Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Síða 6
6 DV. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1985. Þrír Frakkar Notalegasta matstofan Sá, sem einskis væntir, verður ekki fyrir vonbrigðum. Ég hef nokkrum sinnum hrasað á þessari ágætu reglu, til dæmis þegar ég heimsótti Þrjá Frakka í fyrsta sinn. í annað og þriðja sinn var eftirvæntingin hóf- samlegri og árangurinn þeim mun betri. Matreiðslan í Þremur Frökkum reyndist ekki vera frábær eins og ég hafði fyrirfram ímyndað mér, að hún væri. Hún er til dæmis ekki betri en að Búðum á Snæfellsnesi og alls ekki eins góð og í Amarhóli. En hún er samt góð, betri en víðast hvar í veit- ingahúsum á íslandi. Þrír Frakkar eru ein fegursta matstofa iandsins, ekki af því að gífurlegt hafí verið lagt í innrétting- ar, heldur vegna smekkvísinnar, sem ráðið hefur ferðinni. Hvergi er nota- legra að sitja að snæðingi en einmitt í sextán sæta aðalstofunni, sem myndar L um lítinn bar. 22 sæti til viðbótar eru í garðstofu og innra herbergi, sem eru í sama stíl og aðalstofan. Samtals rúma Þrír Frakkar tæplega 40 gesti og eru því af kjörstærð veitingahúsa. Sam- kvæmt franskri reynslu falla veit- ingahús úr efsta gæðaflokki, þegar sætafjöldinn fer yfir 40. Gult er í lofti og ofanverðum veggj- um. Neðantil á veggjum er klæðning í dökkbrúnum lit í stíl við barinn. Nokkrir speglar eru á veggjum. Þeir mættu gjama vera fleirí og stærri. Lýsing er óbein og mild, en niður- soðnu tónarnir stundum fremur hátt stilltir. Notaleg pottablóm eru í heimilislegum .gluggum með fremur smáum rúðum. Rauður marmari Á svörtu steinflísagólfi standa smíðajámsborð með afar fögmm, rauðum marmaraplötum og við þau smekklegir, svartir tréstólar. Á borð- um era kertaljós í glerstjökum og frönsk mataráhöld, þar á meðal feg- urstu vínglös, sem ég hef séð í veit- ingahúsi hér á landi. A kvöldin era borðin hvítdúkuð, en nakin í hádeginu. Mér finnst þau fallegri þannig. Á kvöldin fá gestir tauþurrkur, en pappírsþurrkur í hádeginu, þótt verðið sé .óbreytt. Málsbætur felast í, að pappírsþurrk- urnar era stærri og nothæfari en gengur og gerist hér á landi. Þjónusta er góð, þótt hún sé ekki eins skóluð og bezt gerist hér á landi. Stundum veit starfsfólk, hver pant- aði hvað og stundum ekki. Stundum fá gestir kælifötu undir hvítvínið og stundum ekki. Vatn fæst ekki sjálf- krafa. En vingjarnleg er þjónustan. Vínseðillinn er sérkennilegur og staðnum raunar til skammar. Þar er hlaðið inn flestu þvi dýrasta, sem fáanlegt er í Ríkinu. Mér verður hálfflökurt við að sjá í vínlista verð á bilinu 1000-2000 krónur. Svo eru þessi dýru vín alls ekki hin beztu. Þeir ættu þó ekki að fara villir vegar, sem halla sér að Saint-Emilion frá Luze, Chateau Barthez eða Chateau Cantenac-Brown i rauðvín- um og Gewurztraminer, Riesling Hugel eða Chateau du Cléray i hvít- vínum. Ég saknaði hins ódýra Chate- Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið. Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús au Fontareche, sem komið er í stað Chateau de Saint Laurent og er örlít- ið betra. Einn kost hefur vínlisti Þriggja Frakka umfram aðra slíka hér á landi. Árganga er þar getið. Það er mjög mikilvægt, því að þeir, sem til þekkja, vita, að í ýmsum tilvikum er skarpur gæðamunur milli ára, þótt verðmunur sé enginn. Of mikið fullyrt Matseðillinn er afar stuttur, telur alls tólf-þrettán rétti, að forréttum og eftirréttum meðtöldum. Jafnvægi ríkir milli físks og kjöts, oft um þrír aðalréttir af hvoru tagi. Þetta væri alveg nógu langur matseðill, ef skipt væri um daglega, eins og Þrír Frakk- ar segjast raunar gera. Mín reynsla er hins vegar sú, að sjaldnar sé skipt um seðil og að fastir liðir færist gjarna milli seðla. Hum- arsúpa og humarhalar Oddyseifs era lífseigir liðir og sömuleiðis kiwi- sneiðar í ljósu rommi og sítrónuterta hússins. Smjör er borið á borð í sérstökum smjörbollum, sem ég hef lengi saknað í veitingahúsum landsins. Brauðið er auðvitað hveitiflautur í frönskum stíl. Það er bragðgott brauð, en líður fyrir, að flestir eru orðnir vanir holl- ustubrauði úr heilkomi. Blaðlauksúpa með ristuðum osta- brauðbitum var góð, borin fram í súpuskál og henni ausið á heitan diskinn. Þetta var hveitilaus rjóma- súpa, eina súpan á seðlinum í það skiptið. Rækjur í hvítlauk voru vel úti látnar, litlar, meyrar og fremur bragðdaufar, enda yfirgnæfði hum- arsoðbragðið í sterkri fiskisósunni. Með rækjunum var mikill hvítlauk- ur og steinselja, hrísgrjón, tómat- bátur og sítrónubátur. Sniglar í hvítlaukssmjöri voru snarpheitir, meyrir og góðir. Hvít- lauknum var beitt af hófsemi í þetta skiptið, líklega fullmikilli hófsemi. Þeir vora bornir fram með glæsileg- um snigiláhöldum. Hreindýrakæfa var mjög þétt í sér, að mínu viti alltof þétt. Þar að auki var hún bragðdauf og án villibráðar- bragðs, lakasti rétturinn, sem próf- aður var. Ýsa „elegant" var mildilega pönnu- steikt, borin fram með óhóflega miklu smjöri og mildilega elduðu grænmeti. Hún var rækilega hvít- laukskrydduð eins og svo margir aðrir réttir Þriggja Frakka. Hörpuskelfiskur Oddyseifs var smávaxinn, ekki verulega meyr, vel hvítlaukskryddaður, borinn fram með sterkri humarsoðssósu og sama meðlæti og áðurnefndar rækjur. Humarhalar Oddyseifs voru mynd- arlegir, afar vægt eldaðir og einkar bragðgóðir. Þeir voru ristir í bakið og litu glæsilega út á diski. Kryddlegnar gellur voru óvenju- lega litlar í þetta skiptið, en samt sem áður afskaplega bragðgóðar. I fylgd þeirra var rósakál, gulrótarræmur, tómat- og sítrónubátar. Franskur lambapottréttur var frambærilegur, en ekki sérlega spennandi. Kjötið var meyrt, þótt Dœmigerður matseðill rjo Humarsúpa 280 Sniglar í Ijvítlaukssmjöri 240 Hreindjrapaté 640 Humarhalar Oddjseifs Jio Húðukótelettur 460 Kryddlegnar gellur 6jo Lambalundir í estragon 690 Villigœs 7)0 Nautasteik vínkaupmannsins J20 Hreindýrasteik 220 Vanilluís með ávöxtum 220 Eplaterta 2)0 Sítrónuterta það væri óhjákvæmilega grátt. Með kjötinu fylgdi lítils háttar af svepp- um, bökuð kartafla, þrenns konar kál, blóm-, rósa- og brokkál, svo og gulrótarræmur og blessunarlega hveitilaus kjötsoðssósa. Portvínslegið lambafillet var miklu betri réttur, raunar sérstaklega góð- ur. Kjötið var hæfilega hrásteikt, meyrt og bragðmikið. Það var borið fram með miklu af sveppum og sama meðlæti og hitt lambakjötið, að blómkálinu frátöldu. Væg eldun grænmetis Eitt einkenna Þriggja Frakka er mildilega eldað grænmeti, sem kem- ur í stað hrásalats, er margir hafa vanizt hér á landi. Hrásalat er góður siður, en kemur frá Bandaríkjunum, svo að ekki er hægt að ætlast til hans af frönskum stað. Og Þrír Frakkar kunna vel að forðast mauk- suðu grænmetis. Kiwisneiðar í ljósu rommi litu afar fallega út og voru bragðgóðar. Hið sama mátti segja um melónuteninga í púrtvíni, þótt þeir hefðu mátt fá að liggja lengur i víninu. Kaffi var gott í öll skiptin. Þrír Frakkar eru í eins konar trei kvartflokki verðlags, mitt á milli miðjuverðshúsa og dýru veitingahú- sanna, á svipuðum slóðum og Alex og Hvítir hrafnar. Miðjuverð þriggja rétta máltíðar með kaffi og hálfri flösku af víni var 1342 krónur, sam- kvæmt reikningsaðferð þessa greina- flokks. Staðurinn hefur stíl, sem hæfir þessu verðlagi - og mundi hafa slíka matreiðslu, ef hún væri öll eins og á gellunum og portvínslambinu. Þrír Frakkar hafa greinilega öðlazt vinsældir. Staðurinn var vel setinn í öll skiptin, sem hann var prófaður Ráðlegt er að panta borð með sæmi- legum fyrirvara, því að 38 sæti verða fljótt upptekin. Jónas Kristiánsson Datsun 280 ZX, árg. 1983, ekinn 49.000, k 6cyl.,5gíra, \ 2jadyra, \ beinskiptur, 1 vökvastýri, 1 aflbremsur, L, I útvarp, ||l kassetta, / T-toppur, M rafmagn í rúðum; 'sportfelgur. Sjón er sögu ríkari, svartur. Skipti á ódýrari. Ath. skuldabréf. M-Benz 280 SE árg. 1983,6 cyl., sjálfsldptur, vökvastýri, aflbremsur, ekinn aðeins 19.000, litað gler, centrallæs- ingar, rafmagn í rúðum, út- varp, kassetta o.fl., blásans, skipti á ódvrari. M-Benz 280 SE árg. 1975, sjálfskiptur, vökvastýri, aflbremsur, 6 cyl., sportfelgur, topplúga, útvarp, kassetta. Skipti á f r ódýrari. Vinrauður. / f Verð 495.000. Einnig /Ert (, M-Benz 280 SE árg. IBm ^1976. \wm ffS1 BMW318iárg. 1982, 4ra cyl., beinskiptur, útvarp, kassetta, sport- felgur, 5 gíra, litað gler, rafmagn í spegli, hauspúðar að aftan og Range Rover árg. 1981, ekinn 91.000,8 cyl.. 2ja dyra, bein- skiptur, vökvastýri, aflbr- emsur, fallegur bíll. Skipti á ódýrari. Skuldabréf. Blár. Verð 950.000. Vínrauður, skipti á ódýrari. Verð 475.000. BÍLASALAN BUK Skeifunni 8 Sími 68-84-77. *1*X*I*1»I*I*5*I*1*X*X*I*X*X»1*I*S*

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.