Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1985, Page 35
DV. MÁNUDAGUR 25. MARS1985. 35 Trúnaðurbrotinn: Nafnalisti fór á flakk Getur maður, sem leitar sér að at- vinnu meö aöstoð ráðningarfyrir- tækis, veriö öruggur um að með upp- lýsingar hans veröi farið sem trúnað- armál? Samkvæmt upplýsingum DV hafði fyrirtæki, sem leitaði að starfs- manni, látið nafnalista ganga um fyrirtækiö og gátu allir sem þar unnu séð hverjir sóttu um atvinnu. Þetta kom sér afar illa fyrir einn um- sækjanda sem var skráður á listann en hann var að athuga möguleikana áöörustarfi. DV hafði samband við Hagvang, sem í þessu tilviki hafði milligöngu um kynningu umsækjenda og spurði hvemig farið væri með persónulegar upplýsingar fólks. Þórir Þorvarðarson, f orstöðumaður ráöningarþjónustu Hagvangs, sagði að farið væri með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. „Þetta gengur þannig fyrir sig aö fólk kemur til okkar og gefur upplýsingar um menntun og annað sem að gagni þyk- ir koma. Umsækjandinn getur ráöiö því hvort gætt verður nafnleyndar eða hvort nafn hans kemur fram á lista sem forsvarsmanni fyrirtækis- inserkynntur. A þessum lista er ekkert annað en nöfn einstaklinganna sem óska eftir atvinnu. Ef fyrirtæki óska eftir að ráða fólk með milligöngu Hagvangs er boðaður fundur með talsmönnum fyrirtækisins sem fær nafnalistann í hendur en ekki aðrar upplýsingar. Þær hafa starfsmenn Hagvangs einir í höndunum.” Olafur Öm Haralds- son framkvæmdast jóri sagði að hefði nafnalisti komist á flakk í fyrirtæk- inu hefðu forráöamenn fyrirtækisins brotið trúnaö því að á nafnalistanum stæði skýrum stöfum „trúnaðar- mál”. Þetta væri veikur hlekkur, sagði Ölafur, en Hagvangur yrði að treysta atvinnurekendunum. „Ég harma að þetta skuli hafa átt sér stað og vil taka það fram að hér er um algert undantekningartilfelli að ræða.” —ÁE Höfum opnað nýja skóverslun 15% afsláttur af öllum skóm ATH. AÐEINS TIL ÞRIÐJUDAGS! AUSTURSTRÆTIÍO SÍMI 27211

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.