lýsingu þína.
„Þaö var náttúrlega ekki ljóst. Það
var einstaka maður sem hélt því fram.
Auðvitað var það ekki ljóst fyrr en eftir
aöfundurinn heföi tekið ákvöröun.”
— Telur þú að ákvörðun þín um að
leysa kennara frá störfum hafi verið
rétt?
„Jú, ég held þaö. Þaö var alveg
ljóst að þaö varö að hrökkva eða
stökkva. Þaö várö að taka afstööu af
eða á til þeirra kosta sem fyrir lágu af
hálfu stjórnarinnar.”
— Nú virðist ekki hafa verið nægi-
lega gott samband á milli ykkar
þriggja, Alberts, Steingríms og þín?
„Þaö er mesti misskilningur. Ef þú
átt viö bréf Steingríms á laugardaginn
þá var ég því mjög fegin. Mér fannst
þaö bara mjög gott aö það kom bréf frá
oddvita ríkisstjórnarinnar meö f rekari
útlistunum á því sem öll ríkisstjómin
var þegar búin að samþykkja.”
— Ákvörðun þín virtist koma þeim í
opna skjöldu?
„Þaö gat hún varla hafa gert. Hún
hefur kannski gert þaö vegna þess aö
þeir voru svo oft búnir aö hvetja mig til
þess arna. Eg þoröi bara ekki að bíða
lengur því ég óttaðist aö ein helgi liöi
enn án þess að afstaöa yröi tekin um að
ganga inn,” sagöi Ragnhildur Helga-
dóttir.
APH
Langleiðir
Kennarar hafa eins og kunnugt
er stööugt beðiö um nánari skýr-
ingar á hinu og þessu. Eftir hvert
atriði hefur komiö eitthvaö nýtt.
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar hefur
hvað mest vafist fyrir kennurum
og öðrum i BHM. Einn ráðherra
mun hafa verið oröinn nokkuö
ieiður á þessu stöðuga skilnings-
leysi og sagði við það tækifæri. „Nú
verðið þiö aö hætta að lesa þetta
eins og skrattinn les bibliuna.”
„BréfStein-
gríms talar
mjögskýrt”
Ólæti
r
I
Ólafsvík
Lögreglan í Olafsvík haföi í nógu
að snúast í kringum dansleik í
félagsheimili bæjarins á laugar-
dagsnótt. Þar var mikið fyllirí og
slagsmál brutust út hvaö eftir
annað.
Fangageymslurnar eru ekki
nema þrjár og voru þær tvísetnar
um nóttina. Fyrst var þremur
piltum stungið inn fyrir slagsmál.
Seinna um nóttina var þeim hleypt
út til aö rýma fyrir öörum þremur
piltum.
Tvær stúlkur slösuöust er þær
ölvaðar ultu niður stiga í félags-
heimilinu. Önnur skarst á höfði en
hinmeiddistáfæti.
Þá handtók lögreglan tvo menn
grunaða um ölvun við akstur.
-KMU.
Menntaskólinn
íKópavogi:
Foreldrarnir
mótmæla
ályktun
meirihlutans
Foreldrar stúdentsefna í Kópavogi
eru ekki á sama máli og meirihluti
bæjarráös þar. A fundi sem foreldrar
héldu á laugardaginn var samþykkt
ályktun þar sem mótmælt er harðlega
bókun meirihlutansíbæjarráðinu.
Upphaf þessa máls er það aö full-
trúar meirihlutans í bæjarráöi Kópa-
vogs lýstu því yfir að tilgangslitiö væri
aö halda áfram kennslu í Menntaskóla
Kópavogs ef ekki yrði samiö í vikunni.
Skólameistari skólans, Ingóifur A.
Þorkelsson, mótmælti þessari yfirlýs-
inguþegarístaö.
„I þessu felst að best sé að hætta
kennslu,” sagði Ingólfur í viðtali viö
DV.
Hann mótmælti þessu meðal annars
vegna þess að helmingur kennara
starfar viö skólann núna og sú kennsla
væri nemendum í hag. Ef kennslu yrði
híött yröi enginn stúdent útskrifaöur
frá sKólanum og þeir stæðu þá mun verr
að vígi á komandi hausti. Einnig væri
engin trygging fyrir því aö nemendur
kæmu aftur í skólann eftir aö kjara-
dómur væri fallinn. Skólameistarinn
boöaöi foreldra stúdentsefna og
nemendur á sinn fund á laugardaginn.
Á þeim fundi var hans álit samþykkt
samhljóða.
Þannig er ljóst aö bæjarstjórnin
virðist ekki eiga fylgi meöal stúdents-
efna né foreldra hvað þetta snertir.
Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Kópa-
vogs geröu einnig bókun. Hún var um
þaö aö biðja kennara aö snúa til
starfa á ný.
APH
Kennara vantaði eitthvert hálmstrá
segir forsætisraðherra
„Satt aö segja held ég að kennara
hafi vantað eitthvert hálmstrá til að
geta horfið aftur til vinnu. Og þetta
bréf mitt var þaö hálmstrá,” sagöi
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráöherra um bréf sitt sem hann sendi
kennurum á „tólfta tímanum” á
laugardaginn.
— Hvers vegna hefur þú staðið í
bréfaskriftum viö launamálaráð
BHM en ekki Albert?
„Þeir bara spurðu mig þvi aö í um-
ræöunum á Alþingi lýsti ég skilningi
mínum á því sem ríkisstjórnin var
búin að lofa. Þetta er nánast tekiö
upp úr ræðum mínum þar. En þú
verður aö spyrja formann iauna-
málaráös BHM hvers vegna hann
hringdi í mig,” sagöi Steingrímur.
— Hafa kennarar og aðrir í BHM
tryggingu fyrir því að farið verði eft-
ir því sem kemur fram í bréfi þínu?
„Þaö kemur ekkert fram í því sem
ekki hefur komiö fram áöur. Þaö
bara undirstrikar þaö aö meö þess-
um samþykktum, sem búiö er aö
gera, er ríkisstarfsmönnum lofaö
sömu heildarkjörum og eru á hinum
almenna markaöi.”
— Nú efast kennarar um að tryggt
sé að farið verði eftir þessu vegna
þess að þetta kemur frá þér en ekki
Albert.
„Þeir hafa fyrst og fremst trygg-
ingu fyrir því sem ríkisstjómin hefur
samþykkt. Þetta er allt í þeim. Hvaö
eru menn aö tala um sömu laun eöa
sömu kjör ef þaö er ekki fyrir dag-
vinnu. Eg verð aö segja alveg eins og
er að |iað Idýtur aö vtrða Ixmiui s;un-
an sami vinnutími. Þaö er ekki hægt
aö tala um sömu laun nema vinnu-
tíminn sé sá sami. Þaö liggur í hlut-
arins eðli finnst mér og ég verö að
segja að mér fannst menn vera aö
deila umkeisarans skegg.”
— Varstu orðinn þreyttur á þess-
um endalausu beiðnum um nánari
skýringar á yfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar?
„Jú, ég var oröinn þaö. Vissu-
lega.”
Steingrímur sagöi aö hann teldi Al-
bert vera á sama máli og hann um
samanburð á launum ríkisstarfs-
manna og annarra á almennum
markaöi. Hins vegar benti hann á að
deilur heföu fariö fram í Morgun-
blaöinu á milli Indriða H. Þorláks-
sonar og Stefáns Olafssonar sem að
hans mati heföu ekki bætt úr þegar
þessi mál voru á viökvæmu stigi.
— Var ákvörðun Ragnhildar að
þinu mati óheppileg?
„Ég held aö ákvöröun Ragnhildar
hafi veriö ákaflega eðiiieg eftir
þriggja vikna verkfall. DeUt hafði
veriö á ríkisstjómina fyrir aö hafa
ekki gripiö til harðra aðgerða. Hins
vegar hefði kannski mátt bíöa meö
hana þar til kennarar hefðu verið
búnir aö taka afstöðu tU bókunar Al-
berts,” sagöi forsætisráðherra.
APH