Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Qupperneq 34
34
DV. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1985.
Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur
HANNES HAFSTEIN Hll
eftir KRISTJÁN ALBERTSSON
Endurskoöuð útgáfa
Ævisaga Hannesar Hafsteins eftir
Kristján Albertsson kom út í sinni
fyrri útgáfu 1961-1964. Nú kemur
þetta mikla ritverk út öðru sinni í
endurskoðaðri útgáfu. Er sú endur-
skoðun gerð vegna nýrra heimilda
sem fram komu eftir útkomu verks-
ins. Eru sumir kaflar bókarinnar
endurritaðir og er hin nýja útgáfa
því nokkru ítarlegri en sú fyrri.
Saga Hannesar Hafsteins er ekki
einungis ævisaga skáldsins og hins
áhrifamikla stjómmálamanns heldur
má hún kallast þjóðarsaga tímabils-
ins 1880-1920. Bókin vakti geysim-
ikla athygli þegar hún kom út og svo
fjörugar umræður um efnið, sem hún
fjallar um, og efnismeðferð höfundar
að slíks eru víst fá eða engin dæmi
önnur um íslenska bók, enda varð
Hannes Hafstein metsölubók. Stúd-
entafélag Reykjavíkur hélt sérstak-
an fund um bókina þar sem menn
leiddu saman hesta sína með og á
móti og var engu líkara en Heima-
stjómarflokkurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn gamli væm aftur upp
risnir. Og hún hratt af stað næsta
áratuginn bókaskrifum um stjóm-
málamenn og stjómmál í upphafi
aldarinnar. Menn vom ósammála
um margt, en um eitt voru allir
sammála: Bókin er afar skemmtileg
aflestrar.
Þessi nýja útgáfa af Hannesi Haf-
stein er endurskoðuð af höfundinum
og kemur fram sitthvað nýtt sem
ekki var kunnugt um þegar fyrri
útgáfan kom út. Sumir kaflar em
endurritaðir og er hin nýja útgáfa
því nokkm ítarlegri en sú fyrri.
HANNES HAFSTEIN er um 1100
bls. samtals auk myndasíðna.
L3 UKW Zoöw
Jj %■ Ii
l * Í-CZ'.^ v
. íjh
á
| ÁÖLLUM BLAÐSÖLUSTÖÐUM |
FORNARELDUR
Fórnareldur nefnist ellefta bókin
sem út kemur á íslensku eftir Mary
Stewart en henni er einkar lagið
að skrifa bæði rómantískar og
spennandi sögur með óvæntum
endi.
Á kápubaki bókarinnar segir
m.a.: „Gianetta, fyrrverandi ljós-
myndafyrirsæta, kýs að eyða sum-
arleyfi sínu á friðsælum stað,
Þokueyjunni. En á fjallahótelinu,
Gamasunay, hittir hún fyrrverandi
eiginmann sinn, rithöfundinn Nic-
holas Drury. Er það tilviljun eða
hefur hann fylgst með henni og
ætlar að ná ástum hennar á nýjan
leik? Magnað andrúmsloft eyjar-
innar hefur djúp áhrif á þau bæði
en Gianetta er ekki vissi um tilfinn-
ingar sínar.
Iðunn gefur bókina út. Elísa
Björg Þorsteinsdóttir þýddi hana.
Kápan er hönnuð á auglýsingastof-
unni Ocavo. Oddi prentaði.
FRAMHALDSLÍF FÖRU-
MANNS
- endurminningar Hannesar Sigf ússonar
skálds.
Út er komin hjá Iðunni bókin
Framhaldslíf förumanns eftir
Hannes Sigfússon. Höfundur segir
hér frá ævi sinni frá því að hann
heldur til Svíþjóðar haustið 1945,
ungt skáld og óráðið, og allt til
þess að hann tekur að leiða hugann
að eigin æsku, roskinn maður í
Noregi. Þar á milli eru meira en
þrír áratugir sem einkennast mest
af eirðarlausri leit skáldsins að
staðfestu í lífi sínu. - Hannes segir
hér margt af skáldbræðrum sínum
og vinum. Hann bregður upp eftir-
minnilegum myndum af Steini
Steinarr sem var áhrifamesti læri-
meistari hans eins og fleiri ungra
skálda um miðbik aldarinnar.
Meðal annarra sem hér koma við
sögu eru Magnús Ásgeirsson og
Jón úr Vör.
í kynningu forlagsins segir m.a.:
„Frá allri þessari margbrotnu
reynslu segir Hannes af hreinskilni
og hispurleysi. Frásögnin er jafnan
lipur og lifandi. Gildi hennar ræðst
ekki síst af því hvem hlut höfund-
urinn átti í róttækustu umsköpun
íslensks skáldskapar á öldinni.
Iðunn hefur áður gefið út æsku-
sögu Hannesar, Flökkulíf, svo og
Ljóðasafn hans. Framhaldslif
förumanns er prentuð í Odda hf„
kápa er hönnuð á Auglýsingastof-
unni Octavo.