Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Side 15
DV. MÁNUDAGUR 25. MARS1985.
15
KLOFIN TUNGA
Haukur Helgason hefir gert
sjálfum sér þá skömm aö skrifa meö
stuttu millibili tvo leiðara i DV um
kjaradeilu HDí og ríkisvaldsins.
Efni þeirra beggja er hiö sama:
Kennarar í HlK beita nemendum
fyrir vagn sinn í þeim tilgangi að
kúga fé út úr ríkinu og skirrast ekki
viö aö brjóta lög til aö ná settu
marki. Ætla mætti aö maður sem vill
aö skrif hans séu tekin alvarlega
reyndi aö finna skýringu á þeirri
ákvöröun kennara aö hætta kennslu
1. mars sl. Athugaði hve oft kjara-
deila þeirra heföi farið fyrir kjara-
dóm undanfarin tíu ár og hver ávinn-
ingur kennara hefði verið, læsi
skýrslu endurmatsnefndar sjálfur en
léti ekki fulltrúa fjármálaráöuneyt-
isins segja sér hvaö þar stæöi, íhug-
aöi hvort eitthvert réttlæti væri í því
aö ríkisstarfsmaöur meö 4—6 ára há-
skólamenntun — hvaö þá lengri — aö
baki hefði a.m.k. 50% lægri laun en ef
hann starfaði á hinum almenna
markaðL En þaö er ööru nær. „AUir
vita, sem vilja vita, aö kennarar eru
aö beita þjóðfélagiö fjárkúgun,”
stendur þar. Ekki orö um laun kenn-
ara, ekki stafur um hvaö tilboð ríkis-
ins þýöi í krónum en hinsvegar: „Aö
sjálfsögöu geta kennarar skipt um
starf, en þeim mun ekki fyrirgefiö aö
skilja nemendur sína eftir úti á gadd-
inum meö þessum hætti.” Því öll er
sökin kennaranna, ríkisvaldið hefir
gert hvaö í þess valdi stendur.
Nú ætti H.H. aö vita hver laun
kennara í HlK eru því aö þeir hafa
ekkert veriö feimnir viö að greina
frá því bæöi í málgagni hans og
víöar. Honum ætti því ekki aö vera
skotaskuld úr því aö reikna út hvaö
15% hækkun þeirra launa þýddi í
krónum en þaö hefir samninganefnd
ríkisins boöiö þeim HlK-félögum
sem mest skulu fá. Ekki aldeUis. En
mundi RH. vilja upplýsa hver væru
laun blaöamanna á DV? Er þar ein-
hver á kennaralaunum? Eru blaða-
menn þar í aukavinnusnapi sér tU
Ufsbjargar eða ha£a þeir viöurværi
sitt af fullri vinnu við blaöið? Hvaö
ber H.H. sjálfur úr býtum fyrir sora-
skrif sín? Er hann maður tU aö skýra
frá því? Eöa eru þetta máski bara
hugsjónaskrif hjá honum?
Hvað hefur verið boðið?
I hinum síöari þessara tveggja
leiöara sem birtist 15. mars sl. og er
GÍSLI MAGNÚSSON
KENNARI VIÐ
FJÖLBRAUTASKÓLANN
Í BREIOHOLTI
höfuötúefni þessa greinarstúfs tæpir
H.H. á skýrslu endurmatsnefndar
menntamálaráðuneytisins og gerir
því skóna aö kennarar hafi þar „úr
ýmsu að moða”. En hvaö er þeim
boðiö? Jú, ,,að leiöréttur veröi viö
rööun í launaflokka sá munur sem er
á kennurum og öðrum ríkisstarfs-
mönnum meö sambærUega
menntun”. Er þetta eitthvað nýtt?
Eg veit ekki betur en kjaradómi hafi
ætíö veriö skylt að dæma svo þó aö nú
hafi það runniö upp fyrir ríkisvald-
inu aö haUi væri kominn á vogina Því
býður samninganefnd ríkisins kenn-
urum nú 1—3 flokka hækkun plús
hækkun yfirvinnugreiðslu sem
svarar tU eins flokks eöa í aUt frá ca
800 kr. uppí u.þ.b. 2500 kr. þeim sem
kjaradómur hefir svínað mest á. Þaö
er aEt og sumt Og svo ærist H.H. yfir
því að kennarar skuU tortryggja
þennan sama kjaradóm. En áfram
skulu kennarar fylla neöri flokk-
ana í launastiga kjaradóms, alls
ekki vera ofan viö miöju eins og er í
öUum löndum sem viðurkenna aö góö
menntun er grundvöUur framtíöar-
samfélags og sýna þaö í verki. En
hvemig er ástandiö hér? Orö uppúr
ritvél í besta faUi. Og þeir sem and-
æfa eru kaUaöir fjárkúgarar.
En kennarar eiga aö visu aö fá
meira. Þeir eiga Uka aö fá þá
hækkun sem öörum félögum í BHMR
hefir veriö boöin; því hafandi lesið
skýrslu samanburðamefndar er
náttúrlega ekki hægt aö horfa fram-
hjá þvíaðnokkurmunurerá launum
ríkisstarfsmanna og þeúra sem
starfa á almennum markaöi. Þennan
mun hefir launamálaráö BHMR
metiö á a.m.k. 50% og sýnist manni
að erfitt muni aö hrekja þann út-
reikning. En þeir eru til sem ekki
eiga í neinum vandræöum meö þaö.
Fimm prósent er munurinn. Og þaö
er boðið.Þessu eiga ríkisstarfsmenn
að kyngja. OUkindareikningur tals-
manns fjármálaráðuneytisins er
reyndar greinarefni útaf fyrir sig en
tæpast við búið aö H.H. skoöi slíkt af
nokkurri skynsemi.
Neyðarréttur?
Aðstoðarritstjóranum veröur tíö-
ritaö um lögbrot kennara er þeir
gengu út hinn 1. mars sl. Ef ég man
rétt reit þessi sami maöur frelsis-
gapandi leiðara um neyöaiTétt er
hann var aö verja ólöglega útvarps-
stöð DV sl. haust. Þá voru lög ólög og
„neyðarrétturinn” rökstuddur meö
því aö sinna þyrfti upplýsingaskyldu
og gott ef ekki var tekiö undir bylt-
ingartal myrkfælinna einangrunar-
seggja sem töluöu útúr hvítum
herbergjum. Þessu rausi hefir
raunar veriö margsvaraö en enga
trú hefi ég á að H.H. taki nokkurt
marká því.
Síðasta málsgrein þessa geöilla
leiðara er endurtekningar verö:
„Stefni í það, aðkennsla í framhalds-
skólum veröi ekki með eðlilegum
hætti á næstunni, veröur að bjarga
því sem bjargað veröur meö ráön-
ingu nýrra kennara.” Því H.H. ber
svo mikla umhyggju fyrir
nemendum. Umhyggju af því tagi
sem búast mætti við af manni sem
hefir reynt aö kenna — en gefist upp.
Nú veit ég ekki hvort svo er um H.H.
en samur er skilningurinn. Skítsama
hver stendur við púltiö.
Allt of lengi hafa ísl. skólanemar
látiö sér þaö lynda að nánast
hverjum sem er sé hent inn um
dyrnar á skólastofunni til aö standa
viö púltiö og passa aö nemendurnir
hlaupi ekki út. Er mál oröið aö
slíkum ruddaskap gagnvart
nemendum linni.
Gísli Magnússon
Rakarastofan Klapparstíg
Simi12725
'v Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Við höfum lagt
traust okkar
áOSRAM
i mmmm
SALO
gaveg. 99 bimj; 22fc>80|1 CLTsk Ms
SÓLSKUÝKJAN
5ÓI.HUSIO
RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND
MALNTNG -
MÁLNTNGARVÖRUR
Áður en þú byrjar að mála er nauðsynlegt að gera sér grein
fyrir hvar best er að kaupa efni til verksins.
JL-Byggingavörur hafa mikið úrval af málningarvörum og
ráðleggingar starfsmanna okkar eru fyrsta skrefið í vali á besta
og hagstæðasta efninu.
Afsláttarkjörin okkar á málningu er hagstæðasta verðið í dag.
5% afsláttur af kaupum yfir kr. 2500,—
10% afsláttur af kaupum yfir kr. 3200,-
15% afsláttur af kaupum yfir kr. 4600,-
20% afsláttur af heimkeyrðum heilum tunnum.
Flll BYBGlNGftUOBÐBl
MÁLNINGARVÖRUDEILD, HRINGBRAUT 120.