Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Qupperneq 18
18
DV. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1985.
Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan
Tveir þriðju hlutar Etro fou leloublan á sviðinu í Safarí. Bassaleikarinn var því
miður fjarri góðu gamni.
Svart-hvítur draumur á fullri keyrslu enda Bensínskrímslið ekki langt undan
Frönsk fizxing
Óstundvísi í sambandi við tón-
leikahald er orðin að óskráðri
reglu. Á tónleikum Etro fou lelou-
blan á sunnudagskvöldið gekk
samt alveg fram af mér. Þeir voru
auglýstir stundvíslega klukkan
hálf níu en hófust áttatíu minútum
síðar. Nær hefði verið að auglýsa
að tónleikamir hæfust óstundvís-
lega klukkan hálf níu. Það er
óþolandi að hanga og bíða eftir að
tónlistarmönnum þóknist að byrja.
Nóg af géðillsku og snúum okkur
að því sem var á dagskrá umrætt
kvöld. Rokksveitin Svart-hvítur
draumur úr Kópavoginum reið á
vaðið. Þremenningamir á bassa,
gítar og trommur, og tóku fimm eða
sex lög. Flutningurinn var kröftug-
ur og samæfing meðlima góð.
Bassaleikarinn er ekkert sérstakur
söngvari en söngurinn slapp samt
íyrir hom, enda greinilega til upp-
fyllingar. Þrátt fyrir einfalda hljóð-
færaskipan vom lögin fiölbreytt og
nokkur þeirra hljómuðu vel strax
við fyrstu hlustun. Með nokkurri
eftirvæntingu bíður maður fyrstu
plötu hljómsveitarinnar sem kemur
út um miðjan mánuðinn. En þrátt
fyrir ágæta frammistöðu var lit-
lausa draumnum ekkert sérstak-
lega tekið af áhorfendum. Flestir
greinilega komnir til að hlýða á
Etro fou.
Var Jesús rakari?
En áður en Frakkamir komu á
sviðið stigu skáldin Sigfús Bjart-
marsson og Einar Már Guðmunds-
son fram og lásu úr eigin verkum.
Sigfús las ljóð en Einar sögu. Sá
síðarnefndi las af ákefð og reyndi
að fullvissa viðstadda um að Jesús
Kristur hefði verið rakari í Vestur-
bænum. Því var fálega tekið.
Lestur skáldanna var ágætt inn-
skot í tónlistina en hefði vitaskuld
átt að vera fyrsta atriðið á dagskrá.
Hröð og ofsafengin
Áður en meðlimir Etro fou stigu
á svið tilkynnti kynnir kvöldsins,
Sjón, tuttugu mínútna hlé. Að því
loknu tilkynnti hann með reip-
rennandi framburði að Etro fou
leloublan væri lokaatriðið. „En,
því miður vantar einn hljómsveit-
armeðlima." Karl og kona gengu
fram en bassaleikarinn, Ferdinand
Richard, hafði hnigið niður á flug-
vellinum í Keflavík. Flughræðsla,
skilst mér.
Tvímenningamir tóku sér stöðu
við trommur og orgel og byrjuðu
að spila. Tónlistin virkaði framandi
og var ofsafengin á köflum. Yrkis-
efnið var líka í flestum tilfellum
sótt í hið firrta þjóðfélag sem við
búum í. En heldur var tónlistin
mónótísk og ekki bætti úr skák að
maður skildi ekki frönskuna.
Trommuleikarinn barði þó tromm-
umar af leikni og fór á kostum í
sumum laganna. Á milli þess sem
hann barði húðimar blés hann í
saxófón. Stúlkan á hljómborðinu
sýndi hins vegar lítil tilþrif. Sló
aðallega ósamstæða tóna og var
mestur hluti spilamennskunnar
ömgglega impróviseraður. Tónlist
tvímenninganna saknaði greini-
lega Ferdinands bassaleikara og
söngvara, enda mun hann vera
aðaldrifíjöður sveitarinnar. Þrátt
fyrir þetta virtust gestir mjög
ánægðir með flutninginn. Þökkuðu
fyrir sig með miklu lófataki og
uppskám aukalag. Það er heldur
ekki á hvejum degi sem franska
hljómsveit rekur á fjömr landans.
Kærkomin tilbreyting frá engilsax-
neskri einokun og hafi Grammið
þökk fyrir þessa framtakssemi, þó
svo að einn þriðja sendingarinnar
hafi vantað. h T\t
Jóhann Helga með sólóplötu
„Þetta er plata fyrir þá sem fíla
rólega tónlist. Ég er hræddur um
að rokkunnendur finni á henni lítið
við sitthæfi."
Svo fómst Jóhanni Helgasyni orð
um nýjustu plötu hans sem kom
út í vikunni. Þetta er þriðja sóló-
plata Jóhanns. Áður em komnar
út Tass (1981) og Einn (1983).
„Á plötunni em 10 lög. Þau em
öll nema eitt samin á ámnum
1979-84. Ástæðan fyrir að þetta
kemur fyrst út núna er sú að á
sínum tíma sá ég efnið fyrir mér
með strengjasveit. Fyrir 10 árum
var hi'ns vegar nánast útilokað að
gera þessu þannig skil. Þetta var
sem sagt mikið mál þá en er auðvelt
ídag.“
Eyþór Gunnarsson sá ásamt
Jóhanni um að útsetja lögin. Hann
spilaði einnig á öll hljómborð, auk
þess sem hann stjómaði upptökum.
Jóhann gefur plötuna sjálfur út.
Hún heitir einfaldlega Ástin.
ÞJV
Bubbi er kominn heim. Hann heldur af því tilefni tónleika í Zafarí
á fimmtudagskvöldið.
Bubbi kom
innheim
Bubbi Morthens er væntanlegur
heim á morgun frá Svíþjóð. Hann
hefur að undanfömu verið að taká
upp plötu í Svíaríki og kemur hún
á markað hér og á hinum Norðurl-
öndunum á næsta ári.
Á fimmtudagskvöldið heldur
Bubbi tónleika í Zafarí í tilefni
heimkomunnar. Verða þetta fyrstu
sjálfstæðu tónleikar hans á höfuð-
borgarsvæðinu í eitt og hálft ár.
Tónlistaráhugafólki gefst þama
gott tækifæri til að heyra hvað
Bubbi hefur verið að bardúsa að
undanfömu. Og væntanlega mun
eitthvað af eldra efrti fljóta með.
-ÞJV
„Við erum með
fullu lífsmarld”
- engiiui uppgjafartónn í herbúðum Mezzoforte
„Hljómsveitin er ennþá með fullu
lífsmarki. Við erum núna að hvíla
okkur og fá innblástur," sagði
Eyþór Gunnarsson, þegar DV innti
hann eftir fréttum af Mezzoforte.
Að undanfömu hafa fréttir heyrst
af upplausn innan hljómsveitar-
innar. Þær sögusagnir fengu byr
undir báða vængi þegar Jóhann
Ásmundsson bassaleikari sagði á
dögunum skilið við félaga sína. í
fréttatilkynningu frá Steinum hf.
voru ástæður Jóhanns fyrir úr-
sögninni sagðar persónulegar.
„Ég hef engu við það að bæta,“
sagði Jóhann þegar undirritaður
ræddi við hann. „Ef þú vilt fá frek-
ari upplýsingar um hljómsveitina
skaltu spyrja strákana sjálfa."
Eins og kom fram hér að framan
ætla þremenningamir Eyþór, Frið-
rik og Gunnlaugur að halda áfram
samstarfi. En breytti brottför Jó-
hanns engu í sambandi við áætlan-
ir hljómsveitarinnar?
„Nei, þetta setur okkur ekkert
út af laginu,“ sagði Eyþór. „Við
fengum að vita þetta með góðum
fyrirvara og höfum nægan tíma til
að gera aðrar ráðstafanir. Eins og
málin standa í dag fömm við út í
janúar og tökum upp eitt lag,
hugsanlega fleiri. Síðan gemm við
ráð fyrir að taka upp nýja plötu
með vorinu og fara í hljómleika-
ferðir í sumar.“
- Ætlið þið að fá nýjan bassaleik-
ara í stað Jóhanns?
„Það er allt óljóst í sambandi við
það ennþá. Það er alveg eins víst
að við notum bara rafmagnsbassa.“
- Nú hafa þær sögur gengið íjöll-
um hærra að Skúli Sverrisson eigi
að taka sæti Jóhanns?
„Því get ég ekki svarað á þessu
stigi málsins. Við erum alla vega
með augun opin fyrir góðum hljóð-
færaleikurum.“
- En hvemig hefur gengið að fá
innblástur?
„Það hefur gengið vel. Við þre-
menningamir höfum byrjað að
semja lögin í sameiningu og það
hefur gefist ágætlega. Við komum
endurnærðir til leiks."
- Það er þá enginn uppgjafartónn
í ykkur ?
„Nei, síður en svo,“ svaraði
Eyþór hress.
-ÞJV